Trump fer enn og aftur á svig við skilmála samfélagsmiðla

Donald Trump sagði í síma­við­tali við Fox and Friends í gær að börn væru „næstum ónæm“ fyrir kór­ónu­veirunni. Facebook-færslu frá for­set­anum með ummæl­unum var eytt og Twitter frysti aðgang tengdan for­set­anum.

Trump sagði öruggt að opna bandaríska skóla því börn væru „næstum ónæm“ fyrir COVID-19.
Trump sagði öruggt að opna banda­ríska skóla því börn væru „næstum ónæm“ fyrir COVID-19. Mynd: EPA

Facebook-færslu Donalds Trumps var eytt í gær vegna þess að í mynd­bandi sem fylgdi færsl­unni setti Trump fram full­yrð­ingar um COVID-19 sem áttu ekki við rök að styðj­ast. Twitter fylgdi í kjöl­farið og frysti aðgang sem tengdur er fram­boði Trumps í kom­andi for­seta­kosn­ingum þar til sam­bæri­legri færslu hafði verið eytt af Twitter.

Í mynd­band­inu sagði Trump að börn væru næstum ónæm fyrir kór­ónu­veirunni og COVID-19 sjúk­dómnum sem hún veldur. „Ef horft er til barna þá eru börn næstum, og ég myndi næstum segja algjör­lega, en þau eru næstum ónæm fyrir sjúk­dómnum,“ sagði Trump og bætti svo við: „Þau hafa sterkara, það er erfitt að trúa því og ég veit ekki hvað ykkur finnst um það, en þau hafa miklu sterkara ónæm­is­kerfi heldur en við þegar kemur að þessu.“

Orðin lét Trump falla í síma­við­tali í sjón­varps­þætt­inum Fox and Friends en hann er þar tíður gestur. Umræðu­efnið var opnun skóla í Banda­ríkj­unum og taldi hann öruggt að opna skóla í haust vegna ofan­greindra rök­semda.

Fullyrðingar sem eiga ekki við rök að styðjast

Í frétt BBC er haft eftir tals­manni Facebook að mynd­bandið inni­haldi full­yrð­ingar sem eigi ekki við rök að styðj­ast. Full­yrð­ingar um að til­tek­inn hópur fólks sé ónæmur fyrir COVID-19 brjóti skil­mála Facebook sem snúi að mis­vísandi full­yrð­ingum um kór­ónu­veiruna. Þetta er í fyrsta sinn sem Facebook fjar­lægir efni frá for­set­anum á grunni þess­ara skil­mála.

Líkt og áður sagði frysti Twitter aðgang sem tengdur er fram­boði Trumps vegna sama mynd­bands. Tístið hafi brotið gegn sams konar skil­málum, um dreif­ingu rangra upp­lýs­inga um COVID-19. Tístinu var síðar eytt.

Ekki í fyrsta sinn

[links]Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Trump fer á svig við skil­mála sam­fé­lags­miðl­anna. Í maí á þessu ári sá Twitter ástæðu til þess að hylja tíst frá for­set­anum. Með tíst­inu braut Trump skil­mála Twitter með því að „upp­hefja ofbeldi“. Tístið er enn á vegg for­set­ans en yfir því er orð­send­ing frá Twitter sem segir tístið hafa brotið skil­mála mið­ils­ins en að því hafi verið leyft að standa því það gæti varðað almanna­hags­muni. Smella þarf á sér­stakan hnapp til að skoða tístið og fela þar með til­kynn­ing­una.

Skömmu áður hafði Trump sent frá sér tíst þar sem hann hélt því fram að póst­kosn­ingar myndu leiða til víð­tæks kosn­inga­svindls. Twitter brást við með því að setja tengil á stað­reyndir um póst­kosn­ingar fyrir neðan tístið. Ef not­endur fylgdu tengl­inum fengu þeir upp­lýs­ingar frá fjöl­miðlum og sér­fræð­ingum um að sú væri ekki raunin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár