Tugmilljóna launahækkanir forstjóranna í kauphöllinni

Laun for­stjóra skráðra félaga hækka víða tölu­vert á milli ára, á sama tíma og tengsl þeirra við afkomu og verð­mæta­sköpun fyr­ir­tækj­anna eru óljós. Fimm for­stjórar fengu meira en hund­rað millj­ónir greiddar. Í heild kost­uðu 26 for­stjórar 3,1 millj­arð króna.

Tugmilljóna launahækkanir forstjóranna í kauphöllinni

Laun for­stjóra skráðra félaga á Íslandi hækk­uðu nær und­an­tekn­ing­ar­laust á síð­asta ári, óháð afkomu fyr­ir­tækj­anna eða þróun hluta­bréfa­verðs þeirra. Af 27 for­stjórum lækk­aði aðeins einn í launum, Jón Guðni Ómarsson, banka­stjóri Íslands­banka, og þá um ein­ungis um 100 þús­und krónur á milli ára. Einn stóð í stað, en aðrir hækk­uðu, víða um tugi pró­senta.

Mestu hækk­an­irnar voru hjá Vilhelm Má Þor­steins­syni hjá Eimskipi, Hermanni Björns­syni hjá Sjóvá og Benedikt Gísla­syni hjá Arion banka, sem allir fengu um eða yfir 25 pró­senta hækkun. Róbert Wessman hjá Alvotech hækk­aði um rúm 24 pró­sent og Jón Þór Gunn­ars­son hjá Kalda­lóni um tæp 23 pró­sent.

Hækkanir af þess­ari stærð­argráðu vekja athygli í ljósi þess að þær virð­ast ekki endi­lega end­ur­spegla rekstr­ar­ár­angur félag­anna eða þróun hluta­bréfa þeirra. 

Laun á uppleið en ekki gengið

Í mörgum til­vikum fóru launa­hækk­anir saman við veika eða nei­kvæða þróun á mark­aði. Hluta­bréf Alvotech féllu til að mynda um …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Haldið þið að þessir menn vilji fara í Evrópubandalagið?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

0,1 prósentið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár