Hvað sagði Ari og Miðflokkurinn í kosningabaráttunni?

Í kosn­inga­bar­átt­unni sagði Ari Edwald, odd­viti Mið­flokks­ins í Reykja­vík, regn­boga­fán­anum hafa verið ýtt út fyrir fána sem hefur tákn trans­fólks, inter­sex og „blökku­manna og brúnna“. Hann tengdi öryggi borg­ar­búa við fjölda inn­flytj­enda á Íslandi og boð­aði sér­stakt eft­ir­lit lög­regl­unnar á kostnað borg­ar­innar.

Hvað sagði Ari og Miðflokkurinn í kosningabaráttunni?

Ari Edwald, nýkjör­inn borg­ar­full­trúi, Snorri Másson, vara­for­maður Mið­flokks­ins, og fleiri félagar þeirra í flokknum kvört­uðu undan því í kosn­inga­bar­átt­unni og strax í kjöl­far kosn­inga að fjöl­miðlar vildu „ræða frekar það sem fram­bjóð­endur Mið­flokks­ins hafa ekki sagt en það sem þeir hafa sagt“. Stefna flokks­ins og orð­ræða fram­bjóð­anda varð þó til þess að Viðreisn úti­lok­aði meiri­hluta­sam­starf með flokknum og er meiri­hluti frá miðju til hægri því úr sög­unni. Mið­flokk­ur­inn upp­skar mikla fylg­is­aukn­ingu í borg­inni í nýaf­stöðnum kosn­ingum og fékk þrjá menn kjörna.

Orðræða kjör­inna full­trúa og fram­bjóð­enda gæti þó sett strik í reikn­ing­inn við myndun meiri­hluta en Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks, sem er langstærsti flokk­ur­inn í borg­inni með 9 borg­ar­full­trúa, lýsti því afdrátt­ar­laust í Kast­ljósi dag­inn eftir kosn­ingar að hún myndi aldrei leiða meiri­hluta með flokkum þar sem for­dómar væru liðnir. 

Hart var sótt að Ara vegna ummæla Snorra og fleiri flokks­fé­laga um að fjar­lægja ætti fána hinsegin fólks …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár