Borgarastríð í Bandaríkjunum?

Ójöfn­uður, for­tíð­ar­þrá og breytt sam­fé­lags­leg við­mið hafa leitt til sundr­ungar í banda­rísku þjóð­fé­lagi sem end­ur­spegl­að­ist í óeirð­unum í Washington í síð­ustu viku. Ekki er úti­lokað að slíkur klofn­ingur leiði til vopn­aðra átaka þar í landi.

Nú standa yfir valda­skipti í Banda­ríkj­unum sem munu form­lega eiga sér stað með emb­ætt­is­töku Joe Bidens þann 20. jan­úar n.k. Hart var tek­ist á í for­seta­kosn­ing­unum, átök sem ekki sér fyrir end­ann á og keyrði um þver­bak í þing­hús­inu í Washington DC á mið­viku­dag. Þessir atburðir end­ur­spegla vel þann klofn­ing sem hefur verið að áger­ast í banda­rísku sam­fé­lagi og hversu mikil skautun er orðin í banda­rískum stjórn­málum.

Í þessum atgangi hafa vopn­aðar sveitir borg­ara (e.militias) verið áber­andi en upp­gangur þeirra hefur ágerst á und­an­förnum árum. Víga­hópar þessir hafa margir orðið upp­vísir að því að hóta, hvetja til og beita ofbeldi í mót­mæla­að­gerðum sem breyt­ast þá enn frekar í ofbeld­is­fullar óeirðir. Hafa margir lýst áhyggjum sínum af því að lýð­ræðið sé í hættu og þeir svart­sýn­ustu nefnt mögu­leika á að borg­ara­stríð geti brot­ist út. Ljóst er að í landi þar sem skot­vopna­menn­ing er jafn djúp­stæð og raun ber vitni eru þessar áhyggjur kannski ekki úr lausu lofti gripnar.

Alvarlegur klofningur – Hverjir eru við – hverjir eru þjóðin?

Joe Biden verð­andi for­seti sagði í ávarpi, þegar hann for­dæmdi inn­rás­ina í þing­húsið, að þetta væri ekki það sem Banda­ríkja­menn stæðu fyrir; „… this does not repres­ent who we are.“ En hverjir eru þessir við? Til þess að þjóð­fé­lög megi vera frið­sam­leg verður að ríkja almenn sátt um fyr­ir­komu­lag hlut­anna hjá meg­in­þorra íbúa. Ekki þurfa allir að vera sam­mála alltaf, en út á það gengur lýð­ræðið, að tek­ist er á um leiðir að settu marki.

En alvar­legur klofn­ingur milli ólíkra hópa sam­fé­lags­ins, hvort sem hann er sprott­inn af trú, kyn­þáttum eða öðrum menn­ing­ar­legum þáttum, getur haft alvar­legar afleið­ingar. Þetta virð­ist vera raunin í Banda­ríkj­unum og aukin skautun í stjórn­málum á síð­ustu 25 árum hefur skapað grund­völl ófriðar og átaka, jafn­vel ofbeld­is­fullra. 

Það sem lengi hélt hinu marg­brotna banda­ríska sam­fé­lagi saman var að þangað flykkt­ist fólk hvaðanæva að úr heim­inum, með það sam­eig­in­lega mark­mið að láta draum­inn ræt­ast um betra líf. Mörgum hefur tek­ist það og Banda­ríkin hafa blómstrað sem öfl­ug­asta ríki heims á mörgum sviðum. Fram eftir tutt­ug­ustu öld hélt fólk í draum­inn, að með dugn­aði og vinnu­semi væru því allir vegir færir og þannig var það á meðan upp­gangur ríkti.

Und­an­farna ára­tugi hafa fleiri og fleiri vaknað upp við vondan draum, þegar störf í iðn­aði hurfu sem báru uppi almenna vel­megun fjöl­mennrar milli­stéttar. „Litli mað­ur­inn“ eða verka- og iðn­að­ar­menn og eig­endur smá­fyr­ir­tækja, höfðu ekki lengur sömu tæki­færi til að skapa sér og sínum gott líf með dugn­aði og atorku­semi. Þetta fyr­ir­komu­lag átti í raun ekki lengur við. Það voru nýir tímar, með jafn­rétti og breyttum kynja­hlut­verkum sem ekki allir eru til­búnir að með­taka eða kunna að fóta sig í.

Bilið milli ríkra og fátækra jókst og stjórn­mála­menn urðu í augum margra hluti af elítu sem hafði misst allt sam­band við raun­veru­leik­ann. Skuld­inni hefur verið skellt á alþjóða­væð­ing­una á öllum sviðum, aukið reglu­verk og umsvif alrík­is­ins, aðför að kristnum gildum og hefð­bundnu fjöl­skyldu­mynstri, inn­flytj­endur og útlend­inga sem taka störfin o.s.frv. Við þetta bæt­ist að ekki er lengur hægt að sam­eina þjóð­ina gegn sam­eig­in­legum óvini, eins og í Kalda stríð­inu.

Ábyrgð Trumps er mikil – hellir olíu á eldinn

Þegar svo Donald Trump birt­ist sem maður fólks­ins og seg­ist ætla að fara með sam­fé­lagið aftur til gömlu tím­anna, er engin furða að fólk stökkvi á vagn­inn. Raun­veru­leiki margra er núna hvort eð er ömurðin ein, fátækt og von­leysi, og mjög skilj­an­legt að fólk flykki sér um slíkan for­ingja. Þessum hópi finnst hann ekki til­heyra sam­fé­lagi elít­unnar og er því alveg skít­sama um regl­urnar, fólk hefur engu að tapa og er jafn­vel til­búið í blóð­uga bylt­ingu og borg­ara­stríð. 

Þarna er ábyrgð Trumps og félaga mikil því Banda­ríki for­tíð­ar­innar eru tál­mynd sem getur aldrei orðið að raun­veru­leika í nútím­anum. For­set­inn hefur með end­ur­teknum lygum kynt undir ófriði, skerpt á and­stæðum í sam­fé­lag­inu og hvatt til lið­safn­aðar og reynt að höfða til öfga­hópa. Þegar for­set­inn segir í ræðu við æstan hóp fólks við Hvíta húsið á mið­viku­dag: „Það er verið að taka landið frá ykkur“ og hvetur fólk til að flykkj­ast að þing­hús­inu, hvar verið sé að inn­sigla glæp­inn, er voð­inn vís.

Hvatn­ing­ar­orð Trumps verða í raun herkvaðn­ing því þannig hefur hann talað til fólks. Á vef­svæðum fram­boðs hans fyrir for­seta­kosn­ing­arnar á síð­asta ári, Army For Trump, voru stuðn­ings­menn hvattir til að skrá sig til að hjálpa for­set­anum að halda emb­ætt­inu. Sjálf­boða­liðum var boðið að „víg­lín­unni, til að starfa við hlið „þjálfaðra bar­daga­manna“ sem styðja myndu fylgj­endur til að vinna „á vell­inum“ í her Trumps.

Vígasveitir – hreyfingar öfgahægrimanna

Þetta leiðir okkur að víga­sveitum í Banda­ríkj­unum sem tók að vaxa fiskur um hrygg undir lok síð­ustu aldar og árið 2008, við kjör Baracks Obama, fjölg­aði þeim mjög hratt. Þessir hópar byggja á mis­mun­andi hug­mynda­fræði og mark­miðum en full­yrða má að flestir séu lengst úti á hægri jaðr­inum í banda­rískum stjórn­málum.

Hefð­bundnir óvinir eru Alrík­is­lög­reglan – FBI og aðrar alrík­is­stofn­anir og liðs­menn taka gjarnan undir raka­lausar sam­sær­is­kenn­ingar eða öfga­kennd­ustu kenn­ingar almennra stjórn­mála. Þeir deila almennt þeirri skoðun að ofríki stjórn­valda í Banda­ríkj­unum sé ýmist yfir­vof­andi eða raun­veru­legt. Slíku verði að mæta með vopna­valdi og að und­ir­búa þurfi kom­andi bylt­ingu. Hert skot­vopna­lög­gjöf er því eitur í þeirra beinum.

Þarna eru víga­sveitir eins og Three Percenters og Oath Keepers, hvar her­þjálfun er grunn­þáttur og voru félagar þeirrar síð­ar­nefndu áber­andi í óeirð­unum á Capitol Hill á mið­viku­dag. Einnig hóp­ur­inn Wolverine Watchmen, en með­limir hans voru hand­teknir s.l. sumar vegna áforma um að ræna Gretchen Whitmer rík­is­stjóra Michigan-ríkis, taka hana af lífi og koma af stað borg­ara­stríði.

Jafnvel þó starf­semi slíkra vopn­aðra sveita sé form­lega ólög­leg í öllum ríkjum Banda­ríkj­anna virð­ast þær þó að mestu geta starfað óáreittar. Það vekur ugg að mik­ill fjöldi víga­manna eru fyrrum eða núver­andi her- og lög­reglu­menn. Sumar sveit­irnar eiga bein tengsl við slíka aðila og liðs­menn eru jafn­vel í vin­sam­legum sam­skiptum við bæði óbreytta lög­reglu­menn og lög­gæslu­yf­ir­völd.

Rann­sóknir hafa sýnt að þar sem slíkt við­gengst þríf­ast víga­sveit­irnar betur. Í óeirðum í Kenosha í Wisconsin í ágúst s.l. voru lög­reglu­menn teknir upp á mynd­band þar sem þeir færðu hópi víga­manna vatn og þökk­uðu þeim fram­lag þeirra, skömmu áður en 17 ára með­limur hóps­ins skaut tvo menn til bana.

En hvað með vinstri-öfgasveitir og BLM?

Ekki er þar með sagt að vopn­aðir hópar borg­ara séu allt hvítir öfga­fullir kyn­þátta­hat­arar í víga­hug sem hat­ast við stjórn­völd. Vopnaðar sveitir þeldökkra eru til, einnig sveitir hinum megin á póli­tíska lit­róf­inu og ekki eru allar vopn­aðar sveitir þekktar af ofbeldi. Umræddar víga­sveitir eru þó í miklum meiri­hluta skip­aðar hvítum öfga­hægri­mönnum og margar þeirra skil­greindar sem hættu­legar.

Almennt séð eru for­dómar á grund­velli kyn­þáttar algeng­ari lengst til hægri en lengst til vinstri. T.d. eru rót­tækir hópar sem berj­ast gegn fas­isma og fella má undir hug­takið „Antifa“ frá­brugðnir hat­urs­hópum á hægri vængnum. Það felst í því að venju­lega eru þeir ekki skipu­lagðir í kringum ofstæki gegn fólki út frá óbreyt­an­legum ein­kennum þess, eins og lit­ar­hætti eða þjóð­erni.

Eru þeldökkir þjóðin? – Refsileysi leyfir árásina á þinghúsið

Í stórum dráttum snýst bar­átta öfga­hægri­manna, sem m.a. rudd­ust inn í þing­húsið, um að end­ur­heimta ein­hvers­konar „gullöld“ for­tíðar þó hún geti verið mis­mun­andi eftir hópum. Barátta þeldökkra og ann­arra minni­hluta­hópa, m.a. undir merkjum Black Lives Matters, er að miklu leyti and­stæða þessa og gengur út á að betrumbæta það sam­fé­lag sem fyrir er. Ekki aðeins til að fá eins og aðrir að njóta þeirra gæða og rétt­inda sem í boði eru, heldur hrein­lega að þurfa ekki að ótt­ast um líf og limi fyrir það eitt að vera til.

Þarna birt­ist djúp­stæður klofn­ingur sem nær mjög langt aftur. Má halda því fram að svartir hafi aldrei orðið full­gildir, við­ur­kenndir þátt­tak­endur í sam­fé­lag­inu, þrátt fyrir að margt hafi áunn­ist. Inn­rás­ar­fólkið í þing­húsið, að mestu hvítir kyn­þátta­hat­arar, eru boð­berar gamla tím­ans, sam­fé­lags hvar það hafði yfir­burði. Jafn­rétti fyrir minni­hluta­hópa er þeirra tap og verður enn áþreif­an­legra þegar hið mark­aðs­drifna neyslu­sam­fé­lag, sem það átti þó sinn griða­stað í, hefur riðað til falls. Því er það til­búið til að berj­ast fyrir stöðu sinni og kerfið virð­ist taka þátt – með for­set­ann í far­ar­broddi.

Í því sam­hengi vekur við­bún­aður og við­brögð lög­gæslu vegna inn­rás­ar­innar í þing­húsið upp áleitnar spurn­ingar. Frétta­menn sem hafa fylgst með við­brögðum lög­reglu við mót­mælum í Banda­ríkj­unum und­an­farið segja mik­inn mun vera á við­brögðum hennar eftir því hver á í hlut. Hand­tökur voru til­tölu­lega fáar þegar æstur múgur hvítra öfga­manna rudd­ist inn í helg­ustu vé banda­rísks lýð­ræðis. Lög­reglu­menn létu taka „sjálfur“ með inn­rás­ar­mönnum, um leið og þeir hleyptu þeim inn.

Til sam­an­burðar voru fleiri hund­ruð frið­samra mót­mæl­enda, m.a. undir merkjum Black Live Matters, hand­tekin þegar þeir mót­mæltu morði öfga­hægri­manns á 17 ára svörtum pilti í Charlottesville árið 2017. Það sama var upp á ten­ingnum þegar morð­inu á George Floyd var mót­mælt í Michigan í fyrra.

Því hefur verið haldið fram að inn­rásin í þing­húsið sé í raun afleið­ing af refsi­leysi og slökum við­brögðum við ofbeldi og hót­unum öfga-hægri­hreyf­inga und­an­farin ár. Í stað þess að for­dæma morð á ungum sak­lausum pilti í Charlottesville kvað Donald Trump gott fólk vera í báðum fylk­ingum. Hið sama var uppi á ten­ingnum þegar öfga­hópar hót­uðu eða lögðu á ráðin um ofbeld­is­verk vegna sótt­varna­ráð­staf­ana á síð­asta ári – þá studdi Trump öfga­menn­ina.

Trump er ekki hættur – varanlegur klofningur?

Donald Trump fékk meira en 70 milljón atkvæði í for­seta­kosn­ing­unum, næstum helm­ing, þó síð­ustu atburðir hafi lík­lega kvarnað eitt­hvað úr því fylgi. Hann á því gríð­ar­lega stóran hóp stuðn­ings­manna og af fram­ferði hans að dæma hefur hann ekki sagt sitt síð­asta orð.

Það ógn­væn­lega er að það er ekki vegna hug­mynda­fræði­legra hug­sjóna heldur virð­ist hvat­inn til að hafa áhrif vera til að þjóna hans per­sónu­legu hags­munum og hégóma. Hann er jú kven­hat­ari og ras­isti sem finnur sig vel í sam­fé­lagi for­tíð­ar­innar, á þeim meintu gósentímum þegar hvítir karlar deildu og drottn­uðu í heim­inum og mis­rétti og kúgun þjök­uðu sam­fé­lagið.

Hópurinn sem Trump talar til er merki­lega ólíkur inn­byrðis; und­ir­máls­fólk sem fátt bíður nema áfram­hald­andi von­leysi, en einnig þokka­lega settir iðn­aðar- og athafna­menn ásamt fyrr­ver­andi og núver­andi lög­reglu­mönnum og her­mönnum. Það sem sam­einar þetta fólk er að það finnur sér ekki stað í hinu hnatt­vædda nútíma­sam­fé­lagi sem það segir stjórnað af aftengdri vinstri-stjórn­mála­el­ítu.

Ein meg­in­á­stæða þess að stríðið á Balkanskaga á tíunda ára­tugnum braust út jafn hratt og varð jafn blóð­ugt og raun ber vitni, er hversu almenn her­þjálfun var meðal ungra manna. Það þýddi að ekki þurfti mikil umsvif eða tíma til að koma her­sveitum á fót, aðeins vöru­bíls­hlass af skot­vopnum, flokk af reiðum ungum mönnum og kom­inn var vilj­ugur her sem beita mátti í átökum.

Í fáum sam­fé­lögum er byssu­eign og her­þjálfun jafn almenn og í Banda­ríkj­unum. Þegar virkar vopn­aðar öfga­sveitir hafa náð fót­festu í sam­fé­lagi þar sem millj­ónir manna upp­lifa að það sé búið að stela frá þeim land­inu og mögu­leikum þeirra til að skapa sér gott líf – magnað upp af sam­sær­is­kenn­inga­flóði um eðlu­fólk og mannætu­barn­a­níð­inga­fé­lög – geta slæmir hlutir hæg­lega gerst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár