Donald Trump sýknaður í öldungadeildinni

Meiri­hluti þing­manna greiddi atkvæði með sak­fell­ingu í öld­unga­deild­inni í kvöld en tvo þriðju atkvæða þurfti til að sak­fella for­set­ann fyrr­ver­andi. 57 þing­menn greiddu með sak­fell­ingu en 43 með sýknu.

Donald Trump, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seti, var í kvöld sýkn­aður í öld­unga­deild­inni af ákæru full­trúa­deild­ar­innar til emb­ætt­is­missis. 57 öld­unga­deild­ar­þing­menn greiddu atkvæði með sak­fell­ingu en 43 greiddu atkvæði með sýknu. Þrátt fyrir að meiri­hluti hafi verið með sak­fell­ingu þarf tvö atkvæði af hverjum þremur til að sak­fella í slíkri ákæru.

Í atkvæða­greiðsl­unni í kvöld greiddu sjö þing­menn Repúblik­ana með sak­fell­ingu. Þetta er í fjórða sinn í sög­unni sem kosið er um emb­ætt­is­missi, og annað skipti Trumps, en aldrei hafa jafn mörg atkvæði verið greidd með sak­fell­ingu og í kvöld.

Ákæran kemur í kjöl­far áhlaups stuðn­ings­manna Trumps sem gert var á þing­hús Banda­ríkj­anna þann 6. jan­úar síð­ast­lið­inn. Í umfjöllun New York Times er sagt að ein helsta ástæða þess að svo margir þing­menn Repúblik­ana hafi kosið með sak­fell­ingu sé sú að þeir upp­lifðu áhlaupið á eigin skinni og þurft að leita skjóls frá ofbeld­is­fullum múgnum.

Eftir að nið­ur­staða lá fyrir sendi Trump frá sér til­kynn­ingu þar sem hann þakk­aði lög­mönnum sínum. Þar að auki líkti hann mál­inu við norna­veiðar, lík­ing sem hann greip tölu­vert til í emb­ætt­is­tíð sinni. Hann sagði einnig að þessi til­raun Demókrata til að binda enda á póli­tískan feril sinn hefði mis­tek­ist en vegna sýkn­unnar er Trump frjálst að bjóða sig aftur fram til emb­ætt­ist for­seta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár