Fleiri börnum skutlað í skólann

Færri börn í höf­uð­borg­inni löbbuðu í skól­ann í fyrra en árið áður og fleiri fóru í einka­bíl. Foreldri segir það mik­il­vægt í upp­eldi dóttur sinnar að hún hreyfi sig og læri að upp­lifa umhverfi sitt fót­gang­andi.

Fleiri börnum skutlað í skólann
Börn á leið í skóla Lægra hlut­fall barna notar virka ferða­máta á leið í skóla en árið 2023. Mynd: Golli

Samkvæmt ferða­venjukönnun umhverfis- og skipu­lags­sviðs Reykja­vík­ur­borgar og Gallup í fyrra gengu 53 pró­sent barna í grunn­skóla borg­ar­innar, en hlut­fallið var 56 pró­sent árið 2023.

Hlutfall þeirra sem fóru í einka­bíl hækk­aði úr 20 pró­sent í 24 pró­sent á milli ára og þá fóru 9 pró­sent barn­anna með strætó í skól­ann en aðeins 5 pró­sent árið 2023. Hlutfall þeirra sem hjól­uðu stóð í stað á milli ára og var 11 pró­sent.

Alls voru 67 pró­sent sem not­uðu svo­kall­aða virka ferða­máta, þ.e. að ganga eða hjóla, árið 2024 en sama hlut­fall var 74 pró­sent árið 2023. Þeim fækk­aði því sem nota virka ferða­máta en á móti fjölg­aði þeim sem ferð­uð­ust með strætó eða skóla­bíl.

Í Aðal­skipu­lagi Reykja­víkur kemur fram mark­mið um að hlut­fall ferða á bíl verði 50 pró­sent fyrir árið 2040. „Virkir ferða­mátar styðja við bætta lýð­heilsu íbúa í borg­inni,“ sagði í til­kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar þegar könn­unin var kynnt. „Breyting á ferða­venjum …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár