Sáttarhönd þriggja stjórnarandstöðuflokka í útlendingamálinu felur í sér miklar breytingar

Sam­fylk­ing, Viðreisn og Flokkur fólks­ins hafa lagt fram sex ítar­legar breyt­ing­ar­til­lögur á útlend­inga­frum­varpi Jóns Gunn­ars­sonar í því skyni að liðka fyrir samn­ingum um þing­lok. Píratar vildu ekki vera með vegna þess að þeir vilja ekki semja um málið.

Jón Gunnarsson er dómsmálaráðherra.
Jón Gunn­ars­son er dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar hafa lagt fram sex ítar­legar og umfangs­miklar breyt­ing­ar­til­lögur á frum­varpi Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra til breyt­inga á útlend­inga­lögum. Til­lög­urnar voru lagðar fram eftir að Jón leit­aði sam­tali við and­stöðu­flokka á þingi við að koma frum­varp­inu í gegn og ljúka þing­störfum, en þing­lok eru áætluð á föstu­dag. Meg­in­þorri stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna hefur hingað til neitað að semja um þing­lok nema að frum­varp­inu verði breytt veru­lega eða það ein­fald­lega dregið til baka.

Til­lög­unum var komið til Jóns í gær og for­menn þing­flokka allra þeirra stjórn­mála­flokka sem sitja á Alþingi eru einnig með þær undir höndum.

Það er ekki ein­ungis innan raða þeirra sem and­staða er við frum­varp Jóns. Þing­flokkur Vinstri grænna afgreiddi það til að mynda með fyr­ir­vara. Mjög langt er á milli yfir­lýstrar útlend­inga­stefnu flokks Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og þeirrar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn rekur. Stutt er síðan að Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, sá sig knú­inn til að mæta í tíu­fréttir RÚV til að segja að Jón Gunn­ars­son væri að segja ósatt þegar hann sagði að sam­staða væri innan rík­is­stjórn­ar­innar um brott­vísun stórs hóps flótta­manna sem hefur ekki verið hægt að senda burt vegna Covid-19 tengdra mála. Guð­mundur Ingi, sem er vara­for­maður Vinstri grænna, sagð­ist ekki ánægður með þá veg­ferð sem Jón væri á í mál­inu og að hann, og fleiri ráð­herrar, hefðu gert alvar­legar athuga­semdir við hana á rík­is­stjórn­ar­fundi.

Útlend­ingapóli­tík sitj­andi dóms­mála­ráð­herra er gríð­ar­lega óvin­sæl í gras­rót Vinstri grænna og sú ólga bæt­ist við banka­sölu­hneykslið sem hefur gengið mjög á póli­tíska inn­eign flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra. Kannanir sýna að Katrín hefur tapað um fjórð­ungi þess trausts sem hún naut í lok síð­asta árs og fjöldi þeirra sem van­treysta henni hefur næstum tvö­fald­ast á sama tíma. Í nýj­ustu könnun Gallup mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn hennar sá allra minnsti sem hann hefur mælst frá því að hún sett­ist að völdum síðla árs 2017 og fylgi Vinstri grænna hefur ekki mælst minna síðan á fyrstu vik­unum eftir að Katrín tók við sem for­m­aður vorið 2013.

Logi fundaði með Jóni

Við­mæl­endur Kjarnans eru sam­mála um að það sé því ekki ein­ungis stjórn­ar­and­staðan sem stendur í vegi fyrir fram­gangi frum­varps Jóns. Veru­legur þrýst­ingur sé á Jón innan úr rík­is­stjórn­ar­flokk­unum, meðal ann­ars úr hans eigin flokki, að breyta frum­varp­inu þannig að það geti náð í gegn.

[adspot]Staðan á stjórn­ar­heim­il­inu er enda við­kvæm­ari en nokkru sinni fyrr, sem sést best á nán­ast linnu­lausum skeyta­send­ingum milli ráð­herra í gegnum fjöl­miðla, nú síð­ast vegna frum­varps um end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar.

Jón sagði við RÚV á laug­ar­dag að hann hefði rætt við stjórn­ar­and­stöð­una um að vinna að lausn og fá efn­is­legar athuga­semdir um ákveðna þætti frum­varps­ins. „Þannig að ég hef rétt fram sátt­ar­hönd og átt fundi með ákveðnum for­svars­mönnum úr stjórn­ar­and­stöð­unni. þau eru að skoða þau mál núna. Ég vona að það verði tekið í þessa sátt­ar­hönd og að við getum sýnt sam­stöðu um að klára þessi mál vegna þess að það er mjög mik­il­vægt að koma á þess­ari skil­virkni gagn­vart því fólki sem hingað leitar í þágu Þeirra sem raun­veru­lega þurfa á vernd að halda.“

Heim­ildir Kjarnans herma að Logi Ein­ars­son og starfs­maður þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar hafi meðal ann­ars átt fund með Jóni nýverið þar sem reynt var að semja um leiðir til að koma útlend­inga­frum­varpi Jóns í gegnum þingið.

Í gær lágu loks fyrir þær til­lögur sem þrír flokkar úr stjórn­ar­and­stöð­unni: Sam­fylk­ingin, Viðreisn og Flokkur fólks­ins, sögðu að Jón þyrfti að taka til­lit til ef það ætti að geta komið frum­varp­inu í gegn og ljúka þing­störfum. Píratar standa ekki að þeim til­lögum sökum þess að þeir eru ein­fald­lega á móti þeirri aðferða­fræði að semja við Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra um nið­ur­stöðu máls­ins.

Umfangsmiklar breytingar

Í til­lög­unum, sem Kjarninn hefur undir höndum, eru sex umfangs­miklar breyt­inga­til­lögur á frum­varp­inu, nokkrar með und­ir­liðum. Í fyrsta lagi er lagt til breyt­ing þess efnis að útlend­ingur sem fengið hefur end­an­lega synjun á umsókn sinni um vernd njóti áfram þjón­ustu þar til hann yfir­gefur landið, en missi hana ekki eftir 30 daga líkt og frum­varp Jóns segir til um. Slík nið­ur­fell­ing rétt­inda veltir ábyrgð­inni alfarið yfir á sveit­ar­fé­lögin sem verða að veita útlend­ingi í neyð lág­marks­að­stoð sem og brýtur harka­lega á rétti þeirra ein­stak­linga sem stöðu sinnar vegna geta ekki yfir­gefið landið vegna skorts á ferða­heim­ild.

Í öðru lagi eru lagðar til breyt­ingar um að umsækj­endur um alþjóð­lega vernd njóti áfram lág­marks­verndar stjórn­sýslu­laga um end­ur­upp­töku máls vegna nýrra gagna eða upp­lýs­inga.

[adspot]Í þriðja lagi er lagt til sú breyt­ing að umsækj­endur sem telj­ist vera í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu fái umsókn sína tekna til efn­is­með­ferðar og að tekið verði út úr frum­varp­inu að aðrir en umsækj­andi geti verið valdir því að umsækj­andi njóti ekki þeirra rétt­inda að fá mál sitt tekið til efn­is­með­ferðar hafi hann dvalið hér lengur en 12 mán­uði. Til að auka skil­virkni í kerf­inu er lagt til að umsóknir ein­stak­linga, sem fengið hafa vernd í öðru ríki, en hafa fengið umsókn sína tekna til efn­is­með­ferðar þar sem þeir telj­ast vera í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu eða hafa sér­stök tengsl við landið, sæti for­gangs­með­ferð, enda hefur flótta­manna­staða þeirra þegar verið við­ur­kennd.

Vilja að framkomnar tillögur verði felldar inn í frumvarpið

Í fjórða lagi er lögð til sú breyt­ing að réttur kvótaflótta­fólks til fjöl­skyldu­sam­ein­ingar hér á landi sé til jafns við rétt ann­arra sem hér hafa fengið vernd. Í fimmta lagi á umsækj­andi um alþjóð­lega vernd, sem ekki hefur tek­ist að end­ur­senda/brott­vísa til ann­ars ríkis innan tveggja ára frá umsókn, að eiga kost á að sækja um dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum ásamt atvinnu­leyfi. Rökin fyrir þessu eru ann­ars vegar mannúð því fólk þarf ella að lifa á jaðri sam­fé­lags­ins árum saman þar sem ekki er hægt að flytja við­kom­andi af land­inu og hins vegar skil­virkni fyrir kerfið sem ann­ars þarf að styðja við­kom­andi fjár­hags­lega um alla fram­tíð.

Í sjötta og síð­asta lagi vilja stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir þrír að lagðar verði inn í frum­varpið áður fram­komnar til­lögur þeirra þriggja og Pírata til verndar þeim hópi flótta­fólks sem hér hefur ílengst vegna Covid-19 tak­mark­ana síð­ast­liðin tvö ár. Þær til­lögur, sem voru settar fram í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem dreift var í síð­ustu viku, fólu í sér að dráttur sem orðið hefur á brott­flutn­ingi, sem kom til vegna heims­far­ald­urs, verði ekki sagður á ábyrgð umsækj­enda sjálfra. Þannig njóti þeir sömu rétt­inda og aðrir í sömu stöðu, þannig að þeir flótta­menn sem hafa dvalið hér í 12 og 18 mán­uði eftir að nið­ur­staða er komin í mál þeirra fái hér ann­ars vegar efn­is­með­ferð og hins vegar dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár