Myndband: Heiða Helgadóttir

Við segjum okkar sögu sjálfar

Kolfinna og Katrín Arn­dís­ar­dætur stíga hér fram í fyrsta sinn til þess að segja sögu sem er þeirra. Þær ætla ekki að sam­þykkja lengur að sagan sé skrifuð fyrir þær, af föður sem þær slitu sam­skiptum við vegna sam­skipta sem þær lýsa sem ofbeldi og ofríki.

„Við erum sjálf­stæðar ungar konur og getum sagt sjálfar frá,“ segja Katrín og Kolfinna Arn­dís­ar­dætur, sem sendu nýlega frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þær skýrðu frá því hvað lá að baki þeirri ákvörðun að þær slitu sam­bandi við föður sinn og stjúp­föður, Dofra Her­manns­son. 

Dofri er for­maður Félags um for­eldra­jafn­rétti, situr í jafn­rétt­is­ráði og er fyrr­ver­andi vara­borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar. Um ára­bil hefur hann rætt opin­ber­lega um for­eldra­úti­lokun og vísað til eigin reynslu í því sam­hengi, en hann heldur því fram að móðir þeirra hafi eitrað hug þeirra til hans og sett þær í holl­ustuklemmu sem olli því að þær slitu sam­skiptum við hann. Í kjöl­far þess að hann birti pistil­inn Leyfi til að elska á Vísi ákváðu syst­urnar að nú skyldu þær ekki þegja lengur heldur segja sína sögu. Yfir­lýs­ing þeirra birt­ist á Facebook-síðu sam­tak­anna Líf án ofbeldis, en nú stíga þær fram í fyrsta sinn undir nafni og mynd …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár