Hildur setur Ara yfir Orkuveituna

Nýr meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Fram­sóknar setur odd­vita Mið­flokks­ins yfir opin­bera orku­fyr­ir­tækið.

Hildur setur Ara yfir Orkuveituna
Ari Edwald Var áður for­stjóri MS og fjöl­miðla­fé­lags­ins 365, ásamt því að leiða Samtök atvinnu­lífs­ins. Mynd: Golli

Oddviti Mið­flokks­ins, Ari Edwald, verður nýr stjórn­ar­for­maður Orku­veitu Reykja­víkur, sam­þykki hann boð Hildar Björns­dóttur, nýs borg­ar­stjóra í Reykja­vík. Hann tekur þá við af hag­fræði­pró­fess­ornum Gylfa Magn­ús­syni.

Hildur Björns­dóttir, nýr borg­ar­stjóri Reykja­víkur, til­kynnti þetta rétt í þessu við myndun nýs meiri­hluta borg­ar­stjórnar í Viðey með Fram­sókn­ar­flokki og Viðreisn.

„Í síð­ustu vikur og í við­ræðum síð­ustu daga þá höfum við fengið að kynn­ast þeim reynslu­mikla manni sem Ari Edwald er og mér finnst ekki annað hægt en að nýta hans krafta og reynslu í þágu borg­ar­búa og Reyk­vík­inga og ég mun gera það að til­lögu minni að hann taki við stjórn­ar­for­mennsku í Orku­veitu Reykja­víkur,“ sagði Hildur. „Þar eru mörg ærin verk­efni sem bíða og hans reynsla og þekk­ing mun nýt­ast vel á þeim vett­vangi.“

Ari Edwald hefur margs konar reynslu úr atvinnu­líf­inu.

Ari var fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Sem slíkur sagði hann sam­tökin úr nátt­úru­vernd­ar­sam­tök­unum Land­vernd árið 2002. „Samtök atvinnu­lífs­ins geta ekki starfað með sam­tökum sem taka jafn ein­hliða afstöðu gegn nýt­ingu orku­linda lands­ins, eins og fram hefur komið að und­an­förnu,“ sagði hann þá í yfir­lýs­ingu. 

Síðar varð hann fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­fé­lags­ins 365, fyr­ir­renn­ara Sýnar.

Hann var for­stjóri MS frá árinu 2015 og þurfti sem slíkur að svara fyrir sam­keppn­is­brot félags­ins.

Ari fór í tíma­bundið leyfi frá Ísey útflutn­ingi, dótt­ur­fé­lagi Auðhumlu, eig­anda Mjólk­ur­sam­söl­unnar 2022 og var sagt upp störfum í kjöl­farið.

Ari er 62 ára gam­all lög­fræð­ingur og rekstr­ar­hag­fræð­ingur. Hann var áður með­limur í Sjálf­stæð­is­flokknum og búsettur í Portúgal, en flutti sig um set og flokk fyrir fram­boð á vegum Mið­flokks­ins í vor.

Orku­veita Reykja­víkur er íslenskt sam­eign­ar­fyr­ir­tæki í eigu Reykja­vík­ur­borgar, Akra­nes­bæjar og Borg­ar­byggðar. Hún skil­aði 11,5 millj­arða króna hagn­aði í fyrra.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði á stefnu­skrá sinni að selja kolefn­is­föng­un­ar­fé­lagið Carbfix og inn­viða­fé­lagið Ljós­leiðar­ann úr Orku­veit­unni.

Í sam­tali við Rík­is­út­varpið segir Ari að Hildur hafi hringt í hann um tíu mín­útum fyrir kynn­ingu meiri­hluta­sam­starfs­ins í morgun og boðið honum stöð­una, en að hann hefði ekki enn tekið afstöðu til þess.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár