Úr draumaferðinni í stöðuga einveru

Enginn kemur að heim­sækja Guðnýju Helga­dóttur þessa dag­ana, því eng­inn vill smita hana af COVID-19. Hún kann því hins vegar alls ekki illa að vera ein með sjálfri sér.

Úr draumaferðinni í stöðuga einveru
Guðný Hún kann því ágæt­lega að vera ein, en passar sig að fara reglu­lega út að ganga. Mynd: Heiða Helgadóttir

Í febr­úar lét ég gamlan draum ræt­ast og ferð­að­ist um Víetnam og Kambódíu í góðum hópi fólks. Mig hefur langað á þessar slóðir í meira en 20 ár og hugs­aði alltaf með mér að ég yrði að fara áður en ég kveð þetta jarð­líf. 

Ferðin upp­fyllti allar mínar vonir og vænt­ingar, hún var ánægju­leg og fróð­leg í alla staði. Fyrsta orðið sem kemur upp í hug­ann þegar ég hugsa til baka er elsku­legt. Fólkið þarna er ein­stak­lega elsku­legt, þarna er svo fal­legt og mat­ur­inn ynd­is­lega góður. Við sigldum meðal ann­ars um Halong Bay-flóa og það var eins og að hverfa inn í mynda­albúm. 

Ég kom heim í lok febr­úar og hef verið í bæði skipu­lagðri og sjálf­skip­aðri sótt­kví síðan. Und­an­farnar vikur hef ég tekið einn dag í einu og mingla ekki mikið við umheim­inn. Ég held ég hafi aldrei verið eins mikið ein með sjálfri mér og ég kann því satt að segja ekk­ert illa, þó það komi óþreyja í mann annað slagið. 

Á hverjum degi fer ég samt í mína dag­legu heilsu­bót­ar­göngu. Það er nauð­syn­legt, því það getur verið hættu­legt að vera svona lengi heima hjá sér, daga þar uppi í til­gangs­leysi. Það er ekki skemmti­legt til lengdar. Það heim­sækir mig heldur eng­inn, ég er með­höndluð sem gam­al­menni og eng­inn vill smita mig. 

Ég er þá ekki að fara neitt sjálf heldur, því ég vil ekki láta aðra sitja uppi með það að hafa hugs­an­lega smitað mig. Það er sterk til­finn­ing innra með manni sem segir manni að þvæl­ast ekki neitt, að passa sig og hlýða. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár