Að takast – eða ekki að takast – í hendur

Síð­ast­lið­inn þriðju­dagur var hinn árlegi rík­is­borg­ara­dagur víða í Danmörku. Þá fá þeir rík­is­borg­ara­rétt sem sótt hafa um, og upp­fylla kröf­urnar, með einu skil­yrði. Það skil­yrði er umdeilt.

Árlega sækir tals­verður fjöldi erlendra rík­is­borg­ara, búsettir í Danmörku, um danskan rík­is­borg­ara­rétt. Um slíkar umsóknir gilda ákveðnar reglur og ýmis skil­yrði sem upp­fylla þarf til að kom­ast „gegnum nál­ar­augað“, og öðl­ast rétt­inn.

Ástæður þess að fólk, búsett í Danmörku, ákveður að sækja um rík­is­borg­ara­rétt í land­inu eru af ýmsum toga en snúa einkum að rétt­indum sem danskir rík­is­borg­arar, búsettir í land­inu, hafa umfram þá sem búa í land­inu án rík­is­borg­ara­réttar. Meðal ann­ars rétt­ur­inn til að taka þátt í þing­kosn­ingum. Þeir sem hafa ákveðið að búa í Danmörku, til fram­búðar, sjá sér þannig hag í rík­is­borg­ara­rétt­inum. Mörg lönd, þar á meðal Ísland, heim­ila tvö­faldan rík­is­borg­ara­rétt og í slíkum til­vikum er fólk ekki að kasta „gamla“ rík­is­borg­ara­rétt­inum fyrir róða þótt það sæki jafn­framt um í nýju búsetu­landi. Lög sem heim­ila tvö­faldan rík­is­borg­ara­rétt tóku gildi í Danmörku 1. sept­em­ber 2015.

Lögunum varð­andi skil­yrðin til rík­is­borg­ara­réttar í Danmörku hefur margoft verið breytt, oft­ast nær þannig að kröf­urnar sem gerðar eru til umsækj­enda hafa verið hertar. Í tíð rík­is­stjórnar Lars Løkke Rasmus­sen voru árið 2018 gerðar umtals­verðar breyt­ingar á þessum kröfum. Meðal ann­ars þurfa umsækj­endur að gang­ast undir próf til að kanna þekk­ingu þeirra á sögu Dan­merkur ásamt dönsku­prófi. Þessi próf, sem Íslend­ingar og aðrir Norð­ur­landa­búar eru und­an­þegnir, þykja erfið og oft á tíðum smá­smugu­leg. Danska dag­blaðið Berl­ingske lagði slík próf fyrir nokkra inn­fædda Dani, og meira en helm­ingur þeirra féll á sögu­próf­inu en flestir náðu hins­vegar dönsku­próf­inu.

Skilyrðið um handaband

Meðal þeirra breyt­inga sem gerðar voru á lög­unum um skil­yrðin fyrir rík­is­borg­ara­rétt­inum árið 2018 er eitt atriði sem valdið hefur miklum deilum og umræðum. Þeim sem hafa sótt um og upp­fyllt skil­yrðin er gert að mæta í ráð­hús sveit­ar­fé­lags­ins þar sem þeir búa á til­teknum degi. Þar þarf að gera tvennt: umsækj­and­inn skal und­ir­rita skjal þar sem hann lofar að virða dönsk lög og reglur og halda í heiðri danska siði. Þetta vefst að jafn­aði ekki fyrir umsækj­endum.

Það er hins­vegar síð­ara skil­yrðið sem styr hefur staðið um. Það gerir hinum til­von­andi danska rík­is­borg­ara skylt að inn­sigla umsókn­ina um rík­is­borg­ara­rétt­inn með handa­bandi. Taka í hönd­ina á borgar- eða bæj­ar­stjór­anum eða full­trúa hans. Fyrir flesta Evr­ópu­búa er handa­band ekki stór­mál. Öðru máli gegnir hins­vegar um marga aðra. Í mörgum löndum tíðkast ekki að heils­ast og kveðj­ast, eða óska til ham­ingju með handa­bandi. Margir þeirra sem flutt hafa til Dan­merkur á und­an­förnum árum og ára­tugum rekja einmitt upp­runa sinn til landa þar sem handa­band tíðkast ekki. Og ekki nóg með að handa­band tíðk­ist ekki, í sumum trú­ar­brögðum er það bein­línis bannað, og talið mjög óvið­eig­andi að heils­ast og kveðj­ast með handa­bandi.

Af hverju þetta skilyrði?

Eins og áður var nefnt var handa­bands­skil­yrð­inu bætt inn í lögin um rík­is­borg­ara­rétt­inn árið 2018 en kom í raun fyrst til fram­kvæmda um land allt í ár. Í tengslum við „rík­is­borg­ara­dag­inn“ í síð­ustu viku (þeir eru tveir árlega) hafa danskir fjöl­miðlar fjallað tals­vert um þetta laga­á­kvæði og spurt um ástæður þess að handa­band skuli bundið í lög.

Inger Støjberg, fyrr­ver­andi ráð­herra inn­flytj­enda og aðlög­unar í stjórn Venstre, beitti sér mjög fyrir þessu ákvæði. Hún hefur í við­tölum sagt að þetta sé hluti þess að „vera danskur“ eins og hún hefur kom­ist að orði. „Þeir sem sækj­ast eftir að verða Danir hljóta að laga sig að dönskum siðum, og handa­bandið er einn þeirra. Svo ein­falt er það.“

Kannski ekki svo einfalt

Þótt ráð­herr­ann fyrr­ver­andi hafi sagt að svo ein­falt væri það, þetta með handa­bandið, hefur annað komið á dag­inn. Víða um land hafa bæj­ar­stjórnir klórað sér í koll­inum yfir þessu laga­á­kvæði og velt fyrir sér hvernig hægt væri að leysa „handa­bandið“ vand­ræða­laust.

Sums staðar hafa bæj­ar­stjórnir brugðið á það ráð að hafa tvo emb­ætt­is­menn, karl og konu, til staðar við athöfn­ina. Í lög­unum stendur nefni­lega að nýi rík­is­borg­ar­inn skuli taka í hönd­ina á borg­ar­stjór­anum, eða full­trúa hans. Í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske sagði Inger Støjberg fyrr­ver­andi ráð­herra að það væri sinn skiln­ingur að það ætti að vera borgar- eða bæj­ar­stjór­inn sem tæki í hönd­ina á nýja rík­is­borg­ar­anum. Nokkrir bæj­ar­stjórar sögðu í við­tali við sama blað að skiln­ingur fyrr­ver­andi ráð­herra skipti ekki máli, lögin væru skýr. Aðrir hafa sagt að þeim þyki það hrein og klár della (pjattet) að handa­band skuli vera skil­yrði rík­is­borg­ara­réttar.

Fá tveggja ára umhugsunarfrest

Hvað ger­ist ef umsækj­andi sem upp­fyllir öll skil­yrðin neitar að taka í hönd­ina á full­trú­anum frá bænum eða borg­inni þegar á hólm­inn er komið? Um það eru skýr fyr­ir­mæli í lögum. Umsækj­and­inn fær þá ekki rík­is­borg­ara­rétt­inn en hefur hins vegar tvö ár til að hugsa ráð sitt. Ef hann end­ur­nýjar ekki umsókn­ina innan þess tíma verður hann að byrja allt umsókn­ar­ferlið frá byrjun. Dag­blaðið Jót­land­s­póst­ur­inn kann­aði hvort þess væru mörg dæmi að umsækj­endur hefðu hætt við á síð­ustu stundu, þegar kom að handa­band­inu, síð­ast­lið­inn þriðju­dag. Samkvæmt þeirri könnun voru þess nokkur dæmi að fólk hefði hætt við og sagt að það að taka ekki í hönd­ina á ókunn­ugum væri prinsipp mál og ekki skipti máli hvort um væri að ræða bæj­ar­full­trúa af sama kyni eða ekki.

Nokkrir þing­menn hafa í við­tölum við fjöl­miðla sagt að þeir vilji gjarna fella þetta með handa­bandið úr lögum. Á þess­ari stundu virð­ist ekki meiri­hluti fyrir slíkri breyt­ingu á danska þing­inu, Fol­ket­inget, hvað sem síðar verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár