Brokkgengur ferill launahæsta forstjórans

Við­snún­ingur hefur orðið á rekstri Alvotech sem Róbert Wessman stýrir. Mikið hefur verið lagt í ímynd­ar­sköpun á „vöru­merk­inu Róbert Wessman“ á tíma tap­rekst­urs, ill­deilna við Björgólf Thor og ásak­ana kollega og starfs­fólks Alvotech vegna hegð­unar Róberts.

Brokkgengur ferill launahæsta forstjórans
Róbert Wessman Launa­hæsti for­stjóri lands­ins hefur verið í lyfja­brans­anum frá 29 ára aldri. Mynd: Alvogen

Róbert Wessman, stofn­andi og for­stjóri Alvotech, er launa­hæsti for­stjóri Íslands, með 321 milljón króna í föst laun, árang­urstengdar greiðslur og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð. 

Rekstur Alvotech hefur snú­ist við á síð­asta ári eftir margra ára tap. Fyr­ir­tækið hagn­að­ist um tæp­lega 1,4 millj­arða króna á fyrsta fjórð­ungi árs­ins og um 70 millj­ónir doll­ara í fyrra, eða 8,4 millj­arða íslenskra króna.

Tap­rekstur hafði hins vegar verið við­var­andi í rekstri Alvotech fram að því en íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru meðal hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins. Alvotech tap­aði 355 millj­ónum doll­ara árið 2023, eða tæpum 43 millj­örðum íslenskra króna, en á tíma­bili tap­aði fyr­ir­tækið hund­ruðum millj­óna króna dag hvern. Á sama ári og fyr­ir­tækið tap­aði hærri upp­hæðum en námu halla rík­is­sjóðs var Róbert með hund­ruð millj­óna í árs­laun sem for­stjóri eins verð­mætasta félags í íslensku kaup­höll­inni.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Þetta er ótrúleg ævintýrafrásögn. Þessi maður hlýtur að hafa yfirnáttúrlega hæfileika.
    0
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Ótrúlegur maður
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Róbert Wessman, Alvogen og Alvotech

GreiningRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tap­aði 332 millj­ónum krónum á dag á fyrsta árs­fjórð­ungi

Fjöl­margir fjár­festar, meðal ann­ars íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, hafa veðjað stórt á að Alvotech muni með tíð og tíma verða mylj­andi pen­inga­vél. Hökt hefur verið á því ferli og á síð­ustu 27 mán­uðum hefur félagið tapað um 180 millj­örðum króna. Stjórn­endur Alvotech eru hins vegar brattir og spá því að tekjur félags­ins muni allt að fimm­fald­ast milli ára.
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúlletta Róberts og vitn­is­burðir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mikið álag“

Starfs­menn Alvotech lýsa vinnu­á­lag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leitað til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yfir­vinnu og fleiri málum. Vinnu­að­stæð­urnar hafa verið svona út af því að Alvotech hefur unnið að því að fá mark­aðs­leyfi fyrir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið hefur veðjað öllu á þetta lyf en sala á því hefur dreg­ist saman og sam­heita­lyfjum þess hefur alls ekki gengið eins vel í Banda­ríkj­unum og reiknað var með.

19 mín. lestur

FréttirRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Líf­eyr­is­sjóður greiddi atkvæði gegn kaup­réttum stjórnar Alvotech

Lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech hefur veitt fjórum óháðum stjórn­ar­mönnum kaup­rétti í félag­inu. Stjórn félags­ins fékk heim­ild til að veita öllum stjórn­ar­mönnum slíka kaup­rétti en þeir stjórn­ar­menn sem eru tengdir Alvotech, meðal ann­ars Róbert Wessmann og Árni Harð­ar­son hafa afsalað sér þessum kaup­réttum. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi greiddi atkvæði gegn kaup­rétt­ar­kerf­inu.
SkýringRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Háskól­inn hjálp­aði Róberti að eign­ast verk­smiðj­una fyrir ekk­ert

Við­skiptin með lóð­ina í Vatns­mýri þar sem lyfja­verk­smiðja Alvotech reis vöktu til­tölu­lega litla athygli fyrir ára­tug síðan. Í við­skipt­unum voru Reykja­vík­ur­borg og Háskóli Íslands hins vegar að afhenda Róberti Wessman afnot af gæðum í opin­berri eigu á silf­ur­fati, sem hann hefur síðan notað til að hagn­ast ævin­týra­lega á í gegnum lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech.
FréttirRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Félag Róberts seldi skulda­bréf í Alvotech á 12 millj­arða rétt fyrir verð­hrun

Félaga­net Róberts Wessman hefur inn­leyst hagnað af sölu lyfja­verk­smiðj­unnar í Vatns­mýri á sama tíma og hluta­bréfa­verð Alvotech hefur hrunið. Árni Harð­ar­son segir að sala félags Róberts á skulda­bréfum sem það fékk sem greiðslu fyrir verk­smiðj­una sé til­viljun og teng­ist ekk­ert synjun Banda­ríska lyfja­eft­ir­lits­ins á mark­aðs­leyfi til Alvotech.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár