Í minningu afastráksins

Gunnar Rand­vers­son starf­aði í ára­tugi sem tón­list­ar­kenn­ari, hefur skrifað ljóð og smá­sagna­safn. Áföllin hafa mótað líf hans. Ellefu ára gam­all horfði hann á föður sinn deyja, 21 árs missti hann móður sína og fyrir þremur árum lést fjög­urra ára gam­all dótt­ur­sonur hans. Í ljóða­bók­inni Hvernig er sökn­uður á lit­inn? eru ljóð skrifuð í minn­ingu litla drengs­ins. Eftir frá­fall hans leit­aði Gunnar í kirkj­una.

Í minningu afastráksins

Gunnar Rand­vers­son ólst upp á Ólafs­firði og bjó fjöl­skyldan í gul­mál­uðu tveggja hæða ein­býl­is­húsi. Þeir eru tveir bræð­urnir og er bróðir hans sex árum eldri.

Spurður um fyrstu æskuminn­ing­una staldrar hug­ur­inn við verslun föð­ur­ins. „Pabbi minn átti verslun. Ég var mik­ill pabba­strákur og var þar alla daga með honum. Ég held að fyrstu minn­ingar mínar teng­ist því að sitja and­spænis honum við borðið á meðan hann var að fara yfir reikn­inga. Svo var ég ungur far­inn að afgreiða í versl­un­inni.“

Svo rann upp 1. júlí árið 1970. Gunnar var þá ell­efu ára. „Ég, mamma og pabbi höfðum verið í versl­un­inni allan dag­inn. Við komum óvenju­seint heim um kvöldið, kannski um níu­leytið. Pabbi minn var að hátta sig í svefn­her­berg­inu og ég var hjá honum. Svo sá ég hann allt í einu detta aftur fyrir sig í rúmið. Hann reyndi að segja eitt­hvað, en ég sá var­irnar hreyfast, en það heyrð­ist …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár