Ný lög leyfa RÚV að loka Rás 1 eða Rás 2

Um tíundi hluti aug­lýs­inga­tekna RÚV rennur til einka­rek­inna fjöl­miðla. Sýn og Árvakur fá við­bót­ar­styrk.

Mótmæli við RÚV
Mótmæli við RÚV Árið 2013 stóðu mót­mæl­endur vörð um hlut­verk Rík­is­út­varps­ins eftir nið­ur­skurð í tíð rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Mynd: Geirix

Nýtt laga­frum­varp rík­is­stjórnar Kristrúnar Frosta­dóttur heim­ilar Rík­is­út­varp­inu að leggja niður annað hvort Rás 1 eða Rás 2. Í lögum um Rík­is­út­varpið hefur verið krafa um að „dreifa efni til alls lands­ins og næstu miða með að minnsta kosti tveimur hljóð­varps­dag­skrám og einni sjón­varps­dag­skrá árið um kring.“ Verði frum­varp Loga Ein­ars­sonar, menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra, sam­þykkt á Alþingi, fellur út krafan um tvær útvarps­rásir frá og með 1. jan­úar næst­kom­andi.

Í laga­frum­varp­inu er einnig kveðið á um að fram­lag til Rík­is­út­varps­ins lækki um sem nemur 10 pró­sent af tekjum þess af aug­lýs­ingum.

Frum­varpið er samið á grund­velli aðgerð­ar­á­ætl­unar í mál­efnum fjöl­miðla sem var kynnt í des­em­ber í fyrra. Í áætl­un­inni var stefnt að því að nýta hluta af aug­lýs­inga­tekjum RÚV til þess að styrkja einka­rekna fjöl­miðla og inn­leiða sér­stakan við­bót­ar­stuðn­ing, sem rennur þó aðeins til tveggja stærstu fjöl­miðla­fé­laga lands­ins, Sýnar og Árvakurs, þar sem skil­yrðin eru stærð rit­stjórnar sem …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Guðjónsson skrifaði
    Illar eru þessar tillögur og fyrir hverja eru þær hugsaðar?
    4
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Bara að detta þetta í hug ? Þetta má alls ekki gerast !
    1
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Alveg í anda gömlu Samfylkingarinnar, sleikja upp Árvakur. Logi Einarsson er vonlaus. Fá minni fjölmiðlar svo ekkert? Sjónvarpið er orðið svo lélegt að ég man ekki eftir öðru eins, á hverju kvöldi er um 80% endurtekið efni (oft oftar en 1 sinni)
    1
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Fjórða valdið – eða fjárhagslegur bandamaður valdakerfisins?

    Er verið að styrkja fjölbreytni og sjálfstæði íslenskra fjölmiðla — eða færa fjárhagsleg áhrif og fjölmiðlavald til færri aðila?

    Þetta er spurning sem almenningur á fullan rétt á að fá svar við.

    Nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir að afnumin verði lagaskylda Ríkisútvarpsins til að halda úti tilteknum lágmarksfjölda útvarps- og sjónvarpsrása. Jafnframt á að skerða fjárframlag til RÚV um fjárhæð sem nemur 10% af auglýsingatekjum þess og verja þeirri fjárhæð til stuðnings einkareknum fjölmiðlum.

    Samkvæmt umfjöllun Heimildarinnar er sérstakur viðbótarstuðningur við einkarekna fjölmiðla þannig útfærður að hann gagnist einkum tveimur stærstu fjölmiðlafélögum landsins, Sýn og Árvakri.

    En hver er þá raunverulegur tilgangur breytinganna?

    Fjölmiðlar eru ekki venjuleg fyrirtæki. Þeir gegna grundvallarhlutverki í lýðræðisríki. Þeir eiga að rannsaka vald, afhjúpa spillingu, upplýsa almenning og veita stjórnmálamönnum, fjármálafyrirtækjum, stórfyrirtækjum og opinberum stofnunum sjálfstætt aðhald.

    Þess vegna eru þeir kallaðir fjórða valdið.

    En hvað gerist þegar fjárhagsleg afkoma fjölmiðla verður í síauknum mæli háð ákvörðunum þeirra stjórnmálamanna sem fjölmiðlarnir eiga sjálfir að rannsaka?

    Hvað gerist þegar stærstu fyrirtækin fá mestan stuðning, á meðan minni og sjálfstæðari fjölmiðlar þurfa að berjast fyrir tilveru sinni?

    Og hvað gerist þegar sömu fjárhagslegu hagsmunirnir tengja saman stjórnmál, atvinnulíf, auglýsendur og fjölmiðlarekstur?

    Það þarf ekki leynilegt samsæri til að slíkt kerfi verði sjálfverndandi.

    Það nægir að fjárhagslegt ósjálfstæði, hagsmunatengsl og nálægð við valdið fari smám saman að hafa áhrif á hvaða mál eru rannsökuð, hvaða spurningar eru spurðar og hvaða mál fá litla eða enga umfjöllun.

    Í litlu samfélagi eins og Íslandi er sérstaklega mikilvægt að gæta að þessari hættu.

    Fjölmiðlafrelsi felst ekki eingöngu í því að stjórnvöld láti ritstjórnir í friði. Það felst einnig í því að fjárhagsleg og pólitísk hagsmunatengsl takmarki ekki raunverulegt sjálfstæði þeirra.

    Stjórnvöld segja markmið breytinganna vera að styrkja íslenskt fjölmiðlaumhverfi og draga úr samkeppnislegum yfirburðum RÚV. Það er sjónarmið sem ber að skoða.

    En góð markmið duga ekki ein og sér.

    Birta þarf skýrt hverjir fá fjármagnið, hversu háar greiðslurnar verða, hvernig þeim verður úthlutað og hvort fyrirkomulagið stuðli í reynd að fjölbreytni eða samþjöppun.

    Það þarf líka að tryggja að breytingar á RÚV skerði ekki fréttaþjónustu, menningarumfjöllun, aðgengi almennings eða sjálfstæða rannsóknarblaðamennsku.

    Lýðræðið þarf ekki fjölmiðla sem verja valdakerfið fyrir almenningi. Það þarf fjölmiðla sem verja almenning fyrir misbeitingu valds.

    Þetta á jafnt við um RÚV og einkarekna fjölmiðla.

    Enginn fjölmiðill á að vera hafinn yfir gagnrýni. Enginn stjórnmálamaður á að geta keypt sér frið fyrir aðhaldi með opinberu fjármagni. Og enginn stórfyrirtækjaeigandi á að geta litið á ritstjórn sem framlengingu eigin viðskiptahagsmuna.

    Það er ekki nóg að fjölmiðlar séu margir að nafninu til ef fjárhagsleg völd og áhrif safnast á sífellt færri hendur.

    Spurningin er því ekki aðeins hver á fjölmiðlana. Hún er líka hver fjármagnar þá, hver ákveður skilyrðin og hver hefur eftirlit með þeim sem eiga að hafa eftirlit með valdinu.

    Því þegar fjórða valdið hættir að veita hinum þremur aðhald er hættan sú að það verði ekki lengur varðhundur lýðræðisins — heldur fjórða varnarlína valdakerfisins.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár