Þjóðaratkvæði um ESB samþykkt á Alþingi

Stór orð féllu á Alþingi áður en áður en sam­þykkt var þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um hvort „hefja eigi á ný“ aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið. Þingmenn Mið­flokks­ins voru á móti þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Þjóðaratkvæði um ESB samþykkt á Alþingi
Nið­ur­stöð­unni fagnað Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, faðmar Dag B. Egg­erts­son, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar eftir nið­ur­stöðu atkvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið, en bæði eru þau Evr­ópu­sinnar. Mynd: Golli

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu þess efnis hvort Ísland eigi að sækja um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu hefur verið sam­þykkt á Alþingi með yfir­burðum. Já sögðu 34, en 14 greiddu ekki atkvæði og 8 sögðu nei.

Þrátt fyrir stór orð sátu flestir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hjá í atkvæða­greiðsl­unni.

„Við treystum þjóð­inni,“ sagði Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem greiddi ekki atkvæði. Sama gerðu þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þingmenn Mið­flokks­ins greiddu hins vegar atkvæði gegn þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, eins og Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks.

„Það var farið af stað með þetta mál á fölskum for­sendum. Ítrekað hefur verið leit­ast við að koma í veg fyrir umræðu um málið,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sem sak­aði rík­is­stjórn­ina um „umbúða­mennsku“, á meðan systir hans og sam­flokks­maður, Nanna Margrét Gunn­laugs­dóttir, sagð­ist ekki „taka þátt í pakka­leik“ rík­is­stjórn­ar­innar.

„Það eru tveir val­kostir og í hvor­ugu til­felli er vitað hvert þeir leiða. Þetta er ótækt,“ sagði Sig­mundur. Vara­for­mað­ur­inn, Snorri Másson, sagði rík­is­stjórn­ina „klofna og van­hæfa í mál­inu“.

Umræða í allan dag

Harðar umræður áttu sér stað í dag af hálfu þing­manna Mið­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en til and­svara voru Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, og Pawel Bartoszek, þing­maður Við­reisnar og for­maður utan­rík­is­mála­nefndar.

Þingmenn Mið­flokks­ins, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Nanna Margrét Gunn­laugs­dóttir, Sigríður Á. Andersen, Snorri Másson ræddu meðal ann­ars fyrr í dag galla þess að ganga í Evr­ópu­sam­bandið og lík­legt áhrifa­leysi Íslands innan sam­bands­ins, færi svo. 

Sig­mundur Davíð í dagFormaður Mið­flokks­ins taldi brellum vera beitt.
Rökrætt á þingiÞor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, styður aðild Íslands að ESB, ólíkt því þegar síð­ast var sótt um aðild. Guðrún Haf­steins­dóttir er á móti, en Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kveðst vilja bíða þess að sjá samn­ing áður en hún tekur afstöðu.

Fyrst var til­laga um að fresta þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu felld. Þá var til­lögu hafnað um að breyta orða­lagi spurn­ing­ar­innar. Einnig var til­lögu um að skil­greina mark­mið þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar hafnað, en í máli for­manns utan­rík­is­mála­nefndar, Pawels Bartoszek, kom fram að samn­ings­mark­mið væru skil­greind í áliti nefnd­ar­innar.

Margir þing­menn tóku til máls fyrir atkvæða­greiðsl­una um þjóð­ar­at­kvæði og ræddu þar ýmist um atkvæða­greiðsl­una, þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una eða áhrif aðildar að Evr­ópu­sam­band­inu.  

„Þetta þing­mál hér hefur allt verið í skötu­líki,“ sagði Sigríður Á. Andersen, þing­maður Mið­flokks­ins. Hún kvart­aði undan „því­líkri tíma­pressu að afgreiða málið“. „Mið­flokk­ur­inn leggst gegn aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu og þar af leið­andi líka aðild­ar­við­ræðum,“ sagði hún og bætti síðar við: „Þetta mál lýtur ekk­ert að vilja þjóð­ar­innar.“ Þá sagð­ist hún ekki „taka þátt í þessu leik­riti um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.“

Aðild „styrkir okkar efna­hags­lega full­veldi,“ sagði Pawel Bartoszek sem vís­aði einnig til lægri vaxta í Evr­ópu­sam­band­inu og lýð­ræð­is­legs spurs­mál þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði málið „án breiðrar sáttar, án skýrs umboðs og án þess að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir standi saman.“ Hún sagði málið minna sig á umsókn rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, í sam­starfi Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna, árið 2009, en síð­ar­nefndi flokk­ur­inn var andsnú­inn aðild, líkt og Flokkur fólks­ins, sem nú er í rík­is­stjórn.

Guðrún sagði flokk­inn vilja „standa utan Evr­ópu­sam­bands­ins“ og bætti við: „Við viljum hafa völdin heima.“

Diljá Mist Ein­ars­dóttir rifj­aði upp orð Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra, frá því þegar hún var andsnúin Evr­ópu­sam­bands­að­ild þegar hún var þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins árið 2009.

„Það er aðeins einn flokkur sem hefur kraf­ist þess að í þessa veg­ferð sé farið,“ sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son í Fram­sókn­ar­flokki og vís­aði þar til Við­reisnar, en full­yrti að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn styddi almennt þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Þjóð­ar­at­kvæði framundanÞor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir í umræðum um Evr­ópu­sam­bandið á Alþingi.

Stærsta mál Alþingis

„Með því stærra ef ekki það allra stærsta sem við höfum tek­ist á um hér í þessum sal,“ sagði Þórarinn Ingi Pét­urs­son, einnig þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. „Framsókn er hlynnt því að þjóðin fái að segja sitt í þess­ari atkvæða­greiðslu,“ sagði hann. Þá sagði hann mik­il­vægt að „virða nið­ur­stöðu þjóð­ar­innar“. „Ég vil segja nei í haust. Ég sé ekki þá gullnu skóga sem aðrir sjá handan Atl­antsála“.

„Mig langar til þess að geta stutt samn­ing sem kæmu út úr slíkum aðild­ar­við­ræðum,“ sagði Dagbjört Hákon­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Hann sagði hluta þjóð­ar­innar „for­vit­inn um hvaða áhrif það gæti haft á þess dag­lega líf“. 

„Flokk­ur­inn hefur alltaf verið fylgj­andi því að þjóðin sé spurð,“ sagði Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, þing­maður Flokks fólks­ins, og taldi spurn­ing­una ekki vera hvort gengið yrði inn í sam­bandið.

„Við erum að afsala okkur við­skipta­frels­inu!“ hróp­aði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og sagði Íslend­inga hafa stjórnað land­bún­að­ar­málum sínum frá land­námi.

Jón Pétur Zimsen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði málið „falsút­kall“. Hann líkti því við að putta­ferða­langur spyrði hvort rúta væri á leið til Kefla­víkur, en væri ekki upp­lýstur um að hún væri á leið á Selfoss þegar stigið væri inn í rút­una. „Hvað ertu að tefja okkur? Við erum á leið­inni á Selfoss!“ sagði Jón Pétur þegar hann gerði grein fyrir atkvæði sínu.

Kristrún Frosta­dóttir sagði málið hafa hangið yfir þjóð­inni í áraraðir. „Nú er komið að því að útkljá það. Það er verið að kjósa um hvort fólk vilji fjölga val­kostum,“ sagði hún. „Ég vil fá að sjá samn­ing, en ég vil líka hlusta á þjóð­ina.“

Spurningunni breytt

Málið var lagt fram á Alþingi 9. mars síð­ast­lið­inn og gekk til utan­rík­is­mála­nefndar viku síðar. 

Tekið var til­lit til athuga­semda Fen­eyja­nefnd­ar­innar þegar ákveðið var að breyta orða­lagi spurn­ingar þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar og horfið frá því að spyrja hvort ætti að „halda áfram“ við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið, en þar sem deilt var um hvort Ísland hefði raun­veru­lega slitið við­ræðum þegar Gunnar Bragi Sveins­son, þá utan­rík­is­ráð­herra úr Fram­sókn­ar­flokknum, sendi bréf til Brussel 2015 og til­kynnti aft­ur­köllun aðild­ar­um­sóknar sem hafði verið sam­þykkt með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu 2009. Ólíkt nú var ekki lagt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu hvort sækja ætti um aðild eða ekki.

Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokk, sem leidd var af Bjarna Bene­dikts­syni og Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, var andsnúin aðild­ar­við­ræð­unum. Ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins höfðu þá lýst því í kosn­inga­bar­átt­unni að leggja ætti í dóm þjóð­ar­innar hvort aðild­ar­við­ræðum yrði slitið. Bjarni Bene­dikts­son sagði eftir kosn­ing­arnar „póli­tískur ómögu­leiki“ væri að halda áfram við­ræð­unum, sem end­aði með aft­ur­köllun aðildar án þess að málið væri tekið fyrir á þingi eða fært í þjóð­ar­at­kvæði.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Sig­mundar og Bjarna kom fram að gert yrði „hlé á aðild­ar­við­ræðum Íslands við Evr­ópu­sam­bandið og úttekt gerð á stöðu við­ræðn­anna og þróun mála innan sam­bands­ins.“

Þá sagði að „úttektin [yrði] lögð fyrir Alþingi til umfjöll­unar og kynnt fyrir þjóð­inni. Ekki verður haldið lengra í aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið nema að und­an­geng­inni þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.“

Sem fyrr segir var aðild­ar­um­sóknin aft­ur­kölluð af þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra með bréfi til Evr­ópu­sam­bands­ins.

Allt að fjögur þús­und manns mót­mæltu á Aust­ur­velli eftir aft­ur­köll­un­ina 2015.

Verði sam­þykkt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 29. ágúst að sækja um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu verður haldin önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um hvort ganga eigi í sam­bandið, þegar samn­ingur liggur fyrir.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Kjósendur munið að það verður aðeins einn löglegur svarmöguleiki á kjörseðlinum 29. ágúst. Við höfnuðum ríkisábyrgð á innstæðutryggingum í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir 15 árum síðan og sú niðurstaða var BINDANDI. Ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst getur engu breytt um það. Þess vegna verður hinn svarmöguleikinn, sá sem stefnir í átt að því að undirgangast ríkisábyrgð á innstæðutryggingum sem er skilyrði aðildar að ESB, ekki löglegur og getur aldrei orðið. Ef einhver er svo bjartsýnn að halda að það sé raunhæft að undanþága fáist frá þessu skilyrði þá er rétt að vekja athygli á því að það er EKKI meðal yfirlýstra samningsmarkmiða. Ríkisstjórn hefur hvorki umboð né heimild til að hunsa BINDANDI þjóðaratkvæðagreiðslur.
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Atkvæðagreiðslunni var ekki lokið þegar þessi frétt var birt. Fyrirsögn hennar var því villandi þar sem þá hafði ekkert verið samþykkt heldur þvert á móti allt verið fellt fram að því.
    -5
    • MB
      Magnús Bjarnason skrifaði
      Hvenær var atkvæðagreiðlunni lokið? Hér að ofan má sjá að greinin er tímasett kl. 17,25.
      Í kvöldfréttum RÚV kl. 18,00 var sagt að tillagan hafi verið samþykkt. Var lokið við atkvæðagreiðsluna fyrir eða eftir kl. 17,25?? Byrjaði greinarhöfundur að skrifa kl. 17,25 eða er það tíminn sem hann lauk við greinina og sendi hana til þín og mín Guðmundu??
      „Atkvæðagreiðslunni var ekki lokið þegar þessi frétt var birt.“ ER ÞETTA RÉTT GUÐMUNDUR??
      0
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Magnús Bjarnason. Auðvitað er þetta rétt. Ég skrifa aldrei á netið án þess að fara rétt með staðreyndir og þá sjaldan að það gerist fyrir mistök þá leiðrétti ég mig samkvæmt betri vitund ef svo ber undir. Allir sem þekkja til mín vita þetta.

      Í þessu tilviki vildi svo til að ég var að horfa á atkvæðagreiðsluna í beinni útsendingu þegar fréttin birtist og athugasemdin var skrifuð. Atkvæðagreiðslunni lauk kl. 17:35 eins og er auðvelt að sannreyna með því að skoða fundargerð og upptökur frá þingfundinum: https://www.althingi.is/altext/157/f112.sgml
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Aðild Íslands að ESB

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár