Sviðsljósið eltir Prins uppi

Davíð Aron Guðnason segir að hest­ur­inn Prins veki þannig athygli að hann sé ítrekað ljós­mynd­aður og þær myndir birtar í blöðum.

Sviðsljósið eltir Prins uppi
Byrjaði fyrir tíu árum Davíð Aron dróst inn í hesta­mennsk­una fyrir tíu árum með syni sínum. Prins keypti hann óséðan fyrir dóttur sína.

Ég byrj­aði nú bara í hesta­mennsk­unni fyrir tíu árum eða svo. Strák­ur­inn minn byrj­aði í reið­skóla og svo lang­aði hann að eign­ast hest og ég dróst bara inn í þetta með honum. Við fundum góðan barna­hest og leigðum hest­hús­pláss. Nú er strák­ur­inn minn hættur í þessu, eða hann er nú bara kom­inn í nám erlendis, svo ég er núna í hesta­mennsk­unni með stelp­unum mínum. Lengst af var ég með hest­hús í Víði­dalnum en er nýlega fluttur í Mos­fells­bæ­inn og á hest­hús þar núna.

Ég er bara búinn að eiga Prins í nokkra daga, ég var að kaupa hann sem barna­hest handa stelp­unni minni. Það er erfitt að finna hesta sem henta fyrir börn þannig að ég var hepp­inn að finna hann. Svo er hann líka svo skemmti­legur á lit­inn, hann er jarp­vind­óttur sem er sjald­gæfur litur. Ég veit ekki hvort það fylgir hest­inum sér­stak­lega eða hvað en þegar ég keypti hest­inn, óséðan, þá benti sá sem seldi mér hann á að það hefði verið mynd af honum á for­síðu Bænda­blaðs­ins í byrjun júní. Svo kom ljós­mynd­ar­inn frá ykkur og smellti mynd af honum þannig að það virð­ist vera að sviðs­ljósið leiti Prins uppi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár