Trump um Trump frá Trump til Trumps

Banda­rískir ráða­menn reyna nú hvað þeir geta að bæta fyrir geð­vonsku­tíst og eft­irá­skýr­ingar Banda­ríkja­for­seta um aflýs­ingu Dan­merk­ur­ferðar sinnar. Ástæðuna sagði for­set­inn þá að danski for­sæt­is­ráð­herr­ann vildi ekki ræða hug­mynd hans um kaup á Græn­landi.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Frétt banda­ríska dag­blaðs­ins The Wall Street Journal um áhuga Donald Trumps Banda­ríkja­for­seta á að kaupa Grænland vakti heims­at­hygli þegar hún birt­ist 16. ágúst sl. For­set­inn stað­festi sama dag frétt blaðs­ins. Ýmsir héldu, í fyrstu, að Trump hefði verið að grín­ast en svo reynd­ist ekki vera. Hann var að tala í fúl­ustu alvöru og útskýrði á frétta­manna­fundi að í raun væri kaup og sala á Græn­landi í grunn­inn fast­eigna­við­skipti. Sér hefði verið bent á að Danir bæru árlega mik­inn kostnað vegna Græn­lands sem þeir myndu losna við með sölu á þess­ari land­ar­eign, eins og for­set­inn komst að orði.

Undrun

Hug­myndin um kaup Banda­ríkj­anna á Græn­landi vakti, eins og áður var nefnt, mikla athygli. Danskir og græn­lenskir stjórn­mála­menn voru vart búnir að nudda stír­urnar úr aug­unum að morgni 16. ágúst þegar fjöl­miðlar byrj­uðu að hringja og leita álits. Viðbrögð þeirra voru á einn veg: hug­myndin væri aldeilis frá­leit. Tímar slíkrar land­sölu sem Banda­ríkja­for­seti hefði í huga væri löngu liðnir og þar að auki hefðu dönsk stjórn­völd ekk­ert leyfi til að selja Grænland, rétt si svona. Sumir gengu svo langt að segja þessi ummæli for­set­ans stað­festa það sem ýmsir hefðu talið sig vita: for­set­inn væri flón (fjols). „Apr­ílgabb á alröngum tíma“ sagði Lars Løkke Rasmus­sen fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra.

Í yfir­lýs­ingu græn­lensku land­stjórn­ar­innar sagði að Græn­lend­ingar hefðu áhuga á við­skiptum en ekki á sölu lands­ins. Hafi þessi við­brögð náð eyrum for­set­ans verður að telja lík­legt að hann hafi litið á þau eins og hvern annan golu­þyt og kært sig koll­óttan. En við­brögð danska for­sæt­is­ráð­herr­ans fóru hins­vegar ekki fram­hjá for­set­anum.[adspot]

Aflýsti Danmerkurferðinni

Frétta­maður danska sjón­varps­ins, DR, hitti Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra að kvöldi sunnu­dags 20. ágúst og leit­aði álits hennar á hug­mynd Banda­ríkja­for­seta. Spurn­ingin og svarið birt­ast hér orð­rétt, á dönsku:

- Trump vil gerne købe Grønland, siger han. Hvilke tanker gør du dig i den anledn­ing?

Statsmini­steren svarede:

- Jeg gør mig ikke nogen som helst tanker i den for­bindelse. Det er jo en abs­urd diskussion, og Kim Kielsen (Grøn­lands lands­styreform­and) har sel­vfølgelig gjort det klart, at Grønland ikke er til salg, og så stopper snakken med det.

Danir, eins og við Íslend­ingar, eru vanir að nota orðið abs­urd (absúrd) um það sem þykir frá­leitt, fjar­stæðu­kennt eða jafn­vel fárán­legt. For­sæt­is­ráð­herra Dana þótti hug­mynd Donald Trumps sem sé frá­leit. Og nefndi jafn­framt að for­maður græn­lensku land­stjórn­ar­innar hefði lýst því yfir að Grænland væri ekki til sölu. Og meira væri ekki um það að segja.

Þar skjátl­að­ist Mette Frederik­sen. Donald Trump hafði ýmis­legt um þetta að segja. Á Twitter, þar sem for­set­inn tjáir sig gjarna, hrós­aði hann Dönum og jafn­framt danska for­sæt­is­ráð­herr­anum fyrir að tala hreint út varð­andi Grænland. Hann sagði enn­fremur að í ljósi þess að for­sæt­is­ráð­herr­ann vildi ekki ræða sölu á Græn­landi hefði hann ákveðið að fresta Dan­merk­ur­ferð sinni en hlakka til slíkrar heim­sóknar, síðar. Þetta var aðfara­nótt mið­viku­dags­ins 21. ágúst. Hafi ein­hverjir ímyndað sér að þar með væri þetta Græn­lands­mál úr sög­unni, í huga for­set­ans, skjátl­að­ist þeim.

Absurd

Að kvöldi mið­viku­dags­ins, sama dags og for­set­inn hafði aflýst, eða frestað, Dan­merk­ur­ferð­inni var skyndi­lega komið annað hljóð í strokk­inn. Þá hafði hrós í garð danska for­sæt­is­ráð­herr­ans skyndi­lega breyst í hneykslun vegna eins orðs í við­tali ráð­herr­ans við Danska sjón­varpið. Þetta var orðið abs­urd. For­set­inn lýsti því yfir að svona tali menn ekki við Banda­ríkin „að minnsta kosti ekki meðan ég er for­seti. Hún (Mette Frederik­sen) hefði bara getað sagt nei“.

Stjórn­mála­skýrendur austan hafs og vestan segja þessa skyndi­legu kúvend­ingu eiga sér allt aðrar skýr­ingar. Að nota þetta orð til að ráð­ast á danska for­sæt­is­ráð­herr­ann sé tylli­á­stæða en jafn­framt dæmi­gert fyrir for­seta Banda­ríkj­anna. Hann hafi áttað sig á því að sú skyndi­á­kvörðun hans að hætta við Dan­merk­ur­heim­sókn­ina, og hugs­an­leg kaup á Græn­landi, mælt­ist ekki vel fyrir og reyni þá að beina athygl­inni annað. Nú var heim­sókn­inni ekki aflýst vegna þess að ekki yrði rætt um kaup og sölu á Græn­landi, heldur vegna þess að for­sæt­is­ráð­herra Dana var „nasty“. Orð sem Banda­ríkja­for­seti virð­ist nota þegar hann talar niður til kvenna og er ekki bein­línis úr kurt­eis­is­orða­bók­inni.

Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra sagði í við­tali að hún ætl­aði sér ekki að eiga í orða­skaki við Donald Trump. Lars Løkke Rasmus­sen fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra sagði „að það væri ekk­ert að því að afþakka boð um heim­sókn en það væri ein­kenni­legt að afþakka boð sem maður hefði sjálfur beðið um“ og vís­aði til þess að það var upp­haf­lega for­set­inn sjálfur sem óskaði eftir að verða boðið til Dan­merkur. Margir danskir stjórn­mála­menn hafa sagt að það að aflýsa opin­berri heim­sókn, með svo skömmum fyr­ir­vara, væri eins­dæmi en varð­andi Donald Trump kæmi fátt á óvart.

Klæði á vopnin

Eins og stundum áður kepp­ast nú banda­rískir stjórn­mála – og emb­ætt­is­menn við að milda áhrifin af ákvörð­unum og yfir­lýs­ingum for­set­ans. Banda­ríski utan­rík­is­ráð­herr­ann, Mike Pompeo, hringdi strax í Jeppe Kofod utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur til að full­vissa hann um að hið góða og nána sam­band ríkj­anna tveggja væri óbreytt. Danmörk er einn helsti banda­maður Banda­ríkj­anna á alþjóða­vett­vangi, þótt for­set­inn blási. Banda­ríkja­menn vilja „gott veður“ í sam­skiptum sínum við Dani, og Græn­lend­inga. Þeir hags­munir eru gagn­kvæmir því Danir eru fáir og smáir og vilja gjarna sam­vinnu við Banda­ríkin, ekki síst þegar horft er til Norð­ur­slóða.

Skjótt skipast veður í lofti

Eins og margir vita segir for­seti Banda­ríkj­anna eitt í dag og annað á morgun, er með öðrum orðum óút­reikn­an­legur. Sl. mið­viku­dags­kvöld sagði Trump að danski for­sæt­is­ráð­herr­ann hefði verið ,,nasty“ ummælum sínum um Græn­lands­hug­mynd­ina. Á fimmtu­dags­kvöld sagði for­set­inn hins­vegar að Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra væri frá­bær kona. Þau hefðu rætt saman í síma (hún hringdi sagði Trump) og þau hefðu ákveðið að ræða betur saman síðar. For­set­inn skýrði ekki nánar frá því um hvað var rætt.

AP frétta­stofan greindi frá því í gær að banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neytið hafi nýlega sent full­trúa­deild þings­ins bréf, þar sem fram komi að stjórn Trumps hygg­ist, ef sam­þykki þings­ins fæst, opna ræð­is­skrif­stofu í Nuuk. Það myndi styrkja tengsl Banda­ríkj­anna og Græn­lands segir í bréf­inu. Banda­ríkja­menn opn­uðu ræð­is­skrif­stofu í Nuuk árið 1940, eftir að Þjóð­verjar her­námu Danmörku en henni var lokað árið 1953.

Danskir pólitíkusar hrósa forsætisráðherranum

Danskir stjórn­mála­menn eru á einu máli um að Mette Frederik­sen eigi mikið hrós skilið fyrir hvernig hún tók á Græn­lands­mál­inu og hama­gang­inum í for­set­anum. Hún komið mjög vel fram, gætt þess vel að forð­ast orða­skak, verið yfir­veguð í við­tölum við fjöl­miðla. Hún hafi líka lagt áherslu á að Danir líti á Banda­ríkin sem vina­þjóð, þau góðu tengsl eigi sér langa sögu og þannig verði það áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bandaríkjaforseti

Fréttirbandaríkjaforseti

Donald Trump verður for­seta­efni Repúblikana­flokks­ins

Ted Cruz hefur hætt fram­boði sínu og sæk­ist ekki lengur eftir því að verða for­seta­efni Repúblíkana­flokks­ins í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum í haust. Það þýðir að Donald Trump verður for­seta­efni flokks­ins. Reince Priebus, for­maður flokks­ins, hefur lýst þess­ari nið­ur­stöðu yfir opin­ber­lega.Þetta gerð­ist í kjöl­far þess að Trump vann stór­sigur á Cruz í for­kosn­ingum í Indiana-ríki í nótt. Cruz var eini fram­bjóð­and­inn...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár