Dræmur lestur á bloggsíðu Trumps slökkti ljósið í „vita frelsisins“

Þann 4. maí opn­aði Donald Trump vef­síðu til að koma skoð­unum sínum á fram­færi en allir stærstu sam­fé­lags­miðl­arnir sneru við honum baki fyrr á árinu. Nú hefur síð­unni verið lokað en Trump fannst það vand­ræða­legt hve lít­inn lestur færslur hans fengu.

Donald Trump þoldi illa slæmt umtal um vefsíðu sína sem varð ekki jafn vinsæl og vonir stóðu til um.
Donald Trump þoldi illa slæmt umtal um vef­síðu sína sem varð ekki jafn vin­sæl og vonir stóðu til um. Mynd: EPA

Lítill lestur á blogg­færslum Donalds Trumps, fyrrum Banda­ríkja­for­seta, var helsta ástæða þess að hann ákvað að loka heima­síðu sinni, From the Desk of Donald J. Trump eða Frá skrif­borði Donalds J. Trumps. Lestur á síð­unni var sam­bæri­legur við lestur frétta frá miðl­ungs­stórum hér­aðsmiðlum sam­kvæmt gögnum og grein­ingu NewsWhip. Frá þessu er greint í net­miðl­inum Axios en í umfjöllun mið­ils­ins kemur fram að þrátt fyrir að stuðn­ings­hópur for­set­ans fyrr­ver­andi geti talist nokkuð stór þá hafi Trump mis­tek­ist að breyta venjum fylgj­enda sinna á net­inu. Af þeim sökum var umferðin á blogg­síðu Trumps ekki jafn mikil og hann hefði ef til vill von­ast eftir. Heima­síðu for­set­ans var lokað á þriðju­dag.

Blogg­síða for­set­ans fyrr­ver­andi fór í loftið þann 4. maí síð­ast­lið­inn svo líf­tími síð­unnar náði því ekki að fylla heilan mánuð. Þegar síðan fór í loftið var hún kynnt með pompi og prakt. Í sér­stöku kynn­ing­ar­mynd­bandi er síð­unni lýst sem „kyndli frelsis“ sem rísi upp á tímum þögg­unar og lyga. Í umfjöllun Washington Post er haft eftir einum að ráð­gjöfum Trumps að hann hafi tekið ákvörðun um að loka síð­unni vegna þess að honum lík­aði það ekki að fólk gerði grín af því hve lítið færslur hans væru lesnar.

Stóru samfélagsmiðlarnir „leiðinlegir og andstyggilegir“

Washington Post birti frétta­skýr­ingu í síð­ari hluta maí­mán­aðar þar sem sagt var frá því að áhrif Trumps á net­inu færu dvín­andi og að nýja blogg­síðan væri ekki að ná til fólks í jafn ríkum mæli og ef til vill hefði mátt búast við. Í kjöl­farið sendi Trump frá sér til­kynn­ingu þar sem hann sagði að síðan hefði notið verð­skuld­aðrar athygli, en athyglin hefði tví­mæla­laust verið meiri hefði honum ekki verið úthýst af Facebook og Twitter.

Trump hélt því fram í til­kynn­ing­unni að fylgj­endur sínir í tuga millj­óna tali hefðu snúið bak­inu við Facebook og Twitter vegna þess að miðl­arnir væru orðnir „leið­in­legir og and­styggi­legir“ en gögn frá miðl­unum sjálfum sýna að notkun í Banda­ríkj­unum hefur verið nokkuð stöðug síðan Trump lét af emb­ætti, ef eitt­hvað er hefur notk­unin auk­ist á þeim tíma sem lið­inn er síðan for­set­anum var úthýst af sam­fé­lags­miðl­unum.

Orðinn hálf raddlaus

[links] Fylgj­enda­tölur for­set­ans stóðu í hæstu hæðum í fyrri hluta jan­úar, á þeim tíma er æstur múgur réðst inn í þing­hús Banda­ríkj­anna. Einn af eft­ir­málum áhlaups­ins á þing­húsið var víð­tækt bann sem Trump mátti sæta á hinum ýmsu sam­fé­lags­miðlum og vef­síðum. Áður en lokað var fyrir reikn­inga Trumps hafði hann 88 millj­ónir fylgj­enda á Twitter en um 35 millj­ónir á Facebook.

Rödd Trumps útá­við hefur því hljóðnað tölu­vert á síð­ustu mán­uðum. Á síð­asta degi vef­síð­unnar náðu færslur for­set­ans að hala inn um 1500 deil­ingum og athuga­semdum í gegnum Facebook og Twitter sem er ansi lág tala ef miðað er við við­brögðin í formi „like-a“ og „retweet-a“ sem for­set­inn fékk á hvert ein­asta tíst sem hann sendi frá sér en tala þeirra stóð gjarnan í tugum ef ekki hund­ruðum þús­unda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár