Stjórnendur Morgunblaðsins farnir að efast um hvort fyrirtækið sé rekstrarhæft til framtíðar

Morg­un­blaðið hefur tapað 2,5 millj­örðum króna eftir að stórar útgerðir keyptu blaðið. Skuldir útgáfu­fé­lags­ins ukst um 185 millónir króna í fyrra. Þrátt fyrir þetta tap hafa hlut­haf­arnir verið ánægðir með fjár­fest­ing­una hingað til.

Stjórnendur Morgunblaðsins farnir að efast um hvort fyrirtækið sé rekstrarhæft til framtíðar
Stærsti og þol­in­móð­asti hlut­haf­inn Guðbjörg Matth­í­as­dóttir hjá Ísfélagi Vest­manna­eyja hefur verið stærsti og þol­in­móð­asti hlut­hafi Moggans síð­ast­lið­inN ára­tug.

Stjórn­endur Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, eru farnir að efast um hvort fyr­ir­tækið sé rekstr­ar­hæft til fram­tíðar. Fyr­ir­tækið hefur tapað rúm­lega tveimur millj­örðum króna síð­ast­liðin ára­tug eftir að nokkur stönd­ug­ustu útgerð­ar­fé­lög lands­ins keyptu það af Íslands­banka í félagi við minni hlut­hafa. Fjár­magnið sem hefur tap­ast hefur komið frá hlut­höfum félags­ins, meðal ann­ars eig­anda Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyjum, Samherja og útgerð­ar­armi Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, FISK Seafood. 

Efa­semdir stjórn­enda Morg­un­blaðs­ins um rekstr­ar­hæfi félags­ins til lengri tíma litið kemur fram í árs­reikn­ingi Árvakurs fyrir síð­asta ár. 

Ánægður þrátt fyrir um 400 millj­óna tapÞor­steinn Már Bald­vins­son sagði Samherja ánægðan með fár­fest­ingu í Mogganum þrátt fyrir að félagið hafi tapað tæp­lega 400 millj­ónum króna á henni.

2,5 milljarða króna tap

Tap félags­ins dróst hins vegar saman um nærri 2/3 hluta á milli ára og var 75 millj­ónir króna í fyrra eftir að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár