Verðlag stóð nánast í stað en verðbólga hjaðnar lítið

Mest til hækk­unar í mán­uð­inum vó kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði. Á móti lækk­aði verð á elds­neyti veru­lega vegna skatta­lækk­unar á bensín og dísel.

Verðlag stóð nánast í stað en verðbólga hjaðnar lítið
Lækkun Elds­neyt­is­verð lækk­aði hressi­lega í mán­uð­inum vegna aðgerða stjórn­valda, sem lækk­uðu virð­is­auka­skatt á elds­neyti tíma­bundið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Verðlag stóð nán­ast í stað milli mán­aða í maí þrátt fyrir tals­verða lækkun á elds­neyt­is­verði í kjöl­far lækk­unar virð­is­auka­skatts á bensín og dísel. Verð­bólga mælist nú 5,1 pró­sent, sem er lækkun frá síð­asta mán­uði, þegar hún mæld­ist 5,2 pró­sent. 

Samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun hækk­aði vísi­tala neyslu­verðs um 0,07 pró­sent frá apríl til maí. Hún mælist nú 684,3 stig. Vísitala neyslu­verðs án hús­næðis lækk­aði hins vegar um 0,13 pró­sent milli mán­aða.

Verð­bólga yfir tólf mán­aða tíma­bil hjaðnar því lítið þrátt fyrir nær óbreytt verð­lag í maí og tíma­bundin áhrif skatta­lækk­unar á elds­neyti. Vísitala neyslu­verðs án hús­næðis hefur hækkað um 4,6 pró­sent á sama tíma­bili.

Mest til hækk­unar í mán­uð­inum vó kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði, eða reiknuð húsa­leiga, sem hækk­aði um 0,6 pró­sent. Áhrifin á vísi­töl­una voru 0,13 pró­sentu­stig.

Á móti lækk­aði verð á elds­neyti veru­lega. Dísel lækk­aði um 7,0 pró­sent og hafði 0,07 pró­sentu­stiga áhrif til lækk­unar á vísi­töl­una. Bensín lækk­aði um 7,3 pró­sent og dró vísi­töl­una niður um 0,14 pró­sentu­stig.

Lækkunin skýrist að stórum hluta af því að virð­is­auka­skattur á bensín og dísel var lækk­aður úr 24 pró­sentum í 11 pró­sent þann 1. maí. Hag­stofan metur heild­ar­á­hrif skatt­breyt­ing­ar­innar til 0,32 pró­senta lækk­unar á vísi­tölu neyslu­verðs.

Ef elds­neyt­is­verð væri reiknað með óbreyttum 24 pró­senta virð­is­auka­skatti hefði dísel­verð hækkað um 3,9 pró­sent milli mán­aða og bens­ín­verð um 3,6 pró­sent, sam­kvæmt útreikn­ingum Hag­stof­unnar.

Vísitala neyslu­verðs í maí gildir til verð­trygg­ingar í júlí.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár