Hundrað milljóna tap af útgáfu Moggans

Rekstur Morg­un­blaðs­ins skil­aði 113 millj­óna króna tapi á síð­asta ári. Útgáfu­fé­lag blaðs­ins, Árvakur, skil­aði þó um 110 millj­óna hagn­aði vegna hlut­deildar í hagn­aði prent­smiðju félags­ins og Póst­dreif­ingar.

Hundrað milljóna tap af útgáfu Moggans
Rit­stjór­inn Davíð Oddsson var ráð­inn rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins í sept­em­ber 2009 ásamt Haraldi Johann­essyni, sem einnig er fram­kvæmda­stjóri Árvakurs, útgáfu­fé­lags blaðs­ins. Mynd: Sigtryggur Ari

Rekstur Morg­un­blaðs­ins skil­aði 113 millj­óna króna tapi á síð­asta ári, sem er um hund­rað millj­ónum króna betri nið­ur­staða en árið áður, þegar rekstr­ar­tapið var 210 millj­ónir. Hagnaður upp á 110 millj­ónir var hins vegar af útgáfu­fé­lagi blaðs­ins, Árvakri, vegna hlut­deildar í hagn­aði Lands­prents og Póst­dreif­ingar. Það er í fyrsta sinn sem útgáfu­fé­lagið er rekið með hagn­aði síðan nýir eig­endur tóku blaðið yfir í kjöl­far hruns­ins. 

Prent­smiðjan skil­aði 195 millj­óna króna hagn­aði og Póst­dreif­ing, sem Árvakur á með Torgi, útgef­anda Frétta­blaðs­ins og fleiri fjöl­miðla, skil­aði 58 millj­óna hagn­aði. Önnur dótt­ur­fé­lög skil­uðu tapi en heilt yfir hagn­að­ist Árvakur um tæpar 243 millj­ónir á eign­ar­hlutum sínum í öðrum félögum. 

Útgáfu­fé­lagið er hins vegar líka einn stærsti við­skipta­vinur prent­smiðj­unnar Lands­prents og Póst­dreif­ingar, sem meðal ann­ars prenta og dreifa Morg­un­blað­inu. Samkvæmt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Árvakur ætti sér mun betri framtíð sem rekstrahæfur fjölmiðill, eingöngu með því að skipta út helsta nýfrjálshyggju-nöttara og fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksinns.
    1
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Íslenskt réttarfar í hundrað ár
    https://is.wikipedia.org/wiki/Gu%C3%B0mundar-_og_Geirfinnsm%C3%A1li%C3%B0
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Það þarf að kljúfa fjölmiðlamarkaðin til mergar á Íslandi engin tilviljun eins og þetta er í pottin búið fyrir valdið. RÚV stjórnvalda ríkistyrktur og ritskoðaður dóminerar markaðin og hirðir auglýsingtekjur frá hinum. Skrautlegt, svo er mafían órjúfanlegur hluti af spilltu valdakerfinu notuð til að viðhalda vissri ógn. Hún nýur sérstakrar verndar fjölmiðla og yfirvalda sem stjórna fyrirbærinu hún er alltumlykjandi og notar bæði ríkisvaldið ólöglega og fjármálakerfið til að reyna að þagga niður í óæskilegum borgurum og þeim sem kvarta yfir henni. Ég kvartaði m.a yfir bíltúr með Geirfinni Einarssyni og fékk yfir mig hefndaraðgerðirnar með margra milljóna tjóni árás frá yfirvöldum hrein og klár misnotkun á dómskerfinu. Svo sauðadofnir bældir og barðir eru þessir aumingjar að sætta sig við þetta ástand ( hugsanlega hræddor um að fá sömu meðferð og Julian Assagne)þar sem stofnanir ríkisins styðja við og fremja lögbrot á almenna borgara til þagga niður í þeim og þjóna innmúruðum sem eru hafnir yfir lög í þessu umhverfi sem siðlausir hafa verið að skapa á áratugum ( sjá grein eftir Þorvald Gylfason hæstiréttur í hundrað ár) Kommaspilling er svartasta vandamálið á Íslandi og ryður veginn fyrir alla hina vitleisuna, Stjórnmálamenn á vesturlöndum hafa horft á of margar Goodfather myndir og fjölmiðlaumhverfið svo skrautlegt að lýðræðinu og réttarríkinu(sem varla er til staðar lengur) stendur ógn af
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár