Trump steig á endanum yfir línuna sem Twitter hafði dregið í sandinn

Árið 2018 byrj­aði Twitter að þróa lausn til að bregð­ast við því að stjórn­mála­menn töl­uðu með mis­vísandi eða meið­andi hætti á miðl­inum. Í þess­ari viku beitti mið­il­inn þessu með­ali sínu gegn Donald Trump í fyrsta sinn. Og sá varð reiður.

Donald Trump á blaðamannafundi í vikunni, þar sem hann undirritaði forsetatilskipun sem ætlað er að refsa einkafyrirtækjum fyrir að ritskoða efni á internetinu.
Donald Trump á blaða­manna­fundi í vik­unni, þar sem hann und­ir­rit­aði for­seta­til­skipun sem ætlað er að refsa einka­fyr­ir­tækjum fyrir að rit­skoða efni á inter­net­inu. Mynd: EPA

Twitter tók stórt skref á þriðju­dag, þegar sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­tækið setti í fyrsta skipti tengil á stað­reyndir um póst­kosn­ingar fyrir neðan tvö tíst Banda­ríkja­for­seta, þar sem hann hélt því fram að úti­lokað væri annað en að póst­kosn­ingar myndu leiða til víð­tæks kosn­inga­svindls og verið væri að senda kjör­seðla í Kali­forníu til allra sem þar búa, líka þeirra sem ekki hefði kosn­inga­rétt. Ef not­endur fylgdu tengl­inum fyrir neðan tíst for­set­ans fengu þeir upp­lýs­ingar frá fjöl­miðlum og sér­fræð­ingum um að sú væri reyndar ekki raunin.

Sam­fé­lags­mið­ill­inn hefur lengi verið að vand­ræð­ast með hvernig eigi að taka á Trump, sem nýtir Twitter stans­laust dag­inn út og inn til þess að tjá sig um menn og mál­efni með óbeisl­uðum hætti. Oft­sinnis hefur hann farið á svig við þær reglur sem allir not­endur Twitter þurfa að sam­þykkja þegar þeir stofna þar aðgang, en sam­fé­lags­mið­ill­inn hefur aldrei eytt tístum for­set­ans eða hrein­lega bannað hann, eins og gert hefur verið við fjöl­marga not­endur sem fara gegn reglum. En á þriðju­dag var Trump stað­reynda­vaktaður.

Viðbrögð for­set­ans voru fyr­ir­sjá­an­leg. Hann sak­aði Twitter um að hefta mál­frelsi sitt og hót­aði að grípa til aðgerða gegn sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­tækjum, sem hann telur vera að stunda póli­tík og reyna að skerða mál­frelsi íhalds­manna. Á fimmtu­dag kynnti Trump svo að hann vildi breyta lögum sem í dag verja sam­fé­lag­miðl­ana fyrir því að þurfa að taka laga­lega ábyrgð á flestu því sem not­endur þeirra segja.

[adspot]

Laga­breyt­ingin sem Trump vill gera myndi leiða til þess að sam­fé­lags­miðl­arnir þyrftu að velja á milli þess að rit­skoða gjör­sam­lega allt sem inn á þá er sett, sökum þess að þeir yrðu gerðir ábyrgir fyrir ummælum not­enda, eða stíga alveg til baka – og leyfa Trump og öllum öðrum að spúa fals­heitum og róg­burði án þess að aðhaf­ast nokkuð.

Miðnæturfundur hjá Jack og félögum

Það er ekki eitt heldur allt í gangi í Banda­ríkj­unum þessa dag­ana. Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn geisar enn, yfir 100.000 manns eru látin og efna­hag­ur­inn er í gjör­sömu upp­námi. Trump hjólar sem aldrei fyrr í Kína og Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ina og kennir þeim um far­ald­ur­inn og afleið­ingar hans. Miklar óeirðir eru í fjöl­mörgum borgum lands­ins vegna lög­reglu­of­beldis gegn svörtum manni í Minn­ea­polis að nafni George Floyd, sem leiddi til dauða hans.

Um þetta allt og fleira ræðir for­set­inn á Twitter. Á fimmtu­dags­kvöld setti hann inn færslu þar sem hann ræddi átök á milli lög­reglu og mót­mæl­enda í Minn­ea­polis. Trump kall­aði þá sem að óeirð­unum stóðu „þrjóta“ (e. thugs), sagði að þjóð­varð­lið­inu yrði beitt og bætti við að þegar grip­deildir myndu hefj­ast, myndi skot­hríðin einnig hefj­ast (e. when the looting starts, the shooting starts).

Þegar tístið fór í loftið var klukkan að nálg­ast mið­nætti í San Fransiskó þar sem Twitter er með höf­uð­stöðvar sínar. Nær sam­stundis var kallað til fjar­fundar fleiri en tíu starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins, þeirra á meðal stofn­and­ans og for­stjór­ans Jack Dorsey, til þess að ákveða hvað skyldi aðhaf­ast.

Eftir að hafa rætt málin sín á milli á sam­skipta­for­rit­inu Slack og í gegnum Google Docs var ákvörðun tekin um að fela tíst for­set­ans á bak við við­vörun þess efnis að um væri að ræða efni sem „upp­hefði ofbeldi“ (e. glorified violence) og bryti því gegn reglum mið­ils­ins. Stjórn­endur Twitter ákváðu þó að leyfa tíst­inu að standa, þar sem það gæti varðað almanna­hags­muni.

Þessi skref sem Twitter hefur tekið í vik­unni eiga sér nokkurn aðdrag­anda, en árum saman hefur staðið yfir umræða innan fyr­ir­tæk­is­ins um hvernig skuli taka á ósönnum stað­hæf­ingum Trumps og ann­arra stjórn­mála­manna.

Samkvæmt umfjöllun New York Times, sem bygg­ist meðal ann­ars á upp­lýs­ingum frá ónafn­greindum núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­mönnum sam­fé­lags­mið­ils­ins, hóf Twitter vinnu sem mið­aði að því að gera fyr­ir­tæk­inu kleift að bregð­ast við ósönnum eða óvið­eig­andi tístum frá Trump og öðrum stjórn­mála­leið­togum, án þess að fjar­lægja þau af síð­unni, árið 2018.

Ráðist var í að hanna úrræði sem mið­ill­inn gæti gripið til í þessu skyni eftir að Trump hót­aði því, eft­ir­minni­lega, að gjör­eyða Norður-Kóreu með kjarn­orku­sprengjum og réðst sömu­leiðis á Omarosu Man­igault Newman, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­mann sinn, með meið­andi ummælum eftir að hún gaf út bók um störf sín í Hvíta hús­inu.

Þessi úrræði voru kynnt síð­asta sumar og þeim hefur áður verið beitt til þess að fela tíst stjórn­mála­manna, eða til að setja við þau var­úð­ar­stimpil um ósann­indi. Í byrjun apríl reyndi brasil­ískur stjórn­mála­maður, Osmar Terra, að sann­færa fylgj­endur sína um að kór­ónu­veirutil­fellum fjölg­aði þegar sótt­kví­ar­ráð­stöf­unum væri beitt. Það tíst er nú falið.

Í vik­unni hafa svo fleiri verið stað­reynda­vaktaðir en ein­ungis Trump. Twitter hefur til dæmis sett tengil fyrir neðan tíst frá Lijian Zhao, tals­manni kín­verska utan­rík­is­ráðu­neytis, þar sem hann heldur því fram að kór­ónu­veiran hafi átt upp­runa sinn í Banda­ríkj­unum. „Fáðu stað­reynd­irnar um COVID-19“ stendur nú fyrir neðan tístið hans, rétt eins og vísað er á stað­reyndir fyrir neðan tíst Trumps um póst­kosn­ingar.

Facebook ekki sammála þessari stefnu

Twitter virð­ist ætla að taka þennan slag áfram, þrátt fyrir hót­anir for­set­ans um að grípa til aðgerða gegn sam­fé­lags­miðl­unum. En ekki allir eru hrifnir af þessu og þeirra á meðal er stofn­andi Facebook, Mark Zuckerberg. Hann sagði við Fox News á mið­viku­dag að Twitter, Facebook og önnur einka­fyr­ir­tæki ættu ekki að taka sér „úrskurð­ar­vald yfir sann­leik­anum“ varð­andi allt það sem fólk segir á net­inu.

Afstaða Facebook til þess­ara mála var til umræðu á innri vef fyr­ir­tæk­is­ins í vik­unni. Umræð­urnar þar láku út og greinir vef­mið­ill­inn Verge frá því að nokkur órói hafi verið á meðal starfs­manna Facebook um þá ákvörðun fyr­ir­tæk­is­ins að láta ummæli Trumps, um að skot­hríðin hæf­ist þegar grip­deild­irnar byrj­uðu, óátalin.

Öfugsnúin glíma sem er rétt að hefjast

Áhuga­vert verður að fylgj­ast með þess­ari glímu tækni­fyr­ir­tækj­anna og Banda­ríkja­for­seta á næst­unni, því Trump er að reyna að neyða einka­fyr­ir­tæki til þess að láta flest allt sem fólk segir á miðl­unum standa óátalið.

Þetta er öfug­snúið, því eins og bent er á í frétta­skýr­ingu vef­mið­ils­ins Axios um þetta mál þá ótt­uð­ust net­frels­is­bar­áttu­menn það á tíunda ára­tugnum, þegar verið var að setja núver­andi lag­ara­mma um inter­netið, að stjórn­völd myndu reyna að stýra því sem þar mætti segja og gera.

Engum hefði dottið í hug, á þeim tíma, að sitj­andi for­seti Banda­ríkj­anna yrði sá sem myndi veina undan rit­skoðun og reyna að hefta frelsi einka­fyr­ir­tækja sem starfa á net­inu til að fá að fram­fylgja sínum eigin reglum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bandaríkjaforseti

Fréttirbandaríkjaforseti

Donald Trump verður for­seta­efni Repúblikana­flokks­ins

Ted Cruz hefur hætt fram­boði sínu og sæk­ist ekki lengur eftir því að verða for­seta­efni Repúblíkana­flokks­ins í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum í haust. Það þýðir að Donald Trump verður for­seta­efni flokks­ins. Reince Priebus, for­maður flokks­ins, hefur lýst þess­ari nið­ur­stöðu yfir opin­ber­lega.Þetta gerð­ist í kjöl­far þess að Trump vann stór­sigur á Cruz í for­kosn­ingum í Indiana-ríki í nótt. Cruz var eini fram­bjóð­and­inn...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár