Drottningarafmæli, handabönd, minkaklúðrið og rjómaterturáðherrann

Borgþór Arn­gríms­son hefur ritað reglu­lega pistla og frétta­skýr­ingar, aðal­lega um dönsk og nor­ræn mál­efni, í Kjarnann árum saman. Hér eru teknar saman nokkrar glefsur úr frétta­skýr­ingum hans af dönskum og nor­rænum vett­vangi á árinu sem er að líða.

Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur kom oft við sögu í fréttaskýringum Borgþórs Arngrímssonar á árinu.
Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur kom oft við sögu í frétta­skýr­ingum Borgþórs Arn­gríms­sonar á árinu. Mynd: EPA

Rit­stjórn Kjarnans fær stundum að heyra það frá sumum les­endum að sunnu­dag­arnir byrji vart almenni­lega fyrr en lestri á nýj­ustu frétta­skýr­ingu Borgþórs Arn­gríms­sonar um nor­ræn mál­efni er lokið.

Borgþór hefur ritað yfir 350 pistla og frétta­skýr­ingar í Kjarnann frá því mið­ill­inn var stofn­aður árið 2013. Á sunnu­dags­morgnum klukkan 9 færir hann les­endum útskýr­ingar á málum sem hátt bera í Danmörku, þar sem hann var búsettur um ára­bil, eða þá frá hinum Norð­ur­lönd­unum, ef svo ber undir.

Nú í lok árs þótti rit­stjórn­inni við hæfi að taka saman glefsur af því sem Borgþór hefur sagt frá á þessu ári kór­ónu­veirunnar, skyndi­legra minka­drápa og nýrrar #MeeToo-bylt­ingar danskra kvenna.

Norskur bókavörður lét sér fátt um finnast

Áður en jan­úar var að baki var Borgþór búinn að fræða les­endur Kjarnans um und­ir­bún­ing æfinga­ferðar 40 kín­verskra skíða­manna til Noregs, sem hafði óvæntar afleið­ingar:

[adspot]

„Bóka­vörð­ur­inn á bæj­ar­bóka­safn­inu í Mer­á­ker í Þrænda­lög­um, þar sem fyr­ir­hugað er að kín­versku skíða­menn­irnir æfi, rak upp stór augu þegar kín­verskir emb­ætt­is­menn birt­ust á bóka­safn­inu. Ekki var undrun bóka­varð­ar­ins minni þegar þeir báru upp erind­ið: Þeir kröfð­ust þess að allar bæk­ur, sem ekki væru kín­verskum stjórn­völdum þókn­an­legar yrðu fjar­lægðar úr hillum safns­ins. Til dæmis bækur um Falun Gong-hreyf­ing­una. Bóka­vörð­ur­inn kikn­aði ekki í hnjálið­unum en sagði þessum sjald­séðu gestum á safn­inu að hér væri það hún (bóka­vörð­ur­inn er kona) sem réði og úr hillum safns­ins yrðu engar bækur fjar­lægðar þótt ein­hverjir skíða­menn kæmu til æfinga í bæn­um. „Hér í Nor­egi búum við nefni­lega við tján­ing­ar­frelsi.“ Engum sögum fer af við­brögðum kín­versku sendi­mann­anna,“ sagði í frétta­skýr­ingu Borgþórs, Bóka­vörð­ur­inn blés á Kín­verj­ana.

Handabandsskilyrðið

Í upp­hafi mars­mán­aðar fjall­aði Borgþór um umdeilt mál, laga­á­kvæði í Danmörku sem skyldar til­von­andi Dani sem eru að öðl­ast rík­is­borg­ara­rétt, til þess að taka í hönd bæj­ar­stjóra í sínu sveit­ar­fé­lagi eða full­trúa hans til þess að stað­festa umsókn­ina.

Handa­bands­skil­yrð­inu var „bætt inn í lögin um rík­is­borg­ara­rétt­inn árið 2018 en kom í raun fyrst til fram­kvæmda um land allt í ár. Í tengslum við „rík­is­borg­ara­dag­inn“ í síð­ustu viku (þeir eru tveir árlega) hafa danskir fjöl­miðlar fjallað tals­vert um þetta laga­á­kvæði og spurt um ástæður þess að handa­band skuli bundið í lög­,“ skrif­aði Borgþór og rakti svo þátt Inger Støjberg, fyrr­ver­andi ráð­herra inn­flytj­enda og aðlög­unar í stjórn Ven­stre, í því að þessu ákvæði, sem styr stóð um, var bætt inn í lögin.

„Hún hefur í við­tölum sagt að þetta sé hluti þess að „vera danskur“ eins og hún hefur kom­ist að orði. „Þeir sem sækj­ast eftir að verða Danir hljóta að laga sig að dönskum sið­um, og handa­bandið er einn þeirra. Svo ein­falt er það,““ skrif­aði Borgþór í frétta­skýr­ing­unni Að takast eða ekki takast í hendur.

Veiran raskaði stórafmæli drottningar

Danir voru víst ekki ónæmir fyrir kór­ónu­veirunni. Drottn­ingin þurfti að blása átt­ræð­is­af­mæl­is­veislu sína af og þeim við­burðum sem höfðu verið skipu­lagðir um landið lítið og flatt í til­efni afmælis Mar­grétar Þór­hildar var ýmist frestað eða aflýst.

„Þótt iðu­lega fylgi mikið til­stand stóraf­mælum í dönsku kon­ungs­fjöl­skyld­unni stóð óvenju­lega mikið til að þessu sinni. Fyrir því voru tvær ástæð­ur. Önnur var sú að þegar drottn­ingin varð sjö­tug, árið 2010 kom gosið í Eyja­fjalla­jökli í veg fyrir að margir af hinum tignu gestum sem boðið hafði verið til veisl­unnar komust ekki til Kaup­manna­hafn­ar. Meðal þeirra sem fjarri voru góðu gamni var for­seti Íslands Ólafur Ragnar Gríms­son. Veislan fór fram eins og ráð var fyrir gert þótt langtum færri væru við­staddir en til stóð. Af þessum sökum stóð til að veislan nú yrði sér­lega veg­leg,“ skrif­aði Borgþór í frétta­skýr­ing­unni Engin veisla hjá Margréti Þórhildi á átt­ræð­is­af­mæl­inu.

Rjómaterturáðherrann sem gæti endað fyrir landsdómi

Á árinu sem er að líða hefur áður­nefnd Inger Støjberg, fyrr­ver­andi ráð­herra inn­flytj­enda­mála í Danmörku, sætt opin­berri rann­sókn vegna ákvörð­unar sem hún tók í emb­ætti.

„Um er að ræða til­kynn­ingu sem send var út 10. febr­úar 2016. Þar til­kynnti ráðu­neyti inn­flytj­enda­mála að hjón þar sem annað eða bæði væru undir 18 ára aldri, og byggju í búðum hæl­is­leit­enda skyldu ekki búa þar sam­an, heldur sitt í hvoru lagi, jafn­vel þótt þau ættu börn. Án und­an­tekn­inga. Hjón sem búið höfðu saman í búðum hæl­is­leit­enda skyldu þannig aðskil­in. Emb­ætt­is­menn ráðu­neyt­is­ins sögðu ráð­herr­anum að þessi ákvörðun stæð­ist ekki lög, og væri þar að auki brot á barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Ráð­herra stóð fast á sínu. Lögum sam­kvæmt ber að vega og meta hvert ein­stakt til­felli en sam­kvæmt ákvörðun ráð­herr­ans skyldi eitt yfir alla ganga. Án und­an­gengis mats,“ skrif­aði Borgþór í frétta­skýr­ing­unni Rjóma­tertu­ráð­herr­ann, sem birt­ist sunnu­dag­inn 24. maí.

Málið var þá í hámæli í Danmörku, þar sem til stóð að Støjberg kæmi á fund rann­sókn­ar­nefndar þann sama sunnu­dag og aftur dag­inn eftir til að skýra sína hlið á mál­inu. Vikuna eftir sagði Borgþór frá því í frétta­skýr­ing­unni Að tala tungum tveim og draga kan­ínu úr hatti að í fram­burði Støjberg hefðu komið fram glæ­nýjar upp­lýs­ingar um málið.

„Í öllum þeim gagna­haug sem rann­sókn­ar­nefndin hefur undir höndum er ekki að finna, skjal sem Inger Støjberg dró fram í dags­ljósið á sunnu­dag­inn „eins og kan­ínu úr hatti sjón­hverf­inga­manns“ sagði blaða­maður Berl­ingske þegar hann lýsti því sem fram fór,“ skrif­aði Borgþór.

Um var að ræða minn­is­blað á skúffu­botni, sem fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ingur ráðu­neyt­is­ins sagði rann­sókn­ar­nefnd­inni að væri hald­laust, þar sem ráð­herr­ann sjálf hefði sagt yfir­völdum undir sinni stjórn að líta á und­ir­rit­aða frétta­til­kynn­ingu um málið sem til­skipun.

Skýrsla rann­sókn­ar­nefndar um málið kom út fyrr í þessum mán­uði, eins og Borgþór sagði frá í frétta­skýr­ing­unni Vand­ræða­barnið í Venstre á síð­asta sunnu­degi aðventu.

„Skipta má nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar niður í þrjá meg­in­þætti:

Í fyrsta lagi vildi Inger Støjberg að fylgt yrði reglum henn­ar, sem stöng­uð­ust á við lög, og lét sig í engu varða aðvar­anir emb­ætt­is­manna. „Minn­is­blaðið á skúffu­botn­in­um“ skipti þar engu þrátt fyrir yfir­lýs­ingar ráð­herr­ans fyrr­ver­andi.

Í öðru lagi segir í skýrsl­unni að Lene Skytte Mørk Han­sen, deild­ar­stjóri í inn­flytj­enda­ráðu­neyt­inu, hafi hringt til Útlend­inga­stofn­un­ar­innar og upp­álagt starfs­fólki að fylgja til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins um aðskilnað para. Við yfir­heyrslur hjá rann­sókn­ar­nefnd­inni sagð­ist Lene Skytte Mørk Han­sen aftur á móti hafa hringt til að segja að ekki ætti að fylgja til­mæl­unum í til­kynn­ing­unni til hins ýtrasta, heldur gera und­an­tekn­ing­ar. Þessar skýr­ingar taldi rann­sókn­ar­nefndin í meira lagi ótrú­verð­ugar enda gengu þær þvert á yfir­lýs­ingar þriggja starfs­manna Útlend­inga­stofn­un­ar, sem höfðu heyrt áður­nefnt sím­tal. Starfs­fólk Útlend­inga­stofn­un­ar­innar sagði að Lene Skytte Mørk Han­sen hefði sagt að ráð­herr­ann teldi mjög mik­il­vægt að til­mæl­unum yrði fylg­t,í öllum mál­um. Þar með eru til­mælin orðin til­skipun segir í skýrsl­unni.

[adspot]

Í þriðja lagi hefði Inger Støjberg, að minnsta kosti sex sinn­um, bein­línis sagt ósatt við yfir­heyrslur þing­nefndar (sam­råd). Það að ljúga í þing­inu væri mjög alvar­legt. Enn­fremur hefðu svör og útskýr­ingar emb­ætt­is­manna í inn­flytj­enda­ráðu­neyt­inu við spurn­ingum umboðs­manns verið „út og suð­ur“ og fyrir þeim væri ráð­herr­ann ábyrg­ur,“ skrif­aði Borgþór.

Óljóst er hvort þessi mikla rann­sókn á emb­ætt­is­færslum Støjberg endar með því að hún verður dregin fyrir lands­dóm, en það er ákvörðun sem á að liggja í höndum stjórn­mála­manna á þingi.

Minkaskandall­inn í Danmörku er búinn að flækja þessa ákvörðun, eins og rakið var í nýj­ustu frétta­skýr­ingu Borgþórs af mál­inu. Utan­að­kom­andi ráð­gjaf­ar­nefnd hefur verið fengin til að leggja mat sitt á málið, sem þykir póli­tískt þægi­legt fyrir alla.

„Það yrði býsna erfitt fyrir Mette Frederik­sen og flokk hennar að sam­þykkja að mál Inger Støjberg fari fyrir lands­dóm en leggj­ast svo gegn því að sama gildi um minka­mál­ið. Á sama hátt yrði það erfitt fyrir Jakob Ellem­ann-Jen­sen og Ven­stre að styðja að minka­málið fari fyrir lands­dóm en leggj­ast gegn því að mál Inger Støjberg fari þang­að.“

Minkadráp án lagaheimilda

Og þá komum við að mink­unum. Eins og frægt varð lét danska rík­is­stjórnin drepa alla minka í land­inu, hátt á annan tug millj­óna dýra, vegna hættu sem talin var á að nýtt afbrigði kór­ónu­veirunnar sem hafði borist frá mönnum í minka og aftur úr minkum í menn breidd­ist út. Óttast var að það gæti skemmt fyrir virkni bólu­efna sem vænt­an­leg eru á markað.

„Það var stór ákvörðun að fyr­ir­skipa slátrun alls minka­stofns­ins í land­inu og binda þar með endi á atvinnu­grein sem á sér ára­tuga sögu. Þótt ráð­herrar hafi talað um að hægt yrði að halda eftir til­teknum lág­marks­fjölda, í því skyni að end­ur­reisa minka­rækt­ina síð­ar, segja bændur það óger­legt.

Skipun um að lóga minka­stofn­inum þurfti að styðj­ast við lög. Í ljós kom að slík lög voru ekki til staðar en voru sett eft­irá, í miklum flýti. Mog­ens Jen­sen mat­væla- og land­bún­að­ar­ráð­herra varð marg­saga í við­tölum varð­andi laga­heim­ild­ina og varð á end­anum að segja af sér. Sumir dönsku fjöl­miðl­anna sögðu að Mette Frederik­sen hefði ákveðið að fórna Mog­ens Jen­sen til að bjarga eigin skinni, „kastet ham under bus­sen“ eins og Danir orða það. Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra og Nick Hækk­erup dóms­mála­ráð­herra hafa síðar sagt að þau orð for­sæt­is­ráð­herr­ans að aflífa skyldi allan mink í land­inu hafi verið til­mæli en ekki til­skip­un. „Yf­ir­klór“ sögðu stjórn­mála­skýrend­ur,“ skrif­aði Borgþór í frétta­skýr­ing­unni Minka­klúðrið.

Þetta klúður þykir mjög póli­tískt óþægi­legt fyrir rík­is­stjórn Sós­í­alde­mókrata. Og fleiri óþægi­leg mál komu upp hjá dönskum jafn­að­ar­mönnum á árinu.

#MeToo, fallinn konungur Kaupmannahafnar og hönd á læri

Í upp­hafi hausts reis ný #MeToo-bylgja í Danmörku, eftir eldræðu sjón­varps­kon­unnar Sofie Linde í skemmti­þætti sem sýndur var í beinni útsend­ingu á TV2.

„Sofie Linde, sem er þrí­tug, sagði frá því að þegar hún var átján ára og nýbyrjuð að vinna hjá DR, danska sjón­varp­inu, mætti hún í mat­ar­veislu starfs­manna (julefro­kost) í byrjun des­em­ber. Þar hefði þekktur sjón­varps­mað­ur, sem hún nafn­greindi ekki, komið til hennar og sagt orð­rétt: „Hvis du ikke går med ud og sutter min pik, så fuck­ing ødelæg­ger jeg din karri­er­e.“ Þessi hót­un­ar­orð þarfn­ast ekki þýð­ing­ar. Sofie Linde sagði að hún hefði strax sagt nei, og ekki einu sinni hugsað út í að þessi þekkti sjón­varps­maður gæti hugs­an­lega haft áhrif á störf hennar og fram­tíð­ar­mögu­leika,“ skrif­aði Borgþór í frétta­skýr­ing­unni Fjöl­miðla­kon­urnar og karla­áreitið 13. sept­em­ber.

Í dönskum stjórn­málum komu í kjöl­farið upp mál sem kost­uðu karla emb­ætti sín. Borgþór sagði frá #MeToo-tengdum svipt­ingum innan Radikale Venstre í upp­hafi októ­ber­mán­aðar, í frétta­skýr­ing­unni Að leggja hönd á læri.

Þá hafði Morten Østergaard leið­togi flokks­ins sagt af sér eftir að hafa við­ur­kennt að hafa árum fyrr farið fram með ósæmi­legum hætti í garð þing­kon­unnar Lotte Rod og síðar reynt að leyna því.

„Danskir fjöl­miðlar hafa síð­ustu daga fjallað ítar­lega um afsögn Morten Østergaard og ástæður henn­ar. Hvort hann hefði átt, og þurft, að segja af sér. Þótt margir telji að fram­koma Morten Østergaard í garð Lotte Rod hafi ekki verið í lagi séu það miklu fremur við­brögð hans eftir að málið komst í hámæli sem hafi orðið til þess að hann hafi ekki átt ann­ars úrkosti en segja af sér. Það er að segja að hann skyldi bein­línis ljúga að félögum sínum á þingi, og almenn­ingi í blaða­við­tali. Slíkt gangi ekki,“ rakti Borgþór.

Og ekki var öll #MeToo-sagan sögð. Undir lok októ­ber­mán­aðar sagði Frank Jensen, yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar og vara­for­maður Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins, af sér emb­ættum og til­kynnti að hann væri hættur í stjórn­málum eftir ásak­anir um áreitni af hendi fjölda kvenna. Borgþór skrif­aði um afsögn manns­ins sem kall­aður hafði verið „kon­ungur Kaup­manna­hafnar“.

„Nú er Frank Jensen fall­inn af stall­inum. Fyrir eigin hendi, ef svo má segja,“ skrif­aði Borgþór í inn­gangs­orðum frétta­skýr­ing­ar­innar Þegar kóngur fellur.

Hvað árið 2021 mun bera í skauti sér í Danmörku og öðrum nor­rænum ríkjum vitum við ekki, en fróð­legar greinar um ýmis­legt það helsta sem á baugi er munu áfram ber­ast les­endum Kjarnans stund­vís­lega kl. 9 á sunnu­dags­morgnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár