Flokkur

Blaðamannaverðlaun 2016

Greinar

Konan mín  beitti mig ofbeldi
Viðtal

Konan mín beitti mig ofbeldi

„Þegar talað er um heim­il­is­of­beldi er yfir­leitt verið að lýsa svo svaka­lega ljótum hlutum þar sem sterkir menn berja litlar konur í buff. Þetta var ekk­ert í lík­ingu við það. En þetta var samt hræði­legt,“ segir Dofri Her­manns­son. Hann seg­ist hafa búið í sextán ár með konu sem hafi beitt and­legu og lík­am­legu ofbeldi. Eftir skilnað hafi hann viljað leggja það að baki sér, en nú sé hann að missa sam­bandið við eldri börnin og það geti hann ekki sætt sig við.
Þetta er það sem Illugi talar ekki um
FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Þetta er það sem Illugi talar ekki um

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra gerir eins lítið og hann getur úr aðkomu sinni og mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins að skipu­lagn­ingu Kína­ferð­ar­innar sem Orka Energy var þátt­tak­andi í nú í mars. Af svari Illuga að dæma kom frum­kvæðið að heim­sókn­inni alfarið frá kín­verskum stjórn­völdum og utan­rík­is­ráðu­neytið sá um nán­ast alla skipu­lagn­ingu. Sann­leik­ur­inn er hins vegar ekki alveg svo ein­faldur eins og sést í gögnum og upp­lýs­ingum um heim­sókn­ina.
Ósamræmi í skýringum Illuga og í gögnum um samstarf við Orku Energy
FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Ósamræmi í skýr­ingum Illuga og í gögnum um sam­starf við Orku Energy

Illugi Gunn­ars­son svar­aði spurn­ingum um Orku Energy málið á Alþingi í gær. Gerði lítið úr aðkomu mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins að sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu sem hann und­ir­rit­aði við kín­verska ríkið þar sem Orka Energy er hluti af sam­komu­lag­inu. Mennta­mála­ráðu­neyti Illuga ákvað að vilja­yf­ir­lýs­ingin yrði gerð sem og að Orka Energy yrði fram­kvæmd­ar­að­ili rík­is­ins í sam­vinn­unni við Kína. Illugi sagði hins vegar að gerð vilja­yf­ir­lýs­ing­ar­innar hefði ekki átt sér stað innan ráðu­neytis hans.
Stúlka kærð  fyrir að kæra lögreglumann fyrir nauðgun
Fréttir

Stúlka kærð fyrir að kæra lög­reglu­mann fyrir nauðgun

Tanja M. Ísfjörð leit­aði til lög­regl­unnar eftir heim­sókn á hót­el­her­bergi eldri manns sem hún þekkti og treysti, en hann var fyrr­ver­andi öku­kenn­ari hennar og starf­aði fyrir lög­regl­una. Hún kærði hann fyrir nauðgun, en eftir að rík­is­sak­sókn­ari vís­aði mál­inu frá kærði mað­ur­inn hana fyrir rangar sak­ar­giftir. Málið er til með­ferðar hjá lög­reglu.
Orka Energy komst í „stjórnskipulega stöðu“ í Kína út af ákvörðun Illuga
FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Orka Energy komst í „stjórn­skipu­lega stöðu“ í Kína út af ákvörðun Illuga

Utan­rík­is­ráðu­neytið rök­styður ákvörðun Illuga Gunn­ars­sonar um að skipa Orku Energy sem fram­kvæmd­ar­að­ila íslenska rík­is­ins í Kína. Einungis rík­is­fyr­ir­tæki með „stjórn­skipu­lega stöðu“ skipuð sem fram­kvæmd­ar­að­ilar fyrir hönd rík­is­ins en á þessu var gerð breyt­ing í til­felli Orku Energy. Ráðu­neytið getur ekki gefið eitt annað dæmi um til­felli þar sem einka­fyr­ir­tæki urðu fram­kvæmd­ar­að­ilar erlendis.

Mest lesið undanfarið ár