Þegar Danadrottning vildi ekki hitta Trump

Eins og margir vita verður ekk­ert af Dan­merk­ur­heim­sókn Donalds Trumps og hann hittir því ekki Margréti Þórhildi drottn­ingu. Fyrir 28 árum kom hún sér hjá því að hitta Trump í New York.

Margrét Danadrottning hefur setið sem drottning frá árinu 1972.
Margrét Dana­drottn­ing hefur setið sem drottn­ing frá árinu 1972. Mynd: EPA

Árið 1991 fór Margrét Þór­hildur drottn­ing í opin­bera heim­sókn til Washington í boði for­set­ans, George Bush eldri. Fjöldi emb­ætt­is­manna var með í för, ásamt Uffe Ellemann Jensen þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra. Hann sagði frá þess­ari heim­sókn í bók­inni „Du store ver­den“ sem hann skrif­aði ásamt Mogens Lykketoft, sem kom út í fyrra.

Eftir að hinni opin­beru heim­sókn lauk dvaldi drottn­ingin í New York, ásamt Uffe Ellemann Jensen. Þau, ásamt fleirum í fygld­ar­liði drottn­ingar bjuggu á Hotel Plaza við Central Park. Þremur árum fyrr hafði maður að nafni Donald Trump keypt þetta hótel. Í grein í New York Times sagði hann hreyk­inn frá því að hann hefði ekki bara keypt hús, hann hefði keypt „meist­ara­verk – Monu Lisu“.

Hót­el­eig­and­inn hafði frétt að Margrét Þór­hildur byggi á hót­el­inu og kom nú, með miklum asa, og vildi fá að hitta drottn­ing­una til þess að fá tekna mynd af þeim tveim. „Ég fékk skila­boð um að drottn­ingu þætti þetta ekki góð hug­mynd, og ráð­herr­ann skyldi sjá til þess að af þessu yrði ekki“ segir Uffe Ellemann í bók­inni. Ég fór þess vegna og spjall­aði við hót­el­eig­and­ann Trump meðan Margrét Þór­hildur laum­að­ist út bak­dyra­megin. Trump virk­aði klunna­legur, heimsku­legur (dum) og áhuga­laus.

„Ég brá á það ráð að segja honum nokkrar skrök­sögur um Grænland og líka af mat­ar­venjum Græn­lend­inga. Skyndi­lega sá ég að mað­ur­inn hlust­aði af athygli. Aðstoð­ar­maður Trump hrós­aði mér á eftir og sagði að Trump hefði tak­mark­aða hæfi­leika til að hlusta en þér tókst að fá hann til að halda athygl­inni.“

Samkvæmt frá­sögn Uffe Ellemann Jensen reyndi Donald Trump ekki aftur að fá tekna mynd af sér og Margréti Þórhildi meðan drottn­ingin dvaldi á Hotel Plaza.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár