Donald Trump verður forsetaefni Repúblikanaflokksins

Ted Cruz hefur hætt fram­boði sínu og sæk­ist ekki lengur eftir því að verða for­seta­efni Repúblíkana­flokks­ins í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum í haust. Það þýðir að Donald Trump verður for­seta­efni flokks­ins. Reince Priebus, for­maður flokks­ins, hefur lýst þess­ari nið­ur­stöðu yfir opin­ber­lega.Þetta gerð­ist í kjöl­far þess að Trump vann stór­sigur á Cruz í for­kosn­ingum í Indiana-ríki í nótt. Cruz var eini fram­bjóð­and­inn utan Trump sem enn var eftir í kapp­hlaup­inu.

Trump, sem hefur verið heldur óvægin í garð Cruz að und­an­förnu, hrós­aði keppi­naut sínum í sig­ur­ræðu. Hann sagð­ist ekki vita hvort Cruz væri vel við sig eða ekki en að hann væri rosa­legur keppn­is­maður. „Hann á ótrú­lega fram­tíð fyrir sér.“

Demókrata­megin sigr­aði Bernie Sanders mjög óvænt í Indiana-ríki og neitar að gef­ast upp í bar­áttu sinni við Hillary Clinton um að verða for­seta­efni demókrata. Sanders sagði að kosn­inga­vél Clinton héldi að bar­áttan væri unnin. „Þau hafa rangt fyrir sér,“ sagði Sanders.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um her­stefnu Donald Trump í byrjun viku. Þá umfjöllun má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bandaríkjaforseti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár