Segja Swapo-flokkinn hafa fengið greiðslur frá Samherja

Blaðið The Namibian segir Samherja hafa greitt stjórn­ar­flokki Namibíu háar upp­hæðir. Forseti lands­ins, Hage Geingob, hefur þver­tekið fyrir það og segir auk þess fyrrum ráð­herra sem sitja í gæslu­varð­haldi vera sak­lausa.

Segja Swapo-flokkinn hafa fengið greiðslur frá Samherja
Hage Geingob Forseti Namibíu og leið­togi Swapo flokks­ins segir ráð­herrana fyrr­ver­andi vera sak­lausa.

Swapo flokk­ur­inn, sem hefur verið ráð­andi í stjórn­málum Namibíu um ára­tuga skeið, fékk greiðslur frá útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja sam­kvæmt umfjöllun blaðs­ins The Namibian í dag. „Millj­ónir voru greiddar inn á reikn­ings sem Swapo stjórnar,“ að því er fram kemur í blað­inu.

Heim­ildir blaðs­ins herma að greiðslur inn á reikn­ing Swapo flokks­ins hafi átt sér stað árið 2017, skömmu fyrir lands­þing flokks­ins. Greiðsl­urnar hafi farið fram í gegnum lög­manns­stofu.

Full­yrð­ing blaðs­ins stang­ast á við orð Hage Geingob, for­seta Namibíu og leið­toga Swapo flokks­ins. Á fundi í höf­uð­stöðvum flokks­ins í Windhoek í gær varði hann flokk sinn fyrir ásök­unum þess efnis að flokk­ur­inn tengd­ist spill­ing­ar­málum sem snúa að úthlutun fisk­veiði­kvóta og mútu­greiðslum tengdum því. „Swapo flokk­ur­inn fékk engar beinar greiðslur,“ sagði Geingob á fund­inum.

Eins og Stundin, Kveikur, Al Jazeera og Wikileaks greindu frá í fyrra sýna gögn hvernig Sam­herji greiddi skipu­lega hund­ruð millj­óna króna í mút­ur til stjórn­mála­manna og tengdra að­ila í Namib­íu, til að fá hesta­makríl­kvóta sem lagði grunn að stór­um hluta hagn­aði fé­lags­ins und­an­far­in ár. Hagn­að­ur­inn og mútu­greiðsl­urn­ar runnu í gegn­um net skatta­skjóla.

Fyrrum ráð­herrar flokks­ins, Sacky Shang­hala og Bernhard Esau, sitja nú í gæslu­varð­haldi vegna máls­ins. „Ég held ekki að þeir séu sekir,“ sagði Geingob. „Þeir hafa ekki verið fundnir sekir enn sem komið er. Ég hélt að það væri það sem við köllum „sak­laus uns sekt er sönnuð“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár