Tíu staðreyndir um herstefnu Donalds Trump

Donald J. Trump er lík­leg­astur til þess að verða útnefndur af Repúblikana­flokknum sem for­seta­efni flokks­ins, fyrir banda­rísku for­seta­kosn­ing­arnar í haust. Trump er umdeildur, svo ekki sé fastar að orði kveðið.

Trump hefur lagt fram stefnu fyrir Banda­ríkja­her sem byggir á fyrri skrifum hans um stöðu Banda­ríkj­anna í heim­inum, og hvernig landið eigi að nálg­ast heims­málin. John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, hefur sagt stefnu Trumps „stór­hættu­lega“ og algjör­lega úr takti við veru­leik­ann. Hún sé lítið annað en inn­an­tóm slag­orð um ekk­ert.

1. Utan­rík­is­stefna Trumps byggir á sjö grunn­gildum. Þau eiga að vera leið­ar­vísir út úr öllum aðstæðum sem Banda­ríkin geta kom­ist í. Með þeim á for­seti Banda­ríkj­anna að hafa mögu­leika á því að bregð­ast við hvaða stöðu sem er. Grund­vall­ar­at­riðið er að Banda­ríkin séu yfir­burða­ríki og eigi að haga sér sem slíkt.

2. Gildin voru útli­stuð fyrst í bók­inni Time To Get Tough sem Trump sendi frá sér árið 2011. Bókin er til­einkuð for­eldrum Donald Trump, þeim Mary og Fred, og var gefin út af Regnery bóka­út­gáf­unni.

3. Fyrsta gildið sem Trump segir að Banda­ríkin verði að hafa í for­grunni, hljómar svona. „Banda­rískir hags­munir koma fyrstir. Alltaf. Engar afsak­anir.“ Trump vill meina að Bana­ríkin hafi grafið undan sterkri stöðu sinni í heim­inum með of miklu sam­starfi við þjóðir, og í því sam­starfi hafi hags­munir Banda­ríkj­anna orðið undir. Þetta megi ekki ger­ast.

4. Annað gildið snýr að her­valdi og beit­ingu þess. „Hámarks skot­kraftur (Maximum firepower) og hern­að­ar­legur við­bún­aður.“ Trump segir að Banda­ríkin eigi alltaf að nálg­ast verk­efni hers­ins á alþjóða­vett­vangi með því að sýna yfir­burði og búast við því versta. Þetta sé lyk­il­at­riði þegar kemur að því að koma Banda­ríkj­unum „aftur á stall“ sem það ríki sem það eigi að vera.

5. „Aðeins á að fara í stríð til að vinna.“ Í fram­haldi af gild­inu hér á undan, þá telur Trump þetta ekki síður mik­il­vægt, og þá sem sjálf­stætt mark­mið. Trump vill meina að Banda­ríkin eigi aldrei að taka þátt í stríðum nema með því að gjörsigra and­stæð­inga, og hætta aldrei fyrr en það er talið öruggt að stríðið sé unnið. Trump segir George W. Bush hafa verið „skelfi­legan“ þegar að þessu kemur, og ekki kunnað að stýra her Banda­ríkj­anna þannig að hann sigri. Íraks­stríðið hafi verið klúður frá upp­hafi til enda.

6. Trump telur að leikja­fræðin í utan­rík­is­málum Banda­ríkj­anna eigi að vera ein­föld. Í öllum til­fellum eigi Banda­ríkin að standa með vinum sínum, en alltaf búast við því versta frá öðrum. Með þessu móti marki Banda­ríkin sér stöðu sem sé bæði skýr og ein­föld.

7. Það gildi sem Trump hefur verið minnst gagn­rýndur fyrir, og meira að segja hrósað af stöku Demókrata, er að áhersla hans á tækni. Hann telur að Banda­ríkja­her þurfi alltaf að búa yfir bestu mögu­legu tækni til að beita gegn „óvinum“ Banda­ríkj­anna. (Keep the technological sword razor sharp).

8. Utan­rík­is­stefnan – fram­kvæmd af hernum í mörgum til­vikum – verður að miða að því að sjá það það sem er ófyr­ir­séð, og víg­bú­ast áður en „óvin­ur­inn“ getur tekið til vopna. Þetta sé grund­vall­ar­at­riði. Banda­ríkin verði alltaf að vera skrefi framar en allir aðrir. Aldrei megi láta þá stöðu mynd­ast, að aðrar þjóðir búi yfir betri tækni en Banda­ríkin.

9. Trump segir að Banda­ríkin hafi ekki staðið sig vel í því, í gegnum tíð­ina, að bera virð­ingu fyrir her­mönnum og þeim sem hafi barist í fremstu víg­línu, og séu í því að „verja banda­ríska hags­muni“. Herinn eigi að vera hluti af „sjálfi“ Banda­ríkj­anna og her­menn­irnir eigi að vera þeir ein­stak­lingar, sem fólk beri mesta virð­ingu fyrir. „Þetta má aldrei breyt­ast,“ segir Trump.

10. Út frá þessum fyrr­nefndu gildum, þurfi Banda­ríkin að nálg­ast stöðu mála í heim­inum núna. Eitt mest aðkallandi verk­efnið sé að „sprengja ISIS“ útaf heimskort­inu, og úti­loka með öllu að hryðju­verka­menn geti komið til Banda­ríkj­anna. Það sé best gert með því að loka á komu múslima til lands­ins. En það sem mestu skiptir, segir Trump, er að búa þannig um hnút­ana að ógn­an­irnar verði ekki til. Það er, að Banda­ríkja­her sé alltaf búinn að „eyða mögu­leik­anum“ á því að þær mynd­ist, með því að setja banda­ríska hags­muni alltaf á odd­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár