Mikilvægi hvíldar vill oft gleymast

Hvíld er ekki lúxus heldur líf­fræði­leg nauð­syn, segir Benedikt Jóhanns­son, sér­fræð­ingur í klínískri sál­fræði. Svefn og hvíld séu ein af grunn­stoðum góðrar heilsu og að lík­ams­klukkan kalli á hvíld yfir dag­inn. Rann­sóknir sýni að hvíld skerpi ein­beit­ingu, minni og starfs­þrek. Benedikt telur að vafa­samt hafi verið að afleggja kaffi­tíma á vinnu­stöðum, því starfs­fólkið þurfi eftir sem áður að kúpla aðeins frá vinnu og end­ur­næra sig.

Mikilvægi hvíldar vill oft gleymast

Mik­il­vægi hvíldar hefur oft gleymst, í umræðu um heilsu, þar til fyrir nokkrum árum þegar sál­fræð­ingar sem sér­hæfðu sig í svefni komu fram á sjón­ar­sviðið og fóru að vekja athygli á þessu, að sögn Bene­dikts. 

Svefn­fræð­ingar hafi þó varað við síð­deg­is­blundi, á þeim for­sendum að hann geti haft áhrif á næt­ur­svefn. „Sjálfur er ég alinn upp í sveit og þar lagði fólk sig eftir hádeg­is­mat. Eftir að ég hætti að vinna hef ég tekið upp þennan sið aftur. Þetta virkar vel fyrir mig og hefur ekki áhrif á næt­ur­svefn­inn. Ég er ekk­ert að mæla með að fólk sofni. Sjálfur legg ég mig í 15 til 20 mín­útur, ég sofna ekk­ert endi­lega en end­ur­nær­ist og finn það vel.

Ég hef kynnt mér fræði og rann­sóknir sem sýna að blundur eftir hádeg­is­mat­inn er ákveðin nátt­úru­leg þörf, því þegar fólk fær sér góða nær­ingu, sækir syfja á það og þá hentar …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár