Óreiðukenndir örlagadagar í Bandaríkjunum

Donald Trump virð­ist ætla að reyna allt sem hann getur til að halda völdum með öllum ómögu­legum leiðum. For­set­inn virð­ist skeyta litlu um að hann er að splundra Repúblikana­flokknum og valda banda­rísku lýð­ræði miklum skaða í leið­inni.

Donald Trump Bandaríkjaforseti á kosningafundi í Dalton í Georgíu í gær.
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti á kosn­inga­fundi í Dalton í Georgíu í gær. Mynd: EPA

„Ég vil bara finna 11.780 atkvæði,“ sagði Donald Trump, frá­far­andi Banda­ríkja­for­seti, í ein­stæðu sím­tali sem dag­blaðið Washington Post birti, fyrst að hluta, og svo í heild sinni, á sunnu­dag. Orð for­set­ans beindust að Brad Raf­fens­berger, inn­an­rík­is­ráð­herra Georg­íu­ríki, og lög­fræð­ingum rík­is­ins sem voru með honum í sím­tal­inu.

For­set­inn reyndi að fá emb­ætt­is­menn­ina til þess að finna handa sér fleiri atkvæði en talin voru upp úr kjör­köss­unum í Georgíu. Skoða málið með opnum huga, og reyna með ein­hverjum hætti að sjá að hann hefði fengið fleiri atkvæði en Joe Biden í kosn­ing­unum þann 3. nóv­em­ber. „Það er ekk­ert að því að segja, þú veist, að þið séuð búin að end­ur­reikna,“ sagði for­set­inn.

Trump er á útleið og þetta sím­tal, sem emb­ætt­is­menn­irnir í Georgíu tóku upp og létu fjöl­miðlum senni­lega í té eftir að for­set­inn fór með fleipur um efni þess á Twitter á sunnu­dags­morgun, þótti flestum stjórn­mála­skýrendum til marks um að for­set­inn væri til­bú­inn að ganga nán­ast enda­laust langt í bar­áttu sinni fyrir því að halda völdum, þrátt fyrir að hafa tapað kosn­ing­unum.

Nú eru rúmar tvær vikur þar til Trump lætur form­lega af völdum, en í þess­ari viku eru tveir stór­við­burðir í banda­rískum stjórn­málum. Í dag er kosið um tvö laus öld­unga­deild­ar­þing­sæti í Georgíu og á morgun koma þing­menn bæði öld­unga­deildar og full­trúa­deildar saman til þess að stað­festa for­seta­kjör Joe Biden.

Öldungadeildin gæti endað 50-50

Spennan er mikil í Georgíu. Þar fékk eng­inn fram­bjóð­andi yfir 50 pró­sent atkvæða þegar kosið var í byrjun nóv­em­ber og ljóst varð að auka­kosn­ing­arnar í rík­inu skæru úr um hvernig valda­hlut­föllin í öld­unga­deild Banda­ríkja­þings myndu líta út í upp­hafi for­seta­tíðar Joe Bidens.

Mik­il­vægi kosn­ing­anna er því gríð­ar­legt – og end­ur­spegl­ast það í því að nærri 500 millj­ónum banda­ríkja­dala hefur verið varið í aug­lýs­ingar í Georgíu í aðdrag­and­anum.

Samkvæmt sam­an­tekt á skoð­ana­könn­unum, sem FiveT­hir­tyEight birti í gær­kvöldi, eru fram­bjóð­endur Demókra­ta­flokks­ins, Jon Ossoff og Raphael Warnock, báðir með um tveggja pró­sentu­stiga for­skot á keppi­nauta sína úr röðum repúblik­ana, David Perdue og Kelly Loeffler. Frá því í nóv­em­ber hafa skoð­ana­kann­anir hins vegar sveifl­ast fram og til baka – og það gæti í raun hvað sem er gerst.

Samkvæmt frétt Politico eru ráð­gjafar Joe Bidens þó efins um að Ossoff og Warnock hafi báðir sigur og hafa gert áætl­anir um stefnu­mótun á fyrstu 100 dögum Bidens í emb­ætti sem gera ráð fyrir því að Demókra­ta­flokk­ur­inn hafi ekki stjórn á öld­unga­deild­inni. Ef þeir hefðu hins vegar báðir betur yrðu repúblikanar og demókratar í öld­unga­deild­inni þá jafn margir – og atkvæði vara­for­set­ans Kamölu Harris myndu ráða úrslitum varð­andi afgreiðslu mála.

Ýmsir telja að Trump sjálfur hafi glætt vonir demókrata um tvö­faldan sigur í kosn­ingum dags­ins, með ítrek­uðum afsönn­uðum full­yrð­ingum sínum um kosn­inga­svik, sem margir telja að gætu latt kjós­endur sem taka mark á Trump í því að greiða atkvæði. Til hvers ætti fólk að kjósa ef það telur að kosn­inga­kerfið sjálft sé að svíkja sig?

Politico hefur eftir einum starfs­manni Demókra­ta­flokks­ins að sá hinn sami eigi erfitt að ímynda sér hvernig Trump hefði getað spillt meira fyrir sig­ur­vonum Perdue og Loeffler.

Ef þetta er raunin, að við­brögð kjós­enda við árásum Trump á lýð­ræðið verði nei­kvæð fyrir Repúblikana­flokk­inn, gerði fram­koma hans á fjölda­fundi í Dalton í Georgíu í gær­kvöldi lítið til þess að hjálpa fram­bjóð­endum flokks­ins. Þar þver­neit­aði hann fyrir sigur Biden og setti fram ýmsar sam­sær­is­kenn­ingar um úrslit kosn­ing­anna í Georgíu og raunar víðar.

Gæti orðið róstusamt í Washington

Þingmenn beggja deilda Banda­ríkja­þings munu á morgun koma saman til að kjósa um hvort stað­festa skuli nið­ur­stöður for­seta­kosn­ing­anna, þann fjölda kjör­manna sem hvor fram­bjóð­andi fékk í hverju ríki.

Í eðli­legu árferði er það ein­fald­lega gert – algjört forms­at­riði – en nú hafa á annan tug öld­ung­ar­deild­ar­þing­manna og yfir 100 full­trú­ar­deild­ar­þing­menn Repúblikana­flokks­ins gefið það út að þeir muni mót­mæla nið­ur­stöðum kosn­ing­anna í nokkrum ríkjum.

Innan þing­liðs flokks­ins standa nú miklar deilur á milli þeirra sem ætla sér að feta þessa braut og ann­arra, sem segja vegið að lýð­ræð­inu í land­inu og stjórn­ar­skránni með þessum æfingum. Rétt er að taka fram að þetta er ekki talið lík­legt til að breyta nokkru um það að Joe Biden sverji emb­ætt­is­eið sinn 20. jan­úar.

Á sama tíma – og kannski til marks um ástandið í banda­rískum stjórn­málum – hafa allir tíu fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herrar Banda­ríkj­anna skrifað grein í Washington Post, þar sem þeir segja meðal ann­ars að Banda­ríkja­her megi ekki taka neinn þátt í til­raunum Trumps til þess að snúa kosn­inga­úr­slit­unum sér í hag.

Á meðal þeirra sem rita sig fyrir grein­inni er Dick Cheney, fyrr­ver­andi vara­for­seti Banda­ríkj­anna, en sam­kvæmt fréttum átti hann hug­mynd­ina að því að fá alla núlif­andi varn­ar­mála­ráð­herrana saman í þessa áminn­ingu að her­valdi skuli ekki beita í þágu póli­tískra hags­muna.

Nokkur hund­ruð þjóð­varð­liðar hafa verið kall­aðir út í Washington DC, til þess að vera við­búnir mót­mælum sem þar eiga að fara að fram í dag og á morgun, en búist er við því að mik­ill fjöldi stuðn­ings­manna for­set­ans leggi leið sína til höf­uð­borg­ar­innar til þess að láta skoðun sína á úrslitum kosn­ing­anna í ljós.

„Það er fólk sem ætlar að koma til borg­ar­innar okkar grátt fyrir járnum,“ sagði Robert Contee, lög­reglu­stjóri í Washington í gær, en skilti hafa verið sett upp í mið­borg­inni til þess að minna á að vopna­burður er óheim­ill. Þar hafa fyr­ir­tæki sömu­leiðis búið sig undir óeirðir á götum úti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár