Rannsóknin á Samherja snerist um meira en viðskipti með karfa og hófst fyrir 2012

Þor­steinn Már Bald­vinssson, for­stjóri Samherja, stillir rann­sókn Seðla­bank­ans á félag­inu upp sem skipu­lagðri árás RÚV og bank­ans á félagið. Hann vill líka meina að rann­sóknin hafi bara snú­ist um útflutn­ing á karfa og verð­lagn­ingu hans. Rann­sóknin var hins vegar stærri og víð­feðm­ari en svo.

Rannsóknin á Samherja snerist um meira en viðskipti með karfa og hófst fyrir 2012
Rann­sóknin hófst árið 2009 Seðla­bank­inn, sem þá laut Svein Harald Oygard, byrj­aði fyrst að velta fyrir sér Samherja og við­skiptum félags­ins árið 2009. Már Guð­munds­son varð svo seðla­banka­stjóri og bank­inn réðst í hús­leit hjá Samherja árið 2012. Mynd: Pressphotoz

Seðla­banka­málið svo­kall­aða, rann­sókn bank­ans á útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja, er umfangs­meiri en Samherji vill vera láta og nær rann­sókn þess lengra aftur í tím­ann en til umfjöll­unar Kast­ljóss­ins á RÚV um málið. Þetta má lesa í þeim gögnum sem fyrir liggja um málið. 

Í við­tali á þætt­inum Sprengisandi sunnu­dag­inn 16. ágúst sagði Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og stærsti eig­andi Samherja, að heim­ildir um að Seðla­banki Íslands hafi hafið rann­sókn á Samherja fyrir febr­úar 2012 séu „eft­irá­skýr­ingar“ og að sann­leik­ur­inn sé sá að Rík­is­út­varpið og Seðla­banki Íslands hafi í sam­ein­ingu ráð­ist að félag­inu með skipu­lögðum hætti. 

Þor­steini Má er einnig mikið í mun að stilla mál­inu upp þannig að það hafi bara snú­ist um lítið magn af við­skiptum með karfa innan sam­stæðu Samherja.  „Þetta er algjör með­afli sem fæst í mörgum hollum og verið að flytja þennan afla á milli kara og svo­leiðis. Þetta er ekki neitt sem skiptir máli. Ætla menn virki­lega …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár