Mynd: Kristinn Magnússon

Konan mín beitti mig ofbeldi

„Þegar talað er um heim­il­is­of­beldi er yfir­leitt verið að lýsa svo svaka­lega ljótum hlutum þar sem sterkir menn berja litlar konur í buff. Þetta var ekk­ert í lík­ingu við það. En þetta var samt hræði­legt,“ segir Dofri Her­manns­son. Hann seg­ist hafa búið í sextán ár með konu sem hafi beitt and­legu og lík­am­legu ofbeldi. Eftir skilnað hafi hann viljað leggja það að baki sér, en nú sé hann að missa sam­bandið við eldri börnin og það geti hann ekki sætt sig við.

Ég á erfitt með að ræða ofbeldið. Það eru margir sem trúa mér ekki. Af því að þetta gerð­ist aldrei fyrr en það var búið að loka úti­dyr­unum,“ segir Dofri Her­manns­son, leik­ari og stjórn­mála­maður, sem var sextán ár í sam­bandi með konu sem hann segir að hafi beitt sig bæði and­legu og lík­am­legu ofbeldi á meðan á hjóna­band­inu stóð. Fram­burður hans fær meðal ann­ars stoð í gögnum barna­verndar, þar sem sál­fræð­ingur sem þau voru hjá stað­festir að hún hafi beitt Dofra ofbeldi. 

Sjálf sagði konan hins vegar í við­tali við barna­vernd að þessar ásak­anir væru frá­leitar, en hún vildi ekki tjá sig við blaða­mann þegar eftir því var leitað. Í yfir­lýs­ingu frá henni segir að frá­sögn Dofra sé ekki sann­leik­anum sam­kvæmt. „Af til­lits­semi við dætur okkar mun ég ekki koma með frek­ari við­brögð við þeirri umfjöllun sem nú birt­ist.“

Eftir skilnað hefur Dofri misst sam­band við eldri stelp­urnar tvær og ótt­ast hvað verður með þá yngstu, sem er fimm ára. Þær hafa báðar lokað á hann. Ástæðuna rekur hann til sam­skipta móð­ur­innar við bæði börnin og föð­ur­fjöl­skyld­una, en hann telur að börnin hafi verið sett í veru­lega holl­ustuklemmu og við því séu engin úrræði. Það er ástæðan fyrir því að hann stígur fram núna.

Ekki vegna þess að hann vilji standa í stríði, segir hann, heldur vegna þess að hann vill bara fá að vera pabbi stelpn­anna sinna í friði en sé orð­inn ráða­laus. „Það líður aldrei sá dagur að ég hugsi ekki um ástandið. Ég hugsa um það oft á dag. Frá því að ég vakna á morgn­ana líða aldrei meira en fimm sek­úndur þar til ég man allt og þetta er það síð­asta sem ég hugsa um á kvöldin. Það rífur úr mér hjartað að hugsa um það hvernig búið er að eitra sam­bandið við báðar stelp­urnar og hvað verði með þá yngri. Ég hef aldrei grátið jafn mikið og und­an­farin tvö ár. Ef ætl­unin var að valda sorg og kvíða þá hefur það tek­ist, ekki bara hjá mér heldur allri stór­fjöl­skyld­unni, afa þeirra og ömmu, frændum þeirra og frænkum. En á end­anum eru það stelp­urnar sem greiða gjaldið fyrir þessa hefnd.“

Heillaðist af henni   

Það var árið 1997 sem Dofri kynnt­ist fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni, sem var svo klár, fal­leg og skemmti­leg að hún heill­aði hann upp úr skónum. Eftir nokkrar vikur ákvað hann hins vegar að hvíla sam­bandið þar sem hún hafði átt það til að reið­ast mjög mikið af litlu til­efni, að hans sögn. Það leið þó ekki á löngu þar til þau voru farin að draga sig saman á ný. „Mig lang­aði í alvöru 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár