Vilja vísa strandveiðifrumvarpi frá

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks, Mið­flokks og Fram­sókn­ar­flokks vilja stöðva áform rík­is­stjórn­ar­innar um að tryggja 48 veiði­daga til strand­veiða í ár. Á meðan heldur mál­þóf um veiði­gjöld áfram á Alþingi og Íslands­met í ræðu­höldum við það að falla.

Vilja vísa strandveiðifrumvarpi frá
Vilja vísa frum­varpi frá Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks, Mið­flokks og Fram­sókn­ar­flokks segja frum­varp um strand­veiðar unnið of hratt og ógna sjálf­bærni nytja­stofna við Ísland.

Minni hluti í atvinnu­vega­nefnd vill vísa frum­varpi um strand­veiðar aftur til rík­is­stjórnar. Frum­varpið á að tryggja 48 veiði­daga til strand­veiða í ár.

Undir til­lög­una skrifa Njáll Trausti Frið­berts­son og Jón Gunn­ars­son, þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks. Þórarinn Ingi Pét­urs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks og áheyrn­ar­maður í nefnd­inni er einnig sam­þykkur til­lög­unni.

Þeir gagn­rýna að málið hafi verið unnið hratt og lít­ill tími til að gefa umsagn­ar­að­ilum færi á að koma með athuga­semdir. „Ef það verður að lögum verður ráð­herra veitt víð­tæk heim­ild til að ráð­stafa við­bót­arafla­magni til strand­veiða umfram þær skorður sem Haf­rann­sókna­stofnun setur og ákveðið er með lög­bund­inni afla­reglu stjórn­valda,“ segir í til­lög­unni. „Það væri frá­vik frá skýrum við­miðum um verndun fisk­stofna og skyn­sam­lega nýt­ingu sjáv­ar­auð­linda og gengi gegn mark­miðum laga um stjórn fisk­veiða.“

Þeir leggja því til að málið fari aftur fyrir rík­is­stjórn.  „Með því að lög­festa ráð­stöfun afla­magns sem gengur gegn ráð­gjöf Haf­rann­sókna­stofn­unar og afla­reglu stjórn­valda er hætta á því að grafið verði undan sjálf­bærni­vottun íslensks sjáv­ar­út­vegs,“ segir í til­lög­unni. „Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi vör­uðu við því í umsögn sinni að það kynni að hafa áhrif á mark­aðs­að­gengi, verð og traust neyt­enda á íslenskum sjáv­ar­af­urðum. Alþjóð­legar vott­anir byggj­ast á traustri og gagn­særri fisk­veiði­stjórn en ekki póli­tískum ákvörð­unum sem fara í bága við ráð­gjöf sér­fræð­inga.“

Íslandsmetið að falla

Málið er ekki það eina sem varðar fisk­veiðar sem Alþingi er með til umfjöll­unar nú en í dag stendur yfir umræða um fyr­ir­hug­aðar hækk­anir rík­is­stjórn­ar­innar á veiði­gjöldum. Áður­nefndur Njáll Trausti mun í dag flytja sína 60. ræðu um málið en þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks hafa sagts ætla að ræða málið eins lengi og þarf til að stöðva það.

Lengsta umræða á Alþingi síðan þingið var sam­einað í eina mál­stofu árið 1991 var um þriðja orku­pakk­ann árið 2019. Stóð hún í 147 klukku­stundir. Veiði­gjalda­frum­varpið kemur þar næst á eftir og hafði í gær verið rætt í 142 klukku­stundir.

Umræðan um málið hófst kl. 10 í dag og má því búast við að Íslands­metið falli á næstu klukku­tímum og veiði­gjalda­um­ræðan verði sú tíma­frekasta í sögu Alþingis í núver­andi mynd.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár