Hvað er QAnon?

Sam­sær­is­kenn­inga­hópur sem er hlið­hollur Banda­ríkja­for­seta og skil­greindur sem hryðju­verkaógn þar í landi hefur orðið áber­andi á netheimum á síð­ustu árum. For­set­inn seg­ist vita lítið um hóp­inn en sé þakk­látur fyrir stuðn­ing­inn.

QAnon stuðningsmaður á kosningafundi hjá Trump
QAnon stuðn­ings­maður á kosn­inga­fundi hjá Trump Mynd: EPA

„Ég veit ekki mjög mikið um hreyf­ing­una, en mér skilst að þeim líkar mjög vel við mig. Sem ég kann mjög vel að meta,“ sagði Donald Trump Banda­ríkja­for­seti á blaða­manna­fundi síð­asta mið­viku­dag þegar hann var spurður út í sam­sær­is­kenn­inga­hóp sem kallar sig QAnon.

Ummæli Trump vöktu tölu­verða athygli, sér­stak­lega í ljósi þess að alrík­is­lög­regla Banda­ríkj­anna hefur skil­greint kenn­ing­arnar sem hóp­ur­inn kennir sig við sem hryðju­verkaógn. Repúblikana­flokk­ur­inn virð­ist einnig klof­inn í afstöðu sinni gagn­vart hópnum, en stuðn­ings­maður hans var nýlega kjör­inn full­trúi flokks­ins í kom­andi þing­kosn­ingum.

Barnaníð, JFK og kórónuveiran

Í októ­ber árið 2017 setti not­andi vef­svæð­is­ins 4chan undir not­enda­nafn­inu inn röð færslna undir dul­nefn­inu „Q“. Not­and­inn sagð­ist vera hátt settur starfs­maður rík­is­stjórnar Banda­ríkj­anna og því með örygg­is­að­gang á Q-stigi, sem veitir honum aðgang að leyni­legum upp­lýs­ingum sem varða þjóðar­ör­yggi.

Færsl­urnar, sem voru þekktar sem „Q-molar“, inni­héldu meðal ann­ars kenn­ingar um að rann­sókn sér­staks sak­sókn­ara í Banda­ríkj­unum á áhrifum Rússa í síð­ustu for­seta­kosn­ing­unum hafi í raun verið ger til að afvega­leiða rann­sókn á barn­a­níðs­hring, sem „Q“ segir Trump sé að vinna að.

Aðrar sam­sær­is­kenn­ingar hafa einnig verið nefndar á vegum „Q“, meðal ann­ars um að John F. Kennedy, fyrrum for­seti Banda­ríkj­anna, hafi svið­sett morðið á sjálfum sér og að kór­ónu­veiran sé annað hvort til­bún­ingur eða líf­efna­vopn sem búið var til af ill­gjörnum elítum.

Hundruð þúsunda fylgjenda

„Q“ hefur aflað sér fjölda fylg­is­manna, en nú má nálg­ast ýmsar kenn­ingar í anda hans á sam­fé­lags­miðlum undir merkjum QAnon. Samkvæmt umfjöllun BBC um málið benda tölur um net­um­ferð og deil­ingar þess­ara kenn­inga á sam­fé­lags­miðlum til þess að hund­ruðir þús­unda trúi á ein­hverjar þeirra sem QAnon hóp­ur­inn teflir fram.

Sér­stak­lega hefur fjöldi fylg­is­manna auk­ist sam­hliða útbreiðslu kór­ónu­veirunnar og dauða millj­arða­mær­ings­ins Jeffrey Epstein, en áhan­gendum Facebookhóps á vegum hans fjölg­aði um nær tífalt í síð­asta mán­uði, miðað við sama tíma­bil í fyrra. Vin­sældir hóps­ins hafa líka auk­ist á Twitter, en dags­með­al­tal færslna þar sem inni­halda vin­sæl QAnon-myllu­merki juk­ust um 190 pró­sent frá ágúst í fyrra til síð­asta mars­mán­aðar.

Skilgreindur sem innlend hryðjuverkaógn

Kenn­ingar QAnon, sem inni­halda stórar ásak­anir um sam­særi og eiga ekki við sýni­leg rök að styðj­ast, hafa verið nefndar af alrík­is­lög­reglu Banda­ríkj­anna, FBI sem inn­lend hryðju­verkaógn.

Í skjali sem lekið var til Yahoo-frétta­stof­unnar fyrr í mán­uð­inum kemur fram að lög­reglan telji að kenn­ingar sem slíkar geti hvatt ein­stak­linga og hópa til glæpa og ofbeld­is­verka. Þar að auki telur hún að fylgj­endum sam­sær­is­kenn­ing­anna eiga lík­lega eftir að fjölga á meðan kosn­inga­bar­áttan stendur yfir þar í landi.

Sam­fé­lags­miðlar hafa einnig reynt að draga úr útbreiðslu þess­ara kenn­inga, en fjöldi færslna, not­enda og myllu­merkja á vegum hóps­ins hefur verið eytt af Facebook, Twitter og TikTok.

Klofinn flokkur

Þrátt fyrir að vera skil­greind sem örygg­is­hætta hefur QAnon hóp­ur­inn notið vax­andi vin­sælda innan Repúblikana­flokks­ins. Fyrir rúmri viku síðan var yfir­lýstur stuðn­ings­maður hóps­ins, Marjorie Taylor Greene, kosin sem fram­bjóð­andi neðri deildar Banda­ríkja­þings í Georgíu og er nær öruggt að hún fái sæti á þing­inu í nóv­em­ber.

Samkvæmt BBC hrós­aði Greene „Q“ sem „föð­ur­lands­vini“ í mynd­bandi sem birt var á YouTube, en hún er ein af ell­efu fram­bjóð­endum Repúblikana­flokks­ins sem vef­mið­ill­inn Axios greinir frá sem stuðn­ings­menn QAnon hóps­ins eða kenn­inga á vegum hans.

Ekki eru þó allir sáttir innan flokks­ins með vax­andi ítök QAnon. Adam Kinzinger, þing­maður Repúblik­ana í Illinois, for­dæmdi hóp­inn með Twitter-færslu fyrr í mán­uð­inum og sagði kenn­ing­arnar vera upp­spuna frá rótum. Greene brást illa við færsl­unni og skaut á hann með annarri Twitter-færslu, sem sjá má hér að neðan.

Góður hlutur eða slæmur?

Á frétta­manna­fundi síð­asta mið­viku­dag var svo Trump spurður um álit hans á QAnon hópnum og kenn­ingum hans. For­set­inn sagð­ist ekki þekkja mikið til hans sjálfur, en að hann sé þakk­látur fyrir allan stuðn­ing sem hann fær.

Blaða­maður útskýrði þá fyrir for­set­anum að hóp­ur­inn tryði því að Trump sé í raun að bjarga heim­inum frá ítökum satanísks sér­trú­ar­hóps sem inni­haldi barn­a­níð­inga og mannætur. Við því svar­aði Trump: „Ég hef ekki heyrt þetta, en á það að vera góður hlutur eða slæmur?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið undanfarið ár