Hildur borgarstjóri í samstarfi með Framsókn og Viðreisn

Hildur Björns­dóttir, Björg Magn­ús­dóttir og Einar Þor­steins­son hafa gert með sér sam­komu­lag um myndun meiri­hluta í Reykja­vík. Meiri­hlut­inn var kynntur í Viðey ell­efu dögum eftir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar.

Hildur borgarstjóri í samstarfi með Framsókn og Viðreisn

Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, verður borg­ar­stjóri í Reykja­vík í meiri­hluta­sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks.

Á mánu­dag gengu flokk­arnir til við­ræðna um myndun meiri­hluta við Viðreisn og Framsókn án þess að til­kynna um það opin­ber­lega. Við­ræð­urnar tóku skamman tíma.

„Þetta er sá meiri­hluti sem ég tel bestan fyrir Reykja­vík,“ sagði Hildur þegar hún kynnti nið­ur­stöð­una. Það ríkti traust á milli þess­ara leið­toga og þau væru sam­mála um að gera þyrfti breyt­ingar í borg­inni.

Einar verður for­maður borg­ar­ráðs fyrri hluta kjör­tíma­bils á sama tíma og Björg verður for­seti borg­ar­stjórnar. Þau munu hafa stóla­skipti á miðju kjör­tíma­bili. Hildur seg­ist ætla að gera það að til­lögu sinni að Ari Edwald, odd­viti Mið­flokks­ins, verði gerður að stjórn­ar­for­manni Orku­veit­unnar.

Segjast vera ný kynslóð

Öll sögð­ust odd­vit­arnir vera hluti af nýrri kyn­slóð stjórn­mála­fólks og að traust ríkti á milli þeirra. „Við erum fólk á svip­aðri línu, við getum talað heið­ar­lega og hrein­skiptið saman,“ sagði Björg Magn­ús­dóttir, odd­viti Við­reisnar, á fund­inum og sagði að borg­ar­full­trúar meiri­hlut­ans væri öfl­ugur og fjöl­breyttur hópur sem gæti ekki beðið eftir að hefja vinn­una. „Við göngum inn í þetta ofboðs­lega spennt.“

„Fólk vill nýtt upp­haf í Reykja­vík,“ sagði Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks, og sagð­ist hafa reynt að mynda þennan meiri­hluta á síð­asta kjör­tíma­bili. Vísaði hann til þess þegar hann sprengdi meiri­hluta­sam­starfið sem hann leiddi sem borg­ar­stjóri, sem end­aði þó með því að vinstri flokk­arnir í borg­ar­stjórn mynd­uðu meiri­hluta án Fram­sóknar.

Þrír en ekki tveir

Hildur valdi að ganga til meiri­hluta­sam­starfs með Björgu og Einari. Meiri­hlut­inn var kynntur á blaða­manna­fundi í Viðey í dag, þar sem odd­vit­arnir skrif­uðu undir meiri­hluta­sam­starfið. Hún hafði einnig kost á að leiða tveggja flokka sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks, sem hefði haft jafn marga full­trúa á bak við sig.

Flokk­arnir hafa sam­tals 12 full­trúa af 23 í borg­ar­stjórn og rétt rúm­lega meiri­hluta gildra atkvæða á bak við sig. Sjálf­stæð­is­flokkur er stærstur með 9 full­trúa og 32,9 pró­sent atkvæða, Viðreisn með 2 full­trúa og 10,7 pró­sent atkvæða og Framsókn með 1 full­trúa og 6,9 pró­sent atkvæða. Samtals hafa flokk­arnir 35.171 atkvæði á bak við sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár