Eyþór sagði 325 milljóna kaup á verðlausum hlutabréfum vera „alvöru“

Eyþór Arnalds hefur ekki skilað ársreikningi fyrir félag sitt, Ramses II. Félagið heldur utan um hlutabréf hans í Morgun­blaðinu. Samherji mat hluta­bréfin á 0 krónur í árslok 2016 en samt fjárfesti Eyþór í þeim fyrir 325 milljónir.

Eignarhalds­félag Eyþórs Arnalds, borgar­fulltrúa og fjár­festis, sem stofnað var utan um hluta­bréfa­viðskipti hans í útgáfu­félagi Morgun­blaðsins var sektað um 600 þúsund krónur fyrir að skila ársreikningi ársins 2017 rúmlega átta og hálfum mánuði of seint. Félagið hefur ekki skilað ársreikningi fyrir árið 2018 en þeim reikningi átti félagið að skila þann 31. ágúst síðastliðinn. Félagið verður því sektað um 600 þúsund krónur að öllu óbreyttu en sekt félagsins getur lækkað um allt að 90 prósent ef ársreikningnum verður skilað innan eins mánaðar og allt að 40 prósent ef honum verður skilað á næstu 3 mánuðum.

Félag Eyþórs, Ramses II ehf., skilaði ársreikningi sínum fyrir árið 2017 um miðjan maí á þessu ári en hefði átt að skila honum í síðasta lagi þann 31. ágúst árið 2018.  

Félagið á næstum hálfan milljarð

Samkvæmt svörum frá ársreikninga­skrá Ríkis­skattstjóra eru engar undanþágur veittar á sektar­greiðslum vegna of seinna skila …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Moggabréfin

GreiningMoggabréfin

Lánið frá Samherja sem sýndi „eitraða þræði“ stór­útgerðar og stjórn­mála

Eftir fjölmiðla­umræðu og spurningar í nærri fimm ár hefur eignarhalds­félag Eyþórs Arnalds loksins afskrifað að fullu seljandalán sem fyrir­tækið fékk frá Samherja­félagi til að kaupa hlutabréf útgerð­ar­innar í Morgun­blaðinu. Eyþór þrætti alltaf fyrir það á meðan hann var borgar­fulltrúi að viðskiptin með hluta­bréfin væru sýndar­viðskipti.
FréttirMoggabréfin

Viðskipti Eyþórs og Samherja: Gögn benda til að kaup­verðið hafi verið ekkert

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis­flokksins, vill ekki svara því hvernig hann gerði upp nærri 390 milljóna króna viðskipti með kröfur á hendur félagi hans sem Samherji átti. Samherji afskrifaði lánið til félags Eyþórs árið 2019. Eyþór sagði við Stundina árið 2018 að viðskipti hans og Samherja værui möguleg vegna sterkar eiginfjár­stöðu eignarhalds­félags í hans eigu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár