Hundar eru æði

Tara Sif Har­alds­dóttir hár­snyrtir rækt­aði hunda í mörg ár. Hún á tvo hunda í dag, Doberman-hund og Keeshound-rakka, og langar til að flytja inn tík fyrir rakk­ann.

Hundar eru æði

Mér líður vel þegar hundar eru í kringum mig. Ég hef átt hunda næstum því allt mitt líf. Þegar ég var krakki áttum við blend­ing af íslenskum hundi og labrador, sem hét Dimma, og þegar ég var 17 ára og flutti að heiman keypti ég Siberian Husky-hund sem hét Rocky. Mér finnst hundar vera æðis­legir félagar og það er skemmti­legt fyrir krakka að alast upp á heim­ili þar sem eru hundar.

Ég byrj­aði að rækta hunda árið 2009. Þá flutti ég inn hund af teg­und­inni Alaskan Malamute sem voru fáséðir á Íslandi og kom hún Demi frá Bret­landi. Ég hef átt sex Alaskan Malamute í gegnum tíð­ina sem ég hef notað til rækt­unar og hef verið með nokkur got. Svo hafa hund­arnir mínir unnið til verð­launa á sýn­ingum hér og erlendis. Í dag á ég Doberman-hund og Keeshound-rakka. Svo langar mig að flytja inn tík fyrir rakk­ann minn, sem væri þá annar sinnar teg­undar á Íslandi.

Ég á stórt land þar sem ég væri til í að gera góða aðstöðu fyrir hundana í fram­tíð­inni. Hundar eru æði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár