Litríkur og fjölhæfur Frakki látinn

Henrik prins, eig­in­maður Mar­grétar Þór­hildar Dana­drottn­ingar lést í síð­ustu viku, að kvöldi13. febr­úar. Prinsinn hafði glímt við veik­indi og var í skyndi fluttur heim til Dan­merkur frá Egypta­landi í lok jan­úar. Hann var alla tíð umdeildur.

Dreng­ur­inn sem síðar fékk nafnið Henri Marie Jean André (greve de Laborde de Monpezat) fædd­ist í Frakk­landi 11. júní 1934. Hann ólst upp í Frakk­landi og franska Indókína (Laos, Kambodíu og Víetnam). For­eldr­arnir voru efna­fólk með fyr­ir­tækja­rekstur í Frakk­landi og Asíu. Henri lauk her­skyldu, eins og lög gerðu ráð fyrir, lagði stund á píanó­nám en ákvað svo að fara aðra leið og lauk magister­prófi í frönskum bók­menntum og asískum tungu­málum.

Áratugum síðar rifj­aði Henri (eða Henrik á dönsku) upp í við­tali að þegar hann var í Asíu árið 1958, löngu áður en hann kynnt­ist Margréti Þórhildi, fór hann ásamt vin­konu sinni til kín­versks spá­manns. Spá­mað­ur­inn sagði Henri að hann myndi gift­ast konu sem byggi langt í burtu og ,,líf þitt verður spenn­andi, fullt af ýmsum hindr­unum og erf­ið­leikum. Þú verður þekktur, og ríkur, og eyðir ævinni að mestu í landi umkringdu vatni, eyju.“ Vin­kon­unni þótti lítið til spá­manns­ins koma en þegar litið er til baka hitti spá­mað­ur­inn naglann á höf­uðið.

Kvöldverðarboðið

Árið 1964 var Henri boðið til kvöld­verðar í London en hann var þá fyrir skömmu orð­inn starfs­maður franska sendi­ráðs­ins þar. Í þessu kvöld­verð­ar­boði sat hann við hlið ungrar konu, sem hann þekkti ekki, Þau spjöll­uðu um heima og geima, einkum um listir og bók­menntir. ,,Okkur skorti ekki umræðu­efni en þegar þessi geð­þekka unga kona sagði mér að hún væri rík­is­arfi Dan­merkur brá mér nú aðeins“ sagði Henri í við­tali árið 2000. Skömmu síðar hitt­ust þau aftur og „svo kom Amor með örv­arnar“.

Hamingjan hjálpi okkur, hann er franskur!

Í ausandi rign­ingu haustið 1966 sett­ist ung kona undir stýri á Volvo Amazon bif­reið og ók sem leið lá frá Amali­en­borg í Kaup­manna­höfn út á Kastrup flug­völl. Þetta var stuttur bíltúr, ein­ungis átta kíló­metrar en hjartað í brjósti bíl­stjór­ans sló ótt og títt. Margrét Þór­hildur var að sækja unnust­ann sem var að koma í fyrsta sinn til Kaup­manna­hafnar. Hann var enn við störf í London en hafði fengið nokk­urra daga leyfi til að heim­sækja unnust­una. Dönsku blöðin komust á snoðir um heim­sókn­ina og grófu næstu daga upp allt sem þeim var unnt um þennan til­von­andi maka rík­is­arfans. Eitt blað­anna greindi frá því að þegar blaða­maður greindi gömlum konum sem sátu á bekk í miðbæ Kaup­manna­hafnar frá því að unnusti rík­is­arfans væri í borg­inni, og hann væri franskur, slógu gömlu kon­urnar sér á lær og sögðu ,,Gud bevare Danmark“. Nýárs­ræður drottn­ingar enda reyndar ætíð á þessum orðum en það er önnur saga! ,,Ætli hann sé ótta­legt snobb, þekkir örugg­lega ekki rúg­brauð og vill þrjár teg­undir af osti með krít­hvítum frönskum rúnn­stykkjum“ sögðu gömlu kon­urnar á bekknum. Þær vissu ekki, og kannski jafn­gott, að unnusti rík­is­arfans myndi síðar iðu­lega klæð­ast rauðum buxum, blárri skyrtu og gulum eða grænum jakka.

Hlustaði ekki á pabba

Margrét Þór­hildur og Henri voru gefin saman í Hólmsins kirkju í Kaup­manna­höfn 10. júní 1967. Henri tók þá upp danska nafnið Henrik og var jafn­framt kall­aður prins. Henrik sagði í við­tölum að sér væri mjög vel ljóst hlut­skipti sitt, sem maka rík­is­arfans og hann sætti sig fylli­lega við það. Það gerði hann líka fyrst í stað, en það átti eftir að breyt­ast.

Þegar Henrik greindi for­eldrum sínum frá fyr­ir­hug­uðum ráða­hag, að hann ætl­aði að kvæn­ast rík­is­arfa Dan­merkur, sagði faðir hans að hann yrði strax að fá á hreint hvaða skyldum honum væri ætlað að gegna og hvert hlut­verk hans yrði. Henrik þótti þetta óþarfa áhyggjur en sá síðar að hann hefði betur hlustað, og tekið mark á, orðum föður síns. Danska hirðin vissi ekk­ert hvaða störf og verk­efni ætti að fela þessum nýja tengda­syni þjóð­ar­innar, hann fékk litla skrif­stofu í höll­inni, síma, skrif­færi og rit­ara sem fyrst í stað hafði engin verk­efni, frekar en prins­inn. Þau Margrét Þór­hildur og Henrik eign­uð­ust tvo syni, krón­prins­inn Friðrik árið 1968 og Jóakim ári síðar.

14. janúar 1972

Friðrik IX kon­ungur lést aðfara­nótt 14. jan­úar 1972 og að morgni sama dags var Margrét Þór­hildur form­lega útnefnd þjóð­höfð­ingi Dana. Margrét Þór­hildur hafði skyndi­lega í mörg horn að líta, og Henrik fylgdi með, ætíð tveimur skrefum fyrir aftan eig­in­kon­una (sam­kvæmt hans eigin lýs­ingu). Þessar skyldur tóku sinn tíma, en önnur verk­efni hafði Henrik ekki. Hann sagði síðar að hann hefði gjarna viljað verja meiri tíma með drengj­unum meðan þeir voru litlir en hann reyndi að bæta það upp með barna­börn­unum. Synirnir eiga fjögur börn hvor.

Prinsa- og prinsessukraðakið

Þegar Henrik fékk tit­il­inn prins var hann einn um þann titil. Það fjölg­aði í hópnum þegar syn­irnir fædd­ust, krón­prins­inn Friðriki og Jóakim prins. Síðar, þegar barna­börnin komu til sög­unnar bætt­ust við fleiri prinsar og einnig prinsessur. Margrét Þór­hildur og Henrik ákváðu þá að hann skyldi fram­vegis, til aðgrein­ingar, bera tit­il­inn prins­gemal, drottn­ing­ar­maður. Henrik var reyndar ósáttur við að vera ekki titl­aður kóngur, segir það ekki jafn­rétti og vísar þá til þess að Mary, eig­in­kona Friðriks verði drottn­ing þegar Friðrik tekur við krún­unni. Danska stjórn­ar­skráin leyfir hins­vegar ekki að kóngur sé lægra settur en drottn­ing og nöldrið í Henrik breytti engu þar um.

Kom víða við

Eins og áður sagði tók það Henrik nokkurn tíma að ,,finna fjöl­ina“. Þegar litið er yfir ævi hans og störf sést að hann hefur víða komið við og feng­ist við fjöl­breytt verk­efni. Árið 1974 keyptu þau hjónin vín­bú­garð­inn Chateau de Cayx í Suður- Frakk­landi, skammt frá æsku­heim­ili Henriks. Þar hafði verið fram­leitt miðl­ungs­vín en Henrik stefndi mark­visst að því að fram­leiða gæða­vín og á síð­ustu árum hefur vínið frá Cayx unnið til verð­launa og hlotið við­ur­kenn­ingar. Drottn­ingin hefur iðu­lega dvalið á búgarð­inum á sumrin en ekki komið nálægt vín­fram­leiðsl­unni ,,læt duga að drekka hana“ sagði hún ein­hverju sinni í við­tali. Vín­fram­leiðsl­una seldu hjónin árið 2015 en héldu aðal­bygg­ing­unni á búgarð­inum.

Allt frá æsku fékkst Henrik við ljóða­gerð, sendi frá sér átta ljóða­bækur, sumar mynd­skreytti hann sjálfu en naut líka aðstoðar Mar­grétar Þór­hildar, sem er afkasta­mik­ill mynd­list­ar­maður. Henrik fékkst einnig nokkuð við þýð­ingar, úr frönsku á dönsku, á verkum þekktra franskra rit­höf­unda. Talaði reyndar sex tungu­mál, slakastur í dönsku sagði hann sjálfur. Þau hjónin töl­uðu ætíð frönsku sín á milli.

Um ára­bil sótti Henrik tíma í högg­mynda­gerð á Kon­ung­lega lista­há­skól­anum og eftir hann liggur fjöld­inn allur af styttum, margar steyptar í brons. Fyrir fjórum árum hélt AROS lista­safnið í Árósum stóra sýn­ingu á verkum hans og Mar­grétar Þór­hildar. Tæplega 300 þús­und manns sáu sýn­ing­una.

Henrik var mik­ill áhuga­maður um mat og mat­ar­gerð (eins og sést á vaxt­ar­lag­inu sagði hann í við­tali fyrir nokkrum árum). Hann skrif­aði nokkrar mat­reiðslu­bækur og kom margoft fram í mat­ar­gerð­ar­þáttum í sjón­varpi, þar naut kímni­gáfa hans sín vel. Garð­ur­inn við Fredens­borg­ar­höll­ina, eft­ir­læt­is­stað Henriks, ber áhuga hans á garð­rækt gott vitni og þar eyddi hann miklum tíma ár hvert. Hann var mik­ill áhuga­maður um tón­list, var prýði­legur píanó­leik­ari og samdi nokkur tón­verk.

Það sem hér hefur verið talið flokk­ast allt undir tóm­stundagaman. En Henrik kom víðar við. Hann tók virkan þátt í starfi Rauða Krossins og fleiri sam­taka, til dæmis á sviði nátt­úru­verndar og umhverf­is­mála. For­ystu­menn í dönskum iðn­aði segja hann hafa unnið ötul­lega að því að skapa við­skipta­sam­bönd, ekki síst í Asíu. Fram­kvæmda­stjóri eins stærsta fyr­ir­tækis Dan­merkur á sviði tækni­bún­að­ar­fram­leiðslu sagði í við­tali að um þessi störf Henriks vissu fáir en þau væru að sínu mati mik­il­væg­ari en allt annað sem prins­inn hefði feng­ist við.

Afmæli, eftirlaunin og legstaðurinn

16. apríl 2015 varð Margrét Þór­hildur 75 ára og af því til­efni efnt til mik­illar og fjöl­mennrar veislu. Þar vant­aði þó einn: Henrik. Fjarvera hans vakti athygli en skýr­ingin sögð sú að hann væri las­inn. Hann virt­ist hins­vegar við hesta­heilsu tveimur dögum síðar þegar til hans sást í Feneyjum. Danskir fjöl­miðlar töldu hann vera í lang­tíma­fýlu, óánægja hans með að fá ekki kon­ungs­tit­il­inn yrði æ meira áber­andi.

Í nýársávarpi sínu á gamlárs­kvöld 2015 greindi Margrét Þór­hildur frá því að Henrik hefði ákveðið að fara á eft­ir­laun. Tæki fram­vegis þátt í færri við­burðum. Á vor­dögum 2016 til­kynnti Henrik að nú vildi hann ekki lengur bera tit­il­inn prins­gemal, nú yrði hann aftur prins Henrik.

3. ágúst 2017 varp­aði Henrik sprengju (orða­lag fjöl­miðla) inn í danskt sam­fé­lag. Til­kynnti að hann vildi ekki, þegar þar að kæmi hvíla við hlið drottn­ingar í Hró­arskeldu, ástæðan væri ein­föld ,,maður sem ekki stendur jafn­fætis konu sinni í líf­inu verð­skuldar ekki að hvíla við hlið hennar í gröf­inni.“ Danska þjóðin átti ekki til orð, þótt Henrik væri óánægður með að fá ekki að heita kóngur væri þetta nú einum of langt gengið. Ekki sagði Henrik neitt um það hvar hann vildi láta jarða sig.

Mörgum fannst sem prins­inn væri hreint ekki með fullum sönsum, sú til­gáta reynd­ist ekki fjarri lagi, þótt það kæmi ekki í ljós fyrr en nokkru síðar.

Greindist með einkenni heilabilunar

Í byrjun sept­em­ber í fyrra sendi fjöl­skylda drottn­ingar frá sér til­kynn­ingu. Þar sagði að prins Henrik hefði greinst með ein­kenni heila­bil­unar, Þetta væri nið­ur­staða ítar­legra rann­sókna sér­fræð­inga Rík­is­spít­al­ans í Kaup­manna­höfn. Fjöl­miðlar fjöll­uðu ítar­lega um þetta mál og öll þjóðin virt­ist á einu máli um að þarna væri skýr­ingin á hátta­lagi og sér­kenni­legum yfir­lýs­ingum prins­ins. ,,Maðurinn er veikur og það verður að meta ummæli hans og og hátta­lag á þeim for­sendum“. Í nýársávarpi sínu að kvöldi gaml­árs­dags 2017 fór drottn­ingin nokkrum orðum um veik­indi Henriks og þakk­aði þann stuðn­ing sem fjöl­skyldan hefði notið hjá þjóð­inni.

Lést á Fredensborg

Eftir um það bil hálfs mán­aðar veru á Rík­is­spít­al­anum í Kaup­manna­höfn var Henrik, þriðju­dag­inn 13. febr­úar, að eigin ósk fluttur til Fredens­bog­ar­hallar á Norður- Sjálandi, þar vildi hann eyða sínum síð­ustu stundum. Þær stundir urðu ekki margar, því hann lést að kvöldi þess sama dags. Fredens­borg var eft­ir­læt­is­staður Henriks, þar dvöldu þau hjónin að jafn­aði sex mán­uði árs­ins, þrjá að vori og þrjá að hausti.

Hvar vill hann hvíla?

Þetta var spurn­ingin sem strax vakn­aði þegar fréttin um and­lát Henriks barst. Ekki þurfti lengi að bíða svars því í ljós kom að hann var sjálfur búinn að skipu­leggja útfar­ar­at­höfn­ina og greftr­un­ar­stað­inn. Hann vildi láta brenna sig og hluta ösk­unnar skyldi dreift á dönsku haf­svæði, en duft­ker með ösku hans skyldi jarð­sett í einkareit fjöl­skyld­unnar í Fredens­borg­ar­garði. Útfar­ar­at­höfnin yrði ekki svokölluð ,,opin­ber útför“ en kista hans skyldi flutt á Amali­en­bog, vera þar um kyrrt í um það bil sól­ar­hring og þaðan flutt í Krist­jáns­borg­ar­kirkj­una við hlið Krist­jáns­borgar. Allt gekk þetta eftir, sam­kvæmt fyr­ir­mælum Henriks, og þar stendur kistan, lokuð, á ,,castrum doloris“, sér­stökum við­ar­palli (ekki til íslenskt orð) fram að útför sem gerð verður á þriðju­dag, 20. febr­úar. Að Henrik skyldi ákveða að jarð­neskar leifar sínar skuli brenndar er ekki sam­kvæmt hefð kon­ungs­fjöl­skyld­unnar en sú ákvörðun hefur mælst vel fyrir og ekki síður fyr­ir­mæli hans varð­andi ösk­una.

Hver verða eftirmælin

Umfjöllun um Henrik prins hefur verið mjög fyr­ir­ferð­ar­mikil í dönskum fjöl­miðlum und­an­farna daga. Að sögn sér­fróðra hefur aldrei í sög­unni verið jafn mikil umfjöllun um nokkra per­sónu og mátt hefur sjá og heyra und­an­farna daga. Ævi prins­ins hefur verið rakin í smá­at­riðum, birt gömul og nýrri við­töl við hann, rætt við fólk sem þekkti hann vel, ótelj­andi myndir af honum, frá ýmsum tímum o.s.frv. Und­an­tekn­inga­laust tala allir sem kynnt­ust Henrik vel um hann. Hann hafi verið skemmti­legur, áhuga­samur um fólk, mjög vel að sér um flesta hluti. Ekta frans­maður sem fór sínar eigin leiðir og það mælt­ist ekki alltaf vel fyrir í þessum ,,litla anda­polli“ eins og ein­hver komst að orði. Einn við­mæl­andi danska útvarps­ins sagði það hefðu ugg­laust verið mikil við­brigði fyrir þennan heims­vana Frakka að flytja til Dan­merkur, sem á þeim tíma var ,,þró­un­ar­land í mat­ar­gerð­ar­lyst“.

Henrik var oft skot­spónn fjöl­miðla. Þeir hædd­ust að klæðn­aði hans sem var lit­skrúð­ugri en hinir svart­klæddu Danir áttu, og eiga, að venj­ast. Mest grín var þó gert að dönsk­unni hjá prins­inum. Hann hafði mik­inn orða­forða en náði aldrei góðum tökum á fram­burð­inum. Sagði sjálfur að hann hefði þurft að leggja sig langtum meira fram til að ná tökum á dönsku tal­máli. Í við­tali við dag­blaðið Politi­ken sagði einn sem við var rætt að Danir ættu kannski að líta í eigin barm, þeir væru nú upp til hópa ekki neinir sér­stakir tungu­mála­snill­ingar.

Sjálfum var Henrik kannski alveg sama þótt grín væri gert að ýmsu í fari hans, honum sárn­aði hins­vegar þegar hann var sak­aður um að vera ekki ,,ekta Dani“. Flestir, ef ekki allir eru sam­mála um að hann hafi verið Margréti Þórhildi mikil stoð og stytta, bæði á opin­berum vett­vangi og sem lífs­föru­nautur, þau voru gift í rúma hálfa öld.

Það hve margir hafa séð ástæðu til að votta honum og fjöl­skyld­unni virð­ingu sína und­an­farna daga hefði ugg­laust glatt hann en þús­undir Dana hafa lagt leið sína til Amali­en­borgar, Fredens­borgar, Graasten­hallar og Mar­sel­is­hallar í Árósum og lagt þar blóm­vendi og kveðjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár