Minkaklúðrið

Danska rík­is­stjórnin hefur sætt mik­illi gagn­rýni vegna minka­máls­ins svo­nefnda, þar sem margt hefur farið úrskeiðis. Nú síð­ast þegar ekki var fylgt til­mælum varð­andi urðun hræj­anna. Algjört klúður í eitt og allt segja danskir fjöl­miðlar.

Mette Frederiksen forsætisráðherra komst við er hún ræddi við fjölmiðla eftir að hafa heimsótt minkabú í síðustu viku og rætt við bændur sem höfðu misst frá sér ævistarfið.
Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra komst við er hún ræddi við fjöl­miðla eftir að hafa heim­sótt minkabú í síð­ustu viku og rætt við bændur sem höfðu misst frá sér ævi­starfið. Mynd: EPA

Óhætt er að segja að Dönum hafi brugðið í brún þegar frá því var greint, í júní, að kór­óna­vírus hefði greinst í minkum á Norður-Jótlandi. Vitað er að minkar eru sér­lega við­kvæmir fyrir alls kyns vírusum og ef vírus finnst á minka­búi er nær öruggt að sá vírus ber­ist á önnur bú. Þótt yfir­völd fyr­ir­skip­uðu að öllum dýrum á áður­nefndu búi skyldi þegar í stað lógað dugði það ekki til, smitið barst til Vestur-Jótlands. Öll dýr á við­kom­andi búum voru aflífuð.

7. júlí til­kynntu stjórn­völd að ef smit greind­ist á minka­búi skyldu umgengn­is­reglur hertar. Skylt yrði að bera grímu, nota spritt, hanska og hlífð­ar­búnað. Sú breyt­ing var gerð að smit­uðum dýrum skyldi ekki lógað. Þegar þessi til­kynn­ing var birt höfðu dýr á 125 búum verið skimuð og hvergi fund­ist smit.

Mikið í húfi

Lang stærstur hluti danskra minka­búa, sem um ára­bil hafa verið rúm­lega eitt þús­und tals­ins, eru á Norður- og Vestur- Jótlandi. Rekstur minka­bús er ekki mann­frekur en um það bil þrjú þús­und manns hafa unnið á þessum rúm­lega þús­und búum. Annar eins fjöldi hefur haft atvinnu af störfum sem tengj­ast minka­eld­inu með einum eða öðrum hætti. Á síð­ustu árum hefur búum fækkað tals­vert, breyttur tíð­ar­andi ræður þar miklu.

[adspot]

Dönsk minka­skinn hafa um ára­bil haft á sér gæða­stimpil og um það bil þriðj­ungur allra seldra minka­skinna í heim­inum kemur frá Danmörku. Verð á skinn­unum hefur lækkað á allra síð­ustu árum. Á síð­asta ári námu útflutn­ings­tekjur vegna sölu á minka­skinnum um það bil fimm millj­örðum danskra króna, en voru árið 2013 um það bil 12 millj­arðar.

Örlagadagurinn

4. nóv­em­ber sl. boð­aði Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra til frétta­manna­fundar. Fjöl­miðlar höfðu fengið veður af að þar mætti búast við miklum tíð­indum. Og sú varð raunin.

For­sæt­is­ráð­herra til­kynnti að allur minka­stofn á öllum búum lands­ins skyldi felldur. Að sögn ráð­herr­ans væri sam­tals um að ræða 17 millj­ónir minka. Ástæðan væri að „nýtt“ afbrigði kór­óna­veirunnar sem greinst hefði í minkum, og einnig í fólki á Norður-Jótlandi, gæti myndað smit­keðjur meðal íbúa Dan­merkur og borist til ann­arra landa. Áður hafði komið fram að bólu­efni sem unnið væri að víða um heim myndi hugs­an­lega reyn­ast gagns­laust í bar­áttu við „nýja“ afbrigðið. For­sæt­is­ráð­herra lagði mikla áherslu á að engan tíma mætti missa og nauð­syn­legt væri að hefj­ast handa við að fella minka­stofn­inn „strax í dag“.

5. nóv­em­ber hélt Mette Frederik­sen annan frétta­manna­fund. Þar til­kynnti hún að Norður- Jótlandi yrði „skellt í lás“. Ferðir til og frá þessum lands­hluta yrðu bann­aðar, nema mjög brýna nauð­syn bæri til, allt sam­komu­hald bannað, kaffi­hús og mat­sölu­staðir yrðu lok­aðir, sömu­leiðis íþrótta­hús og bóka­söfn. Einungis nem­endur í yngri deildum mættu mæta í skól­ann og svo fram­vegis. Engum gat dulist að mikil alvara væri á ferðum.

Lagaheimildina skorti og ráðherra látinn fjúka

Það var stór ákvörðun að fyr­ir­skipa slátrun alls minka­stofns­ins í land­inu og binda þar með endi á atvinnu­grein sem á sér ára­tuga sögu. Þótt ráð­herrar hafi talað um að hægt yrði að halda eftir til­teknum lág­marks­fjölda, í því skyni að end­ur­reisa minka­rækt­ina síðar, segja bændur það óger­legt.

Skipun um að lóga minka­stofn­inum þurfti að styðj­ast við lög. Í ljós kom að slík lög voru ekki til staðar en voru sett eft­irá, í miklum flýti. Mogens Jensen mat­væla- og land­bún­að­ar­ráð­herra varð marg­saga í við­tölum varð­andi laga­heim­ild­ina og varð á end­anum að segja af sér. Sumir dönsku fjöl­miðl­anna sögðu að Mette Frederik­sen hefði ákveðið að fórna Mogens Jensen til að bjarga eigin skinni, „kastet ham under bus­sen“ eins og Danir orða það. Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra og Nick Hækkerup dóms­mála­ráð­herra hafa síðar sagt að þau orð for­sæt­is­ráð­herr­ans að aflífa skyldi allan mink í land­inu hafi verið til­mæli en ekki til­skipun. „Yfirklór“ sögðu stjórn­mála­skýrendur.

Hver skipaði lögreglunni að hringja í bændur?

Eins og áður var nefnt sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann að hafa þyrfti hraðar hendur við að lóga minka­stofn­inum. Ýmsir urðu til að gagn­rýna ákvörð­un­ina um að lóga öllum minkum á öllum minka­búum lands­ins en yfir­völd töldu það einu öruggu leið­ina til að koma í veg fyrir útbreiðslu „nýja“ afbrigð­is­ins. Og eins og ráð­herr­ann sagði hófust menn strax handa.

Lög­reglan fékk skipun um að hringja í bændur og til­kynna þeim að lóga skyldi öllum minkum. Emb­ætt­is­menn danska rík­is­lög­reglu­stjór­ans (Rig­spolitiet) skipu­lögðu sím­tölin við bændur og lög­reglu­menn fengu það verk­efni að hringja. Þeir fengu sér­stakt leið­bein­inga­blað sem fylgja skyldi. Þeim bændum sem neit­uðu að lóga stofn­inum yrði til­kynnt að dýr­unum yrði eigi að síður lógað en þá fengju bændur ekki til­tek­inn bónus. Í sím­tölum sem sett hafa verið á netið má heyra tón, sem bændur, og margir aðrir, segja hreina og beina hótun.

Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag (26.11.) greindi danska útvarpið, DR, frá bréfi sem vara­for­maður starfs­manna­sam­taka rík­is­lög­reglu­stjóra sendi félags­mönnum. Þar segir að svo virð­ist sem stjórn­mála­menn reyni að gera lög­reglu­menn­ina að synda­selum. Meðal ann­ars hefði Nick Hækkerup dóms­mála­ráð­herra gagn­rýnt að lög­reglan hefði fengið það hlut­verk að hringja í bændur. Þessi gagn­rýni dóms­mála­ráð­herr­ans vakti mikla athygli enda er hann æðsti yfir­maður lög­regl­unnar og sá eini, kannski fyrir utan for­sæt­is­ráð­herr­ann, sem getur sagt lög­regl­unni fyrir verkum.

Á frétta­manna­fundi með dóms­mála­ráð­herra þennan sama dag (26.11.) vildu frétta­menn fá svör við því hver hefði skipað lög­regl­unni að hringja í bændur. Svör fengu þeir ekki, og ráð­herr­ann sagði ein­fald­lega ,,ekki ég“. En bætti svo við að þetta kæmi í ljós í rann­sókn sem þingið hefði ákveðið að færi fram á þess­ari atburða­rás.

Svo var það urðunarklúðrið

Það gekk hratt fyrir sig, og til­tölu­lega vel, að lóga mink­unum. En ekki verður það sama sagt þegar að því kom að urða hræin. 15 milljón hræ (for­sæt­is­ráð­herr­ann hafði reyndar sagt 17 millj­ónir) taka mikið pláss og í litlu landi er slíkt pláss ekki auð­fundið.

Einn þeirra staða sem ákveðið var að urða hluta hræj­anna, sam­tals um þrjár millj­ónir, er við æfinga­svæði hers­ins skammt frá Hol­stebro á Jótlandi. Grafnir voru skurðir sem hræj­unum var sturtað í og síðan mokað kalki yfir og jarð­vegi þar ofan á. Ekki voru liðnir nema örfáir dagar þegar í ljós kom að eitt­hvað var ekki eins og það átti að vera. Jarð­veg­ur­inn sem mokað hafði verið yfir hræin tók að lyft­ast. Ástæða þess var gas­myndun í hræj­unum. Skurð­irnir höfðu að lík­indum verið of grunnir og jarð­veg­ur­inn sem mokað var yfir hræin of léttur í sér. Talsmenn fyr­ir­tæk­is­ins sem sá um urð­un­ar­vinn­una sögðu í við­tölum að í einu og öllu hefði verið fylgt leið­bein­ingum dönsku umhverf­is­stofn­un­ar­innar.

Ótti við mengun

En grunnir skurðir og gas­myndun eru ekki það eina varð­andi urðun þess­ara þriggja millj­óna minka­hræja sem ekki reynd­ist í lagi. Urð­un­ar­svæðið áður­nefnda er skammt frá litlu vatni, Boutrup Sø. Vatnið og nán­asta umhverfi þess er vin­sælt úti­vist­ar­svæði, einkum á sumrin.

Þegar sveit­ar­stjórn­ar­fólk á svæð­inu fékk veður af því að til stæði að urða millj­ónir minka­hræja í nágrenni vatns­ins voru strax gerðar athuga­semdir við stað­ar­valið, hræj­unum gæti fylgt mikil meng­un­ar­hætta.

Dag­blaðið Berl­inske hefur kom­ist yfir tölvu­póst­sam­skipti Umhverf­is­stofn­unar og sveit­ar­stjórnar á svæð­inu. Þar kemur fram að Umhverf­is­stofnun telur að öruggt sé að urða hræin, og af þeim stafi ekki meng­un­ar­hætta ef hvergi sé urðað nær vatn­inu en í 300 metra fjar­lægð.

En, ein­hverra hluta vegna var þessum leið­bein­ingum (eða kröfu) ekki fylgt. Þar sem urð­un­ar­svæðið liggur næst vatn­inu er fjar­lægðin innan við 200 metrar. Sem sagt langt innan þeirra fjar­lægð­ar­marka sem Umhverf­is­stofn­unin mælti fyrir um. Og án þess að form­leg leyfi fyrir verk­inu lægju fyrir.

Þegar blaða­menn Berl­ingske reyndu að kom­ast að því hver bæri ábyrgð á því að 300 metra fjar­læg­ar­mörk­unum var ekki fylgt voru svörin eins og í þekktu íslensku dæg­ur­lagi „ekki benda á mig“. Enginn virð­ist hafa tekið þessa ákvörðun.

Sveit­ar­stjórn­ar­fólk hefur kraf­ist þess að urð­un­ar­stað­ur­inn verði fluttur, öll hræin ein­fald­lega fjar­lægð og þeim fund­inn annar staður. Á þess­ari stundu er ekki vitað hvernig mál­inu lyktar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár