Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra sagði ekki allan sannleikann í sumum svörum sínum við fyrirspurn Svandísar Svavarsdóttur Um Kínaferð hans á Alþingi í fyrrradag. Illugi gerir til að mynda miklu minna úr aðkomu menntamálaráðuneytisins að skipulagningu Kínaferðarinnar en efni standa til miðað við þær staðreyndir sem komið hafa fram um skipulagningu Kínaferðarinnar í fjölmiðlum og sem byggja á gögnum sem menntamálaráðuneytið hefur gert opinber um ferðina.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir