Félag um foreldrajafnrétti lýsir stuðningi við Dofra í kjölfar „árása“ dætranna

„Stjórn Félags um for­eldra­jafn­rétti ítrekar að dætur Dofra eiga rétt á sínum eigin sjón­ar­miðum. Við vonum einnig að almenn­ingur átti sig á því að árás­irnar á hendur honum eru dæmi­gerðar fyrir þá sem stíga fram í bar­átt­unni gegn for­eldra­úti­lokun,“ segir Brjánn Jónsson vara­for­maður félags­ins.

Félag um foreldrajafnrétti lýsir stuðningi við Dofra í kjölfar „árása“ dætranna

Félag um for­eldra­jafn­rétti hefur sent frá sér­stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við for­mann­inn, Dofra Her­manns­son, þar sem talað er um við­tal við dætur hans sem opin­bera árás gegn honum. Yfir­lýs­ingin er send út í kjöl­far þess að dóttir og stjúp­dóttir Dofra, þær Kolfinna og Katrín Arn­dís­ar­dætur, stigu fram til þess að segja sína hlið mála, meðal ann­ars að þær hefðu upp­lifað and­legt ofbeldi í sam­skiptum við Dofra og því slitið þeim að sjálfs­dáðum.

Félagið segir hins vegar í yfir­lýs­ingu sinni að frá­sögn dætra Dofra skorti rök­stuðn­ing. „Ásakanir af þessu tagi sem settar eru fram án rök­stuðn­ings eru því miður reynsla margra for­eldra sem leita til félags­ins eftir hjálp,“ segir í yfir­lýs­ing­unni til stuðn­ings for­mann­inum.

Félagið, sem áður hét Félag ábyrgra feðra, hefur barist fyrir auk­inni við­ur­kenn­ingu á kenn­ingu um „for­eldrafirr­ingu“, sem felur í sér að barni sé snúið gegn for­eldri sínu.

Vísar til eigin reynslu í baráttunni

Dofri hefur sem for­maður félags­ins vísað til eigin reynslu og haldið því fram opin­ber­lega að Kolfinna og Katrín hafi slitið sam­skiptum við föður sinn og stjúp­föður vegna þess að móðir þeirra hafi „mark­visst eitrað sam­band“ þeirra við hann og byggt bar­áttu sína á því. Í við­tali í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar greindu Kolfinna og Katrín hins vegar frá því að þær hefðu sjálfar tekið ákvörðun um að slíta sam­skiptum við Dofra vegna meið­andi sam­skipta sem haldið hafi áfram fram á full­orð­insár. Þær eru 21 og 28 ára gamlar í dag.

Dofri er for­maður Félags um for­eldra­jafn­rétti og sem slíkur á hann sæti í jafn­rétt­is­ráði, sem á að vera ráð­gef­andi varð­andi stefnu­mótun rík­is­ins í jafn­rétt­is­málum.

Sagði frásögn dætranna „uppdikterað tilfinningaklám“

Áður hafði vara­for­maður félags­ins, Brjánn Jónsson, sem nú skrifar undir stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing­una fyrir hönd félags­ins, afgreitt frá­sögn Katrínar og Kolfinnu sem „upp­dikt­erað til­finn­inga­klám“ í umræðum um við­talið í hópi #DaddyToo á Facebook, sem er and­svar for­ræð­is­lausra feðra við #metoo-hreyf­ing­unni. 

Í yfir­lýs­ing­unni segir að félagið sé með­vitað um ásak­anir á hendur Dofra um and­legt ofbeldi en slíkt sé vel þekkt hjá þeim sem lenda í erf­iðum skiln­aði þar sem börn verða bit­bein og máls­að­ilar í deilum for­eldra. Dofri sé þekktur leið­togi, störf hans séu óþreyt­andi og honum beri að hrósa fyrir skuld­bind­ingu sína. „Stjórn Félags um for­eldra­jafn­rétti ítrekar að dætur Dofra eiga rétt á sínum eigin sjón­ar­miðum. Við vonum einnig að almenn­ingur átti sig á því að árás­irnar á hendur honum eru dæmi­gerðar fyrir þá sem stíga fram í bar­átt­unni gegn for­eldra­úti­lokun og eru í þágu for­eldr­is­ins sem beitir úti­lokun, en þar er um að ræða alvar­lega sál­ræna mis­notkun á börnum sem veldur þeim var­an­legu tjóni. Opinber árás af þessu tagi dregur ekki úr orðnum skaða og er þetta því eina yfir­lýs­ingin sem félagið mun senda frá sér um málið. Dofri heldur áfram að leiða Félag um for­eldra­jafn­rétti með reisn og virð­ingu fyrir börnum og nýtur til þess fulls trausts stjórnar.“

„Sjúkdómur í fjölskyldunni“

Dofri valdi að bregð­ast hvorki við nafn­lausri yfir­lýs­ingu dætr­anna sem birt­ist fyrst á Líf án ofbeldis, né fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um ákveðin efn­is­at­riði. Þess í stað veitti hann Kvenna­blað­inu við­tal þar sem hann ítrek­aði að hann hefði misst sam­band við dætur sínar vegna „for­eldra­úti­lok­unar“ í kjöl­far skiln­aðar, það væri eins og barn­inu hans „hefði verið rænt“, eins og „það væri sjúk­dómur í fjöl­skyld­unni“. Eftir að við­talið við Kolfinnu og Katrínu birt­ist á Stund­inni, þar sem þær sögð­ust meðal ann­ars stíga fram í von um að hann léti þær í friði og greindu frá því að fram­ganga hans á opin­berum vett­vangi hefði haft slæm áhrif á vel­ferð þeirra, sendi hann frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann fór fram á að byggja upp sam­band við þær að nýju.

„Ég á mér þá einu ósk að það sé hægt að leggja til hliðar sár­indi og byggja upp sam­band að nýju.“

Dofri sendi frá sér yfir­lýs­ingu eftir að Katrín og Kolfinna sögðu sögu sína í Stund­inni, þar sem hann kvaðst hafa gert „ýmis mis­tök“ en fór fram á að þær tækju aftur upp sam­band við föður sinn: „Mér þykir sárt að þær upp­lifi bar­áttu mína fyrir að halda sam­bandi við þær sem and­legt ofbeldi gagn­vart sér. Ég hef gert ýmis mis­tök, flest í örvænt­ingu yfir að vera að missa þær. Ég hef beðið þær fyr­ir­gefn­ingar á þeim og geri það aftur hér. Ég á mér þá einu ósk að það sé hægt að leggja til hliðar sár­indi og byggja upp sam­band að nýju.“

Fyrr í morgun sendu stjórn­ar­konur Félags um for­eldra­jafn­rétti frá sér aðra yfir­lýs­ingu þar sem þær gerðu „alvar­legar athuga­semdir“ við frétta­flutn­ing Stund­ar­innar, þar sem umfjöllun Stund­ar­innar hafi skaðað við­leitni félags­ins um að fræða almenn­ing um það ofbeldi sem felst í for­eldra­úti­lokun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár