„Ég hef gert ýmis mistök“

Dofri Her­manns­son, for­maður Félags um for­eldra­jafn­rétti og full­trúi í jafn­rétt­is­ráði, segir sárt að dætur hans upp­lifi bar­áttu hans fyrir umgengni sem and­legt ofbeldi. Hann fer fram á að byggja upp sam­band við þær að nýju þótt þær hafi beðið hann um að láta sig í friði.

„Ég hef gert ýmis mistök“

Dofri Her­manns­son, for­maður Félags um for­eldra­jafn­rétti og full­trúi félags­ins í jafn­rétt­is­ráði, segir sárt að dætur sínar „upp­lifi bar­áttu hans fyrir að halda sam­bandi við þær sem and­legt ofbeldi gegn sér“.  Hann hafi gert ýmis mis­tök í sam­skiptum við þær, flest í örvænt­ingu yfir að vera að missa þær. Hann hafi beðist fyr­ir­gefn­ingar og geri það aftur núna.

Þetta kom fram í yfir­lýs­ingu sem hann sendi í kjöl­far þess að þær Kolfinna og Katrín Arn­dís­ar­dætur, dóttir og stjúp­dóttir Dofra stigu fram í Stund­inni og lýstu því hvers vegna þær ákváðu að slíta sam­skiptum við hann. Þar greindu þær frá miklu marka­leysi í sam­skiptum við Dofra og lýstu fram­göngu sem þær skil­greina sem and­legt ofbeldi, gas­lýs­ingu og til­finn­ga­lega kúgun. „Ég get ekki skilið hvað fær mann til að tala svona við barnið sitt, eða aðra mann­eskju yfir­höfuð. Þá ákvað ég að þetta væri komið gott. Það væri ekk­ert sem ég gæti gert til að laga sam­skiptin,“ sagði Kolfinna: „Þetta var orð­inn svo langur tími þar sem hann hafði komið illa fram við mig og ég ákvað að láta ekki ganga svona yfir mig lengur,“ sagði hún meðal ann­ars.

Lýstu markaleysi í samskiptum

Sögðu syst­urnar hann ekki hafa virt nein mörk sem þær settu honum, enn í dag sé hann að hafa sam­band þrátt fyrir að þær hafi beðið hann um að hætta því. Báðar sögð­ust þær hafa þurft að blokka síma­núm­erið hans en það hefði ekki dugað til því þá hafi hann hringt úr öðru núm­eri. „Hann hefur hringt í fólk mér nákomið og mætt óvænt í vinn­una til mín. Hann virti aldrei neitt sem ég sagði við hann,“ sagði Katrín.

„Ég upp­lifði þetta sem ofbeldi, vegna þess að þetta var gagn­gert gert til þess að sýna mér að hann myndi gera hvað sem er. Það skipti engu máli að ég segði nei. Þegar það er ítrekað ráð­ist svona inn á þitt per­sónu­lega svæði rænir það þig örygg­inu.“

Kolfinna tók undir það: „Engin mörk voru virt. Stundum mætti hann í vinn­una til mín. Hann fékk vak­taplanið hjá yfir­manni mínum sem vissi ekki að við værum ekki í sam­skiptum. Þá kom hann á kaffi­húsið þar sem ég var að vinna og sat þar,“ sagði Kolfinna.

Hann hefði jafn­vel komið óboð­inn inn á heim­ilið og valdið henni miklu óör­yggi með því. „Mér fannst brotið á mér þegar hann þving­aði sér inn á heim­ilið og fór ekki út þegar ég bað um það.“

Móðir þeirra fór fram á nálg­un­ar­bann, en því var hafnað. Fjöl­skyld­unni var ekki talin stafa ógn af honum vegna þess að það er engin saga um lík­am­legt ofbeldi. 

Báðu hann um að hættaKatrín og Kolfinna, stjúp­dóttir og dóttir Dofra, ákváðu að stíga fram og segja sína sögu sjálfar í stað þess að leyfa honum að skil­greina hana fyrir sig. Um leið báðu þær hann um að hætta.

Slæm áhrif á velferð þeirra

Engu að síður sögð­ust dæt­urnar upp­lifa fram­göngu hans sem ofbeldi. Hvað varðar fram­göngu hans á opin­berum vett­vangi sögð­ust þær upp­lifa við­töl sem hann hefur veitt og inn­sendar greinar frá honum sem áfram­hald­andi árásir: „Í raun var þetta megn­asta ofbeldi gegn okkur. Fram­ganga hans í fjöl­miðlum hefur haft gríð­ar­lega slæm áhrif á vel­ferð okkar,“ sagði Katrín.

„Fram­ganga hans í fjöl­miðlum hefur haft gríð­ar­lega slæm áhrif á vel­ferð okkar“

Eftir að hann sendi frá sér enn einn pistil­inn um for­eldra­úti­lokun, Leyfi til að elska, sem birt­ist á Vísi þann 25. apríl, hafi þær ákveðið að nú væri nóg komið. Þær sendu því frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þær greindu frá því að þær væru full­orðnar konur sem hefðu tekið sjálf­stæða ákvörðun um að slíta sam­skiptum við hann vegna fram­göngu hans. 

Það væri „með öllu óþol­andi að ofbeld­is­maður klæði sig í dul­ar­gervi sjálf­hverfs þol­anda og kalli eftir samúð almenn­ings.“

Kerfið hafi allt of oft brugð­ist börnum og þær væru að stíga fram í von um að hann hætti, sam­fé­lagið opni augun fyrir þess­ari teg­und af ofbeldi og að verk­legs­reglum innan kerf­is­ins verði breytt á þann veg að meira mark sé tekið á börnum sem greina frá óheil­brigðum aðstæðum. „Það er alltaf ein­hver sann­leikur og hann er yfir­leitt sá sem börnin segja,“ sagði Kolfinna.

Svaraði ekki spurningum 

Dofri valdi að bregð­ast ekki við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar í síð­ustu viku þar sem hann var inntur svara við ákveðnum atriðum í frá­sögn þeirra, svo sem því hvort hann hefði rætt við dætur sínar í aðdrag­anda skiln­að­ar­ins um að móðir þeirra væri veik á geði, líkt og Katrína og Kolfinna lýstu báðar. „Hann fór að tala mjög mikið um að mamma væri vond og að lokum um að hún væri geð­veik,“ sagði Katrín og Kolfinna sagð­ist muna mjög vel eftir þeim áhyggjum sem þessar umræður ollu henni. „Ég sat uppi með svo skrítna ábyrgð­ar­til­finn­ingu sem fylgdi því að þurfa að svíkja mömmu og segja honum frá því þegar ég var ósátt við hana af því að hann sagð­ist vera að hjálpa henni og þyrfti að vita allt sem væri í gangi. Þá sagði ég honum allt. Ekkert slæmt, en það var sett í svo slæmt sam­hengi.“ 

Sjálfur hafði hann áður stað­fest í við­tali sem hann veitti Stund­inni árið 2015 að Kolfinna hefði verið í upp­námi vegna slíkrar umræðu, en hafnað því að nokkuð væri til í því: „Dóttir mín hélt því fram að ég væri alltaf að tala um það við hana að mamma hennar væri geð­veik ofbeld­is­mann­eskja, sem er ekki satt. Ég hef aldrei haldið því fram að hún sé geð­veik,“ sagði Dofri þá. 

Eins valdi hann að svara ekki spurn­ingum um and­legt ofbeldi, marka­leysi og fyr­ir­sát. Sagðist hann vera upp­tek­inn, en ítrek­aði að hann hefði ekki átt í stríði við dætur sínar. Í yfir­lýs­ingu sem hann sendi síðan frá sér á sunnu­dag sagð­ist hann hafa gert ýmis mis­tök. Hann hefði beðist fyr­ir­gefn­ingar vegna þess og gerði það aftur núna.

Eins og barninu  hafi verið rænt

Áður hafði hann hafnað því að bregð­ast við nafn­lausri yfir­lýs­ingu frá dætr­unum sem birt­ist fyrst á Líf án ofbeldis, þar sem þær sögð­ust hafa slitið sam­skiptum við hann vegna „ofbeldis og ofríkis,“ en ekki vegna þess að þær hafi verið heila­þvegnar af móður sinni líkt og hann hefur byggt bar­áttu sína á.

Þess í stað veitti hann Kvenna­blað­inu við­tal þar sem hann ítrek­aði að hann hefði misst dætur sínar vegna „for­eldra­úti­lok­unar“ í kjöl­far skiln­aðar. Það væri eins og barn­inu hans „hafi verið rænt“, eins og það væri „sjúk­dómur í fjöl­skyld­unni“. „Það er mik­il­vægt að halda opinni umræðu um það ofbeldi sem for­eldra­úti­lokun er. Þetta er grafal­var­legt ofbeldi sem er að eyði­leggja líf fjölda fólks á hverjum ein­asta degi,“ sagði Dofri þá.

„Þetta er grafal­var­legt ofbeldi sem er að eyði­leggja líf fjölda fólks á hverjum ein­asta degi“

Sakaði hann móður dætr­anna að hafa beitt stelp­urnar ofríki og borið hat­urs­hug í hans garð. Afleið­ingar af slíku væri „alvar­leg holl­ustuklemma“ sem gerir það að verkum að börn eigi ekki ann­arra kosta völ en að slíta sam­skiptum.

Gerði hann lítið úr frá­sögn þeirra: „Ég trúi að upp­lifun eldri stelpn­anna sé sönn en ég veit líka fyrir víst að þær byggja hana á röngum upp­lýs­ingum. Það hvernig þær bregð­ast við passar alger­lega við lýs­ingu á börnum sem hafna öðru for­eldri sínu í kjöl­far for­eldra­úti­lok­unar.“

Nýtur stuðnings

Í máli Kolfinnu og Katrínu kom fram að Dofri ætti ekki erindi í jafn­rétt­is­bar­átt­una, hvað þá í jafn­rétt­is­ráð.  

„Um leið ég vissi að hann væri í jafn­rétt­is­ráði missti ráðið trú­verð­ug­leika sinn fyrir mér,“ sagði Katrín. „Maður sem hefur valdið fjöl­skyld­unni svona miklum skaða hefur ekk­ert í svona nefnd að gera. Ég skamm­ast mín fyrir hann að gera þetta.“

Hlutverk Jafn­rétt­is­ráðs er að starfa í nánum tengslum við Jafn­rétt­is­stofu og vera ráð­herra og fram­kvæmda­stjóra Jafn­rétt­is­stofu til ráð­gjafar við fag­lega stefnu­mótun í málum er tengj­ast jafn­rétti kynj­anna. Eftir hverjar kosn­ingar skipar ráð­herra ell­efu manna jafn­rétt­is­ráð, sem situr allt kjör­tíma­bilið.

„Ég skamm­ast mín fyrir hann að gera þetta.“

Félag um for­eldra­jafn­rétti er með heilan full­trúa á meðan Stígamót og Kvenna­at­hvarfið deila einu sæti, en fengu að auki vara­mann.

Kolfinna gagn­rýndi jafn­ramt að Félag um for­eldra­jafn­rétti hefði fyrr á árinu fengið styrk frá félags- og barna­mála­ráð­herra til að efla starfið. „Mér finnst hættu­legt að menn sem skekkja umræð­una svona svaka­lega séu komnir í áhrifa­stöðu.“

Ljóst er að Dofri nýtur stuðn­ings Félags um for­eldra­jafn­rétti. Vara­for­maður félags­ins, Brjánn Jónsson, afgreiddi frá­sögn Katrínar og Kolfinnu sem „upp­dikt­erað til­finn­inga­klám“ í umræðum um við­talið í hópi #DaddyToo á Facebook, sem er and­svar for­ræð­is­lausra feðra við #metoo-hreyf­ing­unni. „Við erum að berj­ast við per­sónu­leik­arask­anir en ekki kyn. En í nafni öfga­femín­isma má fórna konum, börnum og karl­mönnum fyrir mál­stað­inn. Þær telja það rétt mæðra að ræna börnum frá feðrum og horfa fram­hjá mæðrum sem lenda í því sama,“ sagði Brjánn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár