Illugi keypti sér raðhús og flytur úr íbúð Hauks

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra hættir að vera leigu­taki Hauks Harð­ar­sonar, stjórn­ar­for­manns Orku Energy. Ráð­herr­ann seldi Hauki íbúð sína á Rán­ar­götu og leigði hana af honum aftur. Íbúðin komst í hámæli í vor eftir Kínaferð Illuga og Orku Energy.

Flytur eftir mikla umfjöllun
Flytur eftir mikla umfjöllun Illugi Gunn­ars­son flytur nú úr íbúð sinni á Rán­ar­götu eftir að mikið hefur verið fjallað um íbúð­ina og sölu Illuga á henni til Hauks Harð­ar­sonar hjá Orku Energy. Mynd: Heiða Helgadóttir

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra hefur keypt sér nýja íbúð í Ljósa­landi í Foss­vog­inum í Reykja­vík og hættir því að leigja íbúð­ina á Rán­ar­götu sem mikið hefur verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum á árinu þar sem hún er í eigu Hauks Harð­ar­sonar, stjórn­ar­for­manns Orku Energy. Illugi Gunn­ars­son vann sem kunn­ugt er sem ráð­gjafi  fyrir Orku Energy þegar hann var í leyfi frá þing­störfum árið 2011 vegna athug­unar sér­staks sak­sókn­ara á við­skiptum Sjóðs 9 hjá Glitni þar sem Illugi sat i stjórn. Kaup­sam­ing­urin um nýju íbúð­ina, sem er rúm­lega 160 fer­metrar að stærð, er dag­settur þann 16. des­em­ber og ný veð­skulda­bréf eru dag­sett sama dag.  Svo stutt er síðan Illugi gekk frá kaup­unum á íbúð­inni að ekki er enn hægt að skoða kaup­samn­ing­inn og veð­skulda­bréfin á vef­síðu Láns­trausts.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Illugi Gunnarsson og Orka Energy

Fréttir

Sam­starfs­maður íslenska rík­is­ins not­aði þrjú félög í skatta­skjólum

Haukur Harð­ar­son, fjár­festir og stjórn­ar­for­maður Orku Energy, átti að minnsta kosti þrjú félög í skatta­skjólum sem hann not­aði í við­skiptum sínum fyrir og eftir hrun. Stýrir fyr­ir­tæki sem á í sam­starfi við íslenska ríkið í orku­málum í Kína og hefur Haukur nokkrum sinnum fundað með Ólafi Ragnari Gríms­syni, for­seta Íslands, vegna orku­mála. Einsdæmi er að einka­fyr­ir­tæki kom­ist í þá stöðu sem Orka Energy er í í Kína.
PistillIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Tvö hlið­stæð spill­ing­ar­mál en bara ein athugun á mútu­broti

Mál utan­rík­is­ráð­herra Sví­þjóðar, Margot Wallström, og mál Illuga Gunn­ars­sonar eru hlið­stæð að ýmsu leyti. Bæði leigðu íbúðir af eink­að­ilum af óljósum ástæðum. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur brugð­ist við í til­felli Wallström en eng­inn eft­ir­lits­að­ili hefur skoðað mál Illuga svo vitað sé. Af hverju stafar þessi munur á milli land­anna?
PistillIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Illugi gerir und­ir­menn sína sam­á­byrga

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra gerði und­ir­menn sína í mennta­mála­ráðu­neyt­inu sam­á­byrga við skipu­lagn­ingu á opin­berri heim­sókn til Kína þar sem Orka Energy var í við­skipta­sendi­nefnd hans. Starfs­menn ráðu­neyt­is­ins vissu ekki um við­skipti Illuga og stjórn­ar­for­manns Orku Energy. Einn af und­ir­mönnum Illuga í ráðu­neyti er Ásta Magn­ús­dóttir sem kom að skipu­lagn­ingu ferð­ar­innar til Kína en ómögu­legt hefur verið að ná í hana til að spyrja hana spurn­inga um ferð­ina.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár