Hildur boðar til fundar í Viðey

Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­stjórn, hefur boðað til blaða­manna­fundar í Viðey í dag. Rúm vika er síðan flokkur hennar vann stóran sigur í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og hefur hún haldið spil­unum þétt að sér síðan.

Hildur boðar til fundar í Viðey
Við stýrið Umboð Hildar til meiri­hluta­við­ræðna hefur verið óum­deilt en flokkur hennar fékk 9 af 23 full­trúum í borg­ar­stjórn. Mynd: Golli

Draga mun til tíð­inda í dag í borg­ar­stjórn Reykja­víkur en Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­stjórn, hefur boðað til blaða­manna­fundar í Viðey fyrir hádegi.  Rúm vika er síðan flokkur hennar vann sigur í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og fékk 9 full­trúa kjörna. 

Lítið hefur hins vegar spurst út um meiri­hluta­við­ræður síðan og Hildur hefur haldið spil­unum þétt að sér.

Kost­irnir sem hún hefur þó nefnt eru tveir og teygja sig mis­langt að miðj­unni. Sjálf­stæð­is­flokkur gæti myndað meiri­hluta með Mið­flokki en sam­an­lagt hafa flokk­arnir 12 full­trúa af 23 í borg­ar­stjórn. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gæti líka myndað meiri­hluta með tveimur full­trúum Við­reisnar og einum full­trúa Fram­sóknar og náð jafn stórum meiri­hluta. 

Rúmur meiri­hluti þess­ara fjög­urra flokka er þó úr mynd­inni, þar sem Viðreisn hefur úti­lokað sam­starf með Mið­flokknum. 

Staða Hildar í meiri­hluta­við­ræðum þykir sterk en flokk­ur­inn er langstærstur þeirra sem koma til greina í meiri­hluta. Kosn­inga­lof­orð hennar voru bæði mörg og sum hver nákvæm, og sett fram sem tíma­sett aðgerð­ar­á­ætlun, en ekki liggur fyrir hversu mörg þeirra rata inn í meiri­hluta­sátt­mála. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár