Atvinnuleysi mældist 5,8 prósent í apríl

Alls voru 13.500 án atvinnu í apríl sam­kvæmt árs­tíða­leið­réttum tölum. Það er sem nemur 5,8 pró­senta atvinnu­leysi.

Atvinnu­leysi minnk­aði á milli mán­aða í apríl, sam­kvæmt árs­tíða­leið­réttum nið­ur­stöðum vinnu­mark­aðs­rann­sóknar Hagstofu Íslands.

Alls voru 13.500 án atvinnu í apríl sam­kvæmt árs­tíða­leið­réttum tölum. Það er sem nemur 5,8 pró­senta atvinnu­leysi. Hlut­fallið hefur lækkað um 0,5 pró­sentu­stig frá mars.

Hlutfall starf­andi var 75,4 pró­sent og stóð í stað milli mán­aða, en atvinnu­þátt­taka mæld­ist 80 pró­sent og dróst saman um 0,5 pró­sentu­stig.

Óárs­tíða­leið­réttar nið­ur­stöður sýna meiri aukn­ingu frá fyrra ári. Samkvæmt mæl­ingu Hag­stof­unnar var atvinnu­leysi meðal fólks á aldr­inum 16 til 74 ára 6,6 pró­sent í apríl, eða um 15.300 manns.

Hlutfall starf­andi var 74,2 pró­sent í apríl og sam­svar­aði það tæp­lega 217.200 ein­stak­lingum. Atvinnu­þátt­taka var 79,4 pró­sent, sem jafn­gildir um 232.500 manns á vinnu­mark­aði.

Í sam­an­burði við apríl í fyrra jókst atvinnu­leysi um 2,6 pró­sentu­stig. Hlutfall starf­andi lækk­aði um 3,3 pró­sentu­stig og atvinnu­þátt­taka minnk­aði um 1,3 pró­sentu­stig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár