Engin veisla hjá Margréti Þórhildi á áttræðisafmælinu

Margrét Þór­hildur Dana­drottn­ing verður átt­ræð næst­kom­andi fimmtu­dag, 16. apríl. Veiru­far­ald­ur­inn sem nú geisar kemur í veg fyrir veislu­höld. Þegar drottn­ingin varð sjö­tug var það Eyja­fjalla­jök­ull sem setti strik í veislu­reikn­ing­inn.

Margrét Þórhildur Danadrottning verður áttræð 16. apríl. Til stóð að halda rækilega upp á áfangann, en svo kom COVID-19.
Margrét Þór­hildur Dana­drottn­ing verður átt­ræð 16. apríl. Til stóð að halda ræki­lega upp á áfang­ann, en svo kom COVID-19. Mynd: Kim Refslund/DR

Und­ir­bún­ingur vegna átt­ræð­is­af­mælis drottn­ingar hófst snemma á síð­asta ári. Í mörg horn er að líta við und­ir­bún­ing slíkra tíma­móta. Starfs­fólk hall­ar­innar ásamt emb­ætt­is­mönnum ráðu­neyta, lög­regl­unnar, hers­ins, bæja-og sveita­stjórn­ar­fólki víða um land, fjöl­miðlum, lista­mönnum og fleirum hafa ann­ast þennan und­ir­bún­ing. Ótal við­burðir um allt land höfðu verið skipu­lagðir út í ystu æsar, allt í sam­ráði við drottn­ing­una.

Tvær ástæður fyrir tilstandinu

Þótt iðu­lega fylgi mikið til­stand stóraf­mælum í dönsku kon­ungs­fjöl­skyld­unni stóð óvenju­lega mikið til að þessu sinni. Fyrir því voru tvær ástæður. Önnur var sú að þegar drottn­ingin varð sjö­tug, árið 2010 kom gosið í Eyja­fjalla­jökli í veg fyrir að margir af hinum tignu gestum sem boðið hafði verið til veisl­unnar komust ekki til Kaup­manna­hafnar. Meðal þeirra sem fjarri voru góðu gamni var for­seti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson. Veislan fór fram eins og ráð var fyrir gert þótt langtum færri væru við­staddir en til stóð. Af þessum sökum stóð til að veislan nú yrði sér­lega veg­leg.

Hin ástæða þess, og kannski sú veiga­meiri, að til stóð að svo mikið skyldi lagt í afmæl­is­fagn­að­inn að þessu sinni er að kannski hefði þetta orðið síð­asti stóri afmæl­is­fagn­aður Mar­grétar Þór­hildar. Að minnsta kosti ef marka má orð drottn­ingar sjálfrar. Í við­tali sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði viku­rits­ins Alt for damerne, og var tekið skömmu áður en kór­óna­veiran bloss­aði upp, sagð­ist drottn­ingin ekki sjá fyrir sér tíu ár framundan (jeg tror ikke der er ti år foran mig). Þrátt fyrir að hún væri hraust og fynd­ist ekki halla undan fæti yrði þó að líta með raun­sæi á hlut­ina og út frá því sjón­ar­miði met ég það svo að ekki séu tíu ár eftir. Hún sagð­ist ekki vera upp­tekin af aldr­inum „ég er alltaf með 117 hluti í gangi og hugsa ekki um ald­ur­inn.“

Frá 2. apríl og fram á haust

Ráðgert var að við­burðir vegna átt­ræð­is­af­mælis drottn­ingar hæfust með opnun mynd­list­ar­sýn­ing­ar­innar „Dronn­ing­ens por­trætter“ í Frið­riks­borg­ar­höll­inni í Hillerød á Sjálandi. Þarna stóð til að sýna margar myndir af drottn­ing­unni, frá ýmsum tímum, og eftir fjöl­marga lista­menn. Við opnun sýn­ing­ar­innar átti jafn­framt að afhjúpa nýtt mál­verk af drottn­ing­unni.

Í kjöl­far þess­arar opn­unar átti svo hver við­burð­ur­inn að reka annan, hápunkt­ur­inn auð­vitað afmæl­is­dag­ur­inn sjálfur, 16. apríl.

Ætlunin var að fjöl­skylda Mar­grétar Þór­hildar kæmi út á svalir hallar Krist­jáns IX á Amali­en­borg, en ekki á höll Krist­jáns VII, eins og venjan er. Ekki mikil breyt­ing (hall­irnar fjórar á Amali­en­borg líkj­ast hver annarri) en átti þó að sýna að þessi afmæl­is­dagur skæri sig úr.

Að þessu loknu stóð til að drottn­ingin æki í hátíð­ar­vagni hirð­ar­innar, gull­vagn­inum svo­nefnda, um götur borg­ar­innar og að Ráðhúsi Kaup­manna­hafnar. Þar yrðu ræðu­höld og skemmti­at­riði (eins og það var orðað í til­kynn­ingu) og drottn­ingin myndi koma fram á svalir Ráð­húss­ins. Sér­stakur hátíð­ar­kvöld­verður var svo ráð­gerður í höll­inni á Fredens­borg, að eigin sögn eft­ir­læt­is­bú­stað Mar­grétar Þór­hildar.

Hin árlega sum­ar­sigl­ing drottn­ingar á skipi hennar hátignar Dannebrog, þar sem komið er við á nokkrum stöðum, átti að vera í tveimur áföngum í ár (nokkrir dagar í senn) og ljúka í byrjun sept­em­ber og marka þar með lok afmæl­is­við­burð­anna.

Svo kom COVID-19

11. mars til­kynnti Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra að ákveðið hefði verið að loka Danmörku (lukke Danmark ned) vegna kór­ónu­far­ald­urs­ins. Ekki þarf að útlista hvað þessi ákvörðun þýddi, sam­fé­lagið meira og minna lamað.

12. mars, dag­inn eftir yfir­lýs­ingu for­sæt­is­ráð­herr­ans sendi drottn­ingin frá sér til­kynn­ingu um að öllum við­burðum sem tengd­ust afmæli hennar væri aflýst. Danska útvarpið, DR, verður hins­vegar með viða­mikla dag­skrá í kringum afmælið og sömu­leiðis sjón­varps­stöðin TV2

17. mars flutti drottn­ingin útvarps- og sjón­varps­ávarp til þjóð­ar­innar. Það að þjóð­höfð­ing­inn ávarpi þjóð­ina, fyrir utan hefð­bundið ára­móta­ávarp, er mjög fátítt. Hafði raunar ekki gerst í Danmörku frá stríðslokum, en 5. maí 1945 (befri­el­ses­dagen) ávarp­aði kóng­ur­inn, Kristján X, þjóð sína.

Danskir stjórn­mála­skýrendur voru á einu máli um að það hefði verið rétt ákvörðun hjá drottn­ing­unni að tala til þjóð­ar­innar við þessar aðstæður. Margrét Þór­hildur nýtur mik­illa vin­sælda hjá dönsku þjóð­inni og orð hennar við aðstæður sem þessar vega þungt, mun þyngra en orð stjórn­mála­manna.

Ávarpið var stutt en boð­skap­ur­inn til þjóð­ar­innar var að allir yrðu að sýna ábyrgð og fara að fyr­ir­mælum yfir­valda. Gildir um okkur öll sagði sagði drottn­ingin. Fréttir hefðu borist af því að ekki fylgdu allir fyr­ir­mæl­unum, væru jafn­vel að halda fjöl­mennar veislur. Slíkt væri mikið ábyrgð­ar­leysi.

Drottn­ingin leggur sjaldan orð belg í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni. Helst þó í nýárs­ræðum sínum og í ræðu hennar um síð­ustu ára­mót ræddi hún um hve við­kvæm jörðin er og ábyrgðin er okkar.

Ummæli hennar í löngu við­tali sem birt­ist í dag­blað­inu Politi­ken í gær (11.4. 2020) hafa hin­vegar vakið tals­verða athygli. Þar sagði drottn­ingin orð­rétt „Jamen, at menn­esker spiller en rolle i klimafor­an­andrin­ger, det er der nok ingen tvivl om. Men om de er skabte – direkte – det er jeg ikke ganske over­bevist om.“

Danskir stjórn­mála­menn hafa verið spurðir út í þessi ummæli. Álit þeirra skipt­ist í tvö horn, sumir segja að auð­vitað hafi hún rétt til að segja skoðun sína, aðrir segja und­ar­legt að drottn­ingin lýsi efa­semdum um álit vís­inda­manna.

Einn stjórn­mála­skýr­andi komst svo að orði að kannski hefði drottn­ingin átt að sleppa þess­ari setn­ingu. Stjórn­mála­skýr­andi danska útvarps­ins sagði að drottn­ingin væri svo vin­sæl að ummæli sem þessi breyttu engu.

Drottning í 48 ár

Margrethe Alex­andrine Þór­hildur Ingrid, eins hún heitir fullu nafni hefur verið drottn­ing Dan­merkur í 48 ár. Nafnið Þór­hildur er íslenskt og ástæða þess að þar eru tveir stafir (þ og ó), sem ekki er að finna í danska staf­róf­inu er að þegar Margrét Þór­hildur fædd­ist var afi hennar, Kristján X kon­ungur kon­ungs­ríks­ins Íslands.

Hún er elst þriggja dætra Friðriks IX (1899-1972) og Ingiríðar drottn­ingar (1910-2000), þau eign­uð­ust ekki son. Fram til árs­ins 1953 gerðu lögin um kon­ungs­dæmið ráð fyrir að þjóð­höfð­ing­inn væri væri karl­maður en laga­breyt­ing sem þá var gerð þýddi að Margrét Þór­hildur yrði þjóð­höfð­ingi að föður sínum gengnum. Árið 2009 var gerð önnur breyt­ing á þessum lögum, í henni fólst að elsta barn, óháð kyni, skyldi erfa krún­una en breyt­ingin frá 1953 var tak­mörkuð við Margréti Þórhildi.

Friðrik IX lést 14. jan­úar 1972. Hann hafði verið kon­ungur frá árinu 1947. Margrét Þór­hildur hefur í við­tölum sagt að þótt faðir sinn hefði ekki verið heilsu­hraustur síð­ustu árin hefði frá­fall hans, eftir nokk­urra daga veik­indi, komið á óvart.

Í við­tals­bók, sem kom út skömmu eftir síð­ustu alda­mót, sagði drottn­ingin að hún hafi verið nokkuð vel und­ir­búin að taka við krún­unni „þótt maður sé kannski aldrei algjör­lega til­bú­inn“.

Margrét Þór­hildur lagði stund á heim­speki við Hafn­ar­há­skóla og forn­leifa­fræði við Háskól­ann í Cambridge. Á árunum 1961-1965 las hún stjórn­mála­fræði við Háskól­ann í Árósum, Sorbonne í París og við London School of Economics, LSE. Auk dönsku er drottn­ingin altalandi á sænsku, ensku, frönsku og þýsku.

Árið 1967 gift­ist Margrét Þór­hildur Frakk­anum Henri Marie Jean André greve de Laborde de Monpezat. Við brúð­kaupið fékk hann nafnið Prins Henrik af Danmark. Henrik, sem var fæddur 1934 og lést 2018, var alla tíð ósáttur við að hann skyldi ekki vera kon­ungur, en danska stjórn­ar­skráin leyfir ekki að kóngur sé lægra settur en drottn­ing. Henrik varð því að sætta sig við að vera prins eða prins­gemal (drottn­ing­ar­maður).

Þau hjónin voru bæði áhuga­söm um listir, drottn­ingin hefur mynd­skreytt bækur, gert leik­myndir og bún­inga­teikn­ingar fyrir leik­sýn­ingar. Henrik gaf út nokkrar ljóða­bækur, með eigin mynd­skreyt­ingum. Hann var áhuga­maður um mat og garð­rækt og skrif­aði margar mat­reiðslu­bækur, hann samdi einnig nokkur lög og var ágætur píanó­leik­ari. Stundaði um ára­bil nám í högg­mynda­list og eftir hann liggja mörg slík verk. Árið 2014 héldu hjónin sam­eig­in­lega sýn­ingu á verkum sínum á AROS lista­safn­inu í Árósum, 300 þús­und gestir sóttu sýn­ing­una.

Margrét Þór­hildur hefur alla tíð notið mik­illa vin­sælda meðal Dana en Henrik var ætíð umdeildur. Flestir eru þó sam­mála um að hann hafi verið konu sinni stoð og stytta, bæði í opin­berum störfum og einka­lífi. Margrét Þór­hildur og Henrik eign­uð­ust tvo syni, krón­prins­inn Friðrik, og Jóakim. Barna­börnin eru átta.

Hér í Kjarn­anum birt­ist 18.2. 2018 langur pist­ill um Henrik prins „Litríkur og fjöl­hæfur Frakki lát­inn“. Enn­fremur má benda á pistil­inn „Friðrik krón­prins fimm­tugur“ frá 27.5. 2018 og „Þegar Dana­drottn­ing vildi ekki hitta Trump“ frá 26.8. 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár