Grímur svarar ekki hvort Bláa lónið varpi 675 milljóna launakostnaði á ríkið

Bláa lónið sagði upp 403 starfs­mönnum í morgun. Geta látið ríkið greiða 85 pró­sent laun­anna á upp­sagn­ar­fresti. Ætlaður kostn­aður sem Bláa lónið myndi spara sér með því er 225 millj­ónir á mánuð.

Grímur svarar ekki hvort Bláa lónið varpi 675 milljóna launakostnaði á ríkið
Hefur ekki svarað Grímur Sæmund­sen hefur ekki svarað því hvort Bláa lónið láti ríkið greiða laun starfs­manna sinna á upp­sagn­ar­fresti. Mynd: Kristinn Magnússon

For­stjóri Bláa lóns­ins, Grímur Sæmund­sen, hefur ekki svarað þeirri spurn­ingu hvort Bláa lónið sé að varpa allt 675 millj­óna króna ætl­uðum launa­kostn­aði yfir á rík­is­sjóð næstu þrjá mán­uð­ina. Grímur hefur ekki svarað erindum Stund­ar­innar: Ekki sím­hring­ingum og ekki tölvu­póstum né SMS-um.

Bláa lónið til­kynnti um upp­sagnir 403 starfs­manna sinna í morgun.

Í gær, á Alþingi, skil­aði efna­hags- og við­skipta­nefnd breyt­ing­ar­til­lögum við laga­frum­varp um aðkomu rík­is­sjóðs að greiðslu launa starfs­manna á upp­sagn­ar­fresti vegna áhrifa COVID-19. Frum­varpið mun að öllu óbreyttu verða að lögum og mun gilda aft­ur­virkt frá 1. maí.  Til stendur að Bláa lónið opni aftur 19. júní.

Eins og Stundin greindi frá í lok mars þá hafa hlut­hafar Bláa lóns­ins tekið 12 millj­arða króna í arð út úr fyr­ir­tæk­inu á síð­ustu árum. Bláa lónið hefur verið eitt arð­bærasta fyr­ir­tæki lands­ins. Þrátt fyrir þetta setti Bláa lónið starfs­menn sína á hluta­bætur sem ríkið greiddi.

Kostn­aður rík­is­ins við að greiða launa­kostnað Bláa lóns­ins á hluta­bóta­leið­inni var tæp­lega 186 millj­ónir króna í mars og apríl. Þetta er rúm­lega 1,5 pró­sent af arð­greiðslum fyr­ir­tæk­is­ins síð­ast­liðin ár. 

Þegar litið er kostn­aður rík­is­ins vegna hluta­bóta­leið­ar­innar og Bláa lóns­ins sést hversu ætl­aður kostn­aður vegna greiðslu launa á upp­sagn­ar­fresti er miklu meiri. Ef það er svo að Bláa lónið muni nýta þetta úrræði. 

Arð­greiðslur Bláa lóns­ins 2012 til 2019Bláa lónið nýtti hluta­bóta­leið­ina í mars og apríl og spar­aði sér 186 millj­óna króna launa­kostnað. Hlut­hafar félags­ins hafa tekið tólf millj­arð í arð.

225 milljónir á mánuði

Samkvæmt árs­reikn­ingi Bláa lóns­ins fyrir 2018 námu með­al­laun starfs­manna Bláa lóns­ins 657 þús­und krónum á mán­uði það ár.

Ef þessi upp­hæð er notuð til að finna út þá ætl­uðu upp­hæð sem Bláa lónið sparar sér á mán­uði ef fyr­ir­tækið er að nýta þetta úrræði þá er um að ræða 225 millj­ónir króna á mán­uði. Yfir þriggja mán­aða tíma­bil, sem er lög­bund­inn upp­sagn­ar­frestur fast­ráð­inna starfs­manna nema að um annað sé samið, er um að ræða 675 millj­ónir króna sem fyr­ir­tækið sparar sér. 

Tekið skal fram að ekki hefur gengið að ná tali af Grími Sæmund­sen til að spyrja hann um þetta atriði, hvort fyr­ir­tækið er að nýta sér þetta úrræði eða ekki. En þetta eru ætl­aðar afleið­ingar af því fyrir Bláa lónið og rík­is­sjóð ef svo er.

Samkvæmt úrræð­inu greiðir rík­is­valdið 85 pró­senta launa starfs­fólks sem og launa­tengd gjöld þeirra upp að ákveð­inni upp­hæð. 

Geta krafist vinnuframlags

Bláa lónið getur kraf­ist vinnu­fram­lags frá þeim starfs­mönnum sem sagt hefur verið upp eins og gengur yfir­leitt í slíkum aðstæðum.  Ef Bláa lónið er að nota rík­is­styrk­ina til þess að greiða laun þeirra á upp­sagn­ar­fresti þá mun ríkið þurfa að greiða laun starfs­mann­anna sem eru að vinna fyrir hlut­hafa Bláa lóns­ins næstu þrjá mán­uð­ina. 

„Það er eit­hvað sem auð­vitað mun koma til skoð­unar út frá því hvað áfallið verður mikð og hvað þetta ástand varir lengi“

Eftir þetta getur Bláa lónið mögu­lega ráðið starfs­menn­ina aftur í vinnu og þá staðið sjálft fyrir greiðslu launa þeirra að fullu. Bláa lónið tekur það sér­stak­lega fram í til­kynn­ing­unni að vonir standi til að geta ráðið starfs­fólkið aftur í vinnu. „Mark­mið þeirra aðgerða sem Bláa Lónið hef­ur nú gripið til er að gera fyr­ir­tæk­inu kleift að kom­ast í gegn­um þá óvissu­tíma sem framund­an eru. Bláa Lónið, sem leið­andi fyr­ir­tæki í ís­lenskri ferða­þjón­ustu, ætl­ar sér að taka þátt í við­spyrnu grein­ar­inn­ar af full­um krafti þegar birta tek­ur að nýju,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Ekki borist fréttir um meira fé í reksturinn

Í sam­tali við Stundina í lok mars sagði Grímur Sæmund­sen, aðspurður um hvort hlut­haf­arnir í Bláa lón­inu setji ekki meira fé inn í félagið í ljósi þess hvað þeir hafa tekið mikið út úr því í gegnum árin: „Það er eit­hvað sem auð­vitað mun koma til skoð­unar út frá því hvað áfallið verður mikð og hvað þetta ástand varir lengi. Þetta er alveg for­dæma­laust ástand og óvissan um fram­tíð­ina er svo mikil.“ 

Í til­kynnng­unni um upp­sagn­irnar í morgun sagði hins vegar að áfallið vegna COVID-19 væri svo mikið að upp­sagn­irnar þyrftu að eiga sér stað. „Bláa Lónið hef­ur gripið til aðgerða til að bregð­ast við mikl­um sam­drætti og óvissu í ferða­þjón­ustu næstu miss­eri. Nú er orðið ljóst að áhrif­in af Covid-19 eru miklu um­fangs­meiri og lang­vinn­ari en vænt­ing­ar voru um.“

Þrátt fyrir þetta, og þrátt fyrir ívitnuð orð Gríms hér að ofan, hafa ekki borist fréttir þess efnis að eig­endur Bláa lóns­ins hafi sett meira fé í rekst­ur­inn.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár