Ákæran öll: Slóð umsáturseineltis rakin

Ákæran gegn Írisi Helgu sýnir hvernig hún reyndi að hrella fólk og eyði­leggja mann­orð þess fyrir að þýð­ast henni ekki.

Ákæran öll: Slóð umsáturseineltis rakin

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum hefur gefið út ákæru á hendur Írisi Helgu Jón­atans­dóttur vegna umsát­ursein­eltis, ásamt öðrum aðila sem er tal­inn eiga aðild að ein­staka máls­at­vikum. 

Í ákærunni eru máls­at­vik rakin aftur til árs­ins 2022 og bein­ast gegn fjórum full­orðnum aðilum, þremur karl­mönnum og maka eins þeirra, sem og börnum þeirra, fjöl­skyldum og tengdum aðilum. 

Listuð eru upp alls 68 máls­at­vik í ákærunni gegn Írisi Helgu sem varða ýmis brot á hegn­ing­ar­lögum, svo sem umsát­ursein­elti, rangar sak­ar­giftir, skjala­fals, hót­anir, æru­meið­andi aðdrótt­anir og barna­vernd­ar­laga­brot. 

Hér á neðan má lesa ákæruna í heild sinni, en þar birt­ist mynd af ára­langri hegðun sem er til þess fallin að meiða, særa og skaða aðra. 

Ákæran gegn Írisi Helgu

A

Gegn Írisi Helgu, fyrir umsát­ursein­elti, sem einnig fól í sér rangar sak­ar­giftir, skjala­fals, æru­meið­andi aðdrótt­anir og barna­vernd­ar­laga­brot, með því að hafa á tíma­bil­inu frá 10. febr­úar 2022 til 10. febr­úar 2024, end­ur­tekið sett sig í sam­band við, fylgst með, hótað og á annan sam­bæri­legan hátt setið um a, fyrr­ver­andi kærasta ákærðu, og b, kær­ustu og sam­býl­is­konu a, og með þeirri hátt­semi sinni valdið þeim hræðslu og kvíða, en ákærða beitti meðal ann­ars eft­ir­far­andi aðferðum við umsát­ursein­eltið: 

A.I. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, end­ur­tekið komið að og fylgst með heim­ili a, heim­ili b, og svo að sam­eig­in­legu heim­ili a og b, meðal ann­ars í eft­ir­töldum til­vikum; 

A.I.1. 

Með því að hafa, þann 26. febr­úar 2022, komið að þáver­andi heim­ili a, með krukku sem hún sagði að inni­héldi fóstur sem hún hefði misst. 

A.I.2. 

Með því að hafa, þann 27. febr­úar 2022, komið að þáver­andi heim­ili a, og brotið þar blóma­vasa fyrir framan úti­hurð húss­ins, en blóma­vas­ann hafði a áður gefið ákærðu.

A.I.3. 

Með því að hafa, þann 1. mars 2022, komið að þáver­andi heim­ili a, og sparkað í bif­reið hans.

A.I.4. 

Með því að hafa, þann 17. jan­úar 2023, ekið fram­hjá þáver­andi heim­ili a, og á meðan tekið mynd­band sem sýndi húsið og nýja bif­reið a og b, en mynd­bandið sendi ákærða til a á Facebook Messen­ger frá fals­reikn­ingi, sem ákærða not­aði til að villa á sér heim­ildir. Strax eftir að ákærða sendi a mynd­bandið sendi hún honum, frá sama reikn­ingi, skila­boð um að hann gæti ekki falið sig, hún myndi muna bíl­núm­erið og að hann gæti ekki verndað b. 

A.II. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, end­ur­tekið sent a skila­boð af mis­mun­andi sam­fé­lags­miðla­reikn­ingum sem ákærða not­aði til að villa á sér heim­ildir, en skila­boð ákærðu fólu meðal ann­ars í sér hót­anir í garð a, s.s. því að spreyja bíl­inn hans, eitra fyrir hund­inum hans, að hann fengi aldrei aftur frið og að hann gæti ekki falið sig, ásak­anir um að nauðga og brjóta kyn­ferð­is­lega gegn konum, skila­boðin fólu í sér niðr­andi ummæli um a og niðr­andi ummæli um b, auk þess sem ákærða lét a ítrekað vita að það væri fylgst náið með honum og heim­ili hans. 

A.III. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, end­ur­tekið sent b skila­boð af mis­mun­andi sam­fé­lags­miðla­reikn­ingum sem ákærða not­aði til að villa á sér heim­ildir, en skila­boð ákærðu fólu meðal ann­ars í sér hót­anir í garð b, svo sem að hún fengi aldrei aftur frið í líf­inu og að það myndi kvikna í hús­inu hennar, skila­boðin fólu í sér niðr­andi ummæli um b, niðr­andi ummæli um a, auk þess sem ákærða lét b ítrekað vita að það væri fylgst náið með henni og heim­ili hennar. 

A.IV. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, end­ur­tekið sent vinum og ætt­ingjum b, skila­boð af mis­mun­andi sam­fé­lags­miðla­reikn­ingum sem ákærða not­aði til að villa á sér heim­ildir, en skila­boð ákærðu fólu meðal ann­ars í sér niðr­andi ummæli um b og a. 

A.V. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, end­ur­tekið sent syni a, þ.e. c, skila­boð af mis­mun­andi sam­fé­lags­miðla­reikn­ingum sem ákærða not­aði til að villa á sér heim­ildir, en skila­boð ákærðu fólu meðal ann­ars í sér niðr­andi ummæli um a, auk þess sem ákærða lét c vita að það væri fylgst náið með honum og heim­ili hans. 

A.VI. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, end­ur­tekið hringt í b og sent henni sms skila­boð úr mis­mun­andi síma­núm­erum, sem og leyni­núm­erum, en ákærða sendi meðal ann­ars b 27 sinnum skila­boðin  [nafn a] þann 30. sept­em­ber 2022. 

A.VII. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, farið þess á leit við þrjá ein­stak­linga, að a yrði beittur lík­am­legu ofbeldi. 

A.VIII. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, stofnað Tinder reikn­ing í nafni a, sett mynd af a á reikn­ing­inn og ítrekað látið senda Tinder stað­fest­ing­ar­kóða í far­síma a af reikn­ingnum. 

A.IX. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, stofnað Tinder reikn­ing í nafni b og ítrekað látið senda Tinder stað­fest­ing­ar­kóða í far­síma b, meðal ann­ars á tíma­bil­inu 12. sept­em­ber 2022 til 13. febr­úar 2023, alls 64 kóða, en einnig á tíma­bil­inu frá 12. sept­em­ber 2022 til 26. októ­ber 2022, alls 8 Facebook- og Instagram kóða.

A.X. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, útbúið og dreift miðum í póst­lúgur og póst­kassa í  [bæj­ar­fé­lag], þar sem varað var við manni sem dveldi að [heim­ili b], sem áreitti ungar konur, hefði mikið magn barn­a­níðs­efnis í tölvu sinni og tæki mynd­bönd af börnum í leik í göt­unni. 

A.XI. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, útbúið og dreift miðum í póst­lúgur og póst­kassa í [bæj­ar­fé­lagi] , þar sem varað var við manni sem byggi að  [heim­ili a] , sem áreitti ungar konur, hefði mikið magn barn­a­níðs­efnis í tölvu sinni og tæki mynd­bönd af börnum í leik í göt­unni.

A.XII. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, útbúið og hengt upp miða við verslun Bónus, [bæj­ar­fé­lag], þar sem fram kom að a væri að aug­lýsa eftir börnum til að koma á heim­ili sitt til að passa hund­inn hans á meðan hann væri að sinna kær­ustu sinni, en einnig kom fram að hann gæti sótt börnin. Þá var nafn og síma­númer b gefið upp á mið­anum. 

A.XIII. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, útbúið og dreift miðum í [bæj­ar­fé­lagi], þar sem fram kom á ensku að b tæki að sér að þrífa hús frítt, að hún væri einskis virði og að hún væri góð í að veita kyn­ferð­is­legt nudd, en bæði nafn og síma­númer b var til­greint á mið­unum. 

A.XIV. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, skráð a á íslensku­nám­skeið hjá mið­stöð símennt­unnar á [bæj­ar­fé­lag], án hans vit­neskju og í hans óþökk.

A.XV. 

Með því að hafa, á fyrr­greindu tíma­bili, skráð b á nám­skeið hjá mið­stöð símennt­unnar á [bæj­ar­fé­lag], án hennar vit­neskju og í hennar óþökk.

A.XVI. 

Með því að hafa, þann 10. febr­úar 2022, staðið að því að sírópi væri hellt yfir póst­kassa og bréfalúgu á heim­ili b. 

A.XVII. 

Með því að hafa, þann 17. febr­úar 2022, birt mynd af a á Instagram reikn­ingi ákærðu, ásamt texta þar sem fram kom meðal ann­ars: „[nafn a] er virki­lega veikur maður.“ 

A.XVIII. 

Með því að hafa, þann 26. febr­úar 2022, sent a sms, þar sem fram kom:„Aldrei aldrei aldrei tala við mig aftur ógeðið þitt!“ 

A.XIX. 

Með því að hafa, þann 1. mars 2022, sent a sms, þar sem fram kom: „Þú heyrir aldrei frá mér aftur...nema frá lög­regl­unni því ég slæst bara í hóp­inn með stelp­unum sem köll­uðu þig fyrir kyn­ferð­is­áreitni. Ég mun vara kven­fólk við þér og von­andi deyrð einn vara og van­sæll.“ 

A.XX. 

Með því að hafa, þann 26. júlí 2022, skilið eftir gulan miða á dyra­bjöllu b, en á mið­anum var b kölluð „tussa“. 

A.XXI. 

Með því að hafa, þann 1. októ­ber 2022, sent tölvu­póst til vinnu­veit­anda a, í því skyni að ógna starfs­ör­yggi hans, en í tölvu­póst­inum sak­aði ákærða a um að hafa brotið ítrekað gegn konum, meðal ann­ars að hafa áreitt 5 konur á síð­asta vinnu­stað. 

A.XXII. 

Með því að hafa, í jan­úar 2023, sent tvær til­kynn­ingar til vinnu­veit­anda b í því skyni að ógna starfs­ör­yggi hennar, en í til­kynn­ing­unum var hún rang­lega ásökuð um aðild að inn­flutn­ingi og sölu fíkni­efna, en til­kynn­ing­arnar sendi hún í nafni a.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ekki er að spyrja að!það sem fólkidettur í hug!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Umsáturseinelti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár