Samfélagsmiðlarnir þagga niður í Trump

Twitter er ekki eini sam­fé­lags­mið­ill­inn sem hefur lokað á Trump vegna ummæla hans og ofbeld­is­ins sem talið er að fylgi þeim, en að minnsta kosti tólf sam­fé­lags­miðlar hafa bannað eða tak­markað aðgang Banda­ríkja­for­seta og fylg­is­manna hans á síð­ustu dögum.

Donald Trump fráfarandi Bandaríkjaforseti
Donald Trump frá­far­andi Banda­ríkja­for­seti Mynd: EPA

Sam­fé­lags­mið­ill­inn Twitter lok­aði í gær aðgang Banda­ríkja­for­seta Donald Trump, en for­set­inn hefur notað mið­il­inn óspart til að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi á síð­ustu árum. Til við­bótar við Trump hefur Twitter lokað aðgöngum fjöl­margra fylg­is­manna hans sem trúa á sam­sær­is­kenn­ing­una QAnon síð­asta sól­ar­hring­inn í svoköll­uðum „hreins­un­ar­að­gerðum“.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá for­svars­mönnum mið­ils­ins stafar hætta á því að Twitter-færslur Trump leiði til meira ofbeldis, en fimm manns eru nú látin eftir að stuðn­ings­menn hans réð­ust inn í banda­ríska þing­húsið síð­asta mið­viku­dag.

Aðgerðir for­svars­manna Twitter eru ekki eins­dæmi, en fjöl­margir miðlar hafa ákveðið að loka aðgöngum tengdum Trump og fylg­is­mönnum hans af ótta við að þeir leiði til ofbeldis. Vef­mið­ill­inn Axios tók saman alla þá miðla, en að með­töldum Twitter þeir eru 12 tals­ins.

Twitch

Streym­is­mið­ill­inn Twitch hefur bannað rás for­set­ans, sem rekin hefur verið af fram­boðsteym­inu hans síðan í októ­ber 2019. Þar hafa birst mynd­bönd af fram­boðs­fundum Trump, en rásinni var einnig lokað tíma­bundið síð­asta sumar eftir að rasísk ummæli for­set­ans birt­ust þar, sam­kvæmt The Verge. Í við­tali við Axios sögð­ust for­svars­menn Twitch telja lok­un­ina vera nauð­syn­lega til þess að koma í veg fyrir að mið­ill­inn yrði not­aður til þess að ýta undir frekara ofbeldi.

Reddit

Sam­fé­lags­mið­ill­inn Reddit hefur einnig lokkað einu af stærstu stjórn­mála­spjall­borðum síð­unnar sem er til­einkað umræðum um for­set­ann, r/Don­ald­Trump. Í sam­tali við Axios segja for­svars­menn Reddit að síðan banni allt efni sem ýtir undir hatur eða ofbeldi gagn­vart ein­stak­lingum eða hópum fólks.

Youtube

Þá hefur mynd­banda­síðan Youtube sömu­leiðis hert not­enda­reglur sínar í kjöl­far inn­rásar stuðn­ings­manna Trump í þing­húsið. Nú verða not­endur síð­unnar settir í tíma­bundið bann ef þeir hlaða inn mynd­bandi þar sem því er haldið fram að Trump hafi í raun og veru unnið for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum. Ef not­endur síð­unnar brjóta af sér með þessum hætti í þrí­gang verði þeir settir í var­an­legt bann. Samkvæmt Axios hefur Youtube einnig fjar­lægt fyrstu yfir­lýs­ingu Donald Trump vegna inn­rás­ar­innar sem birt­ist síð­asta mið­viku­dag, en í því for­dæmdi hann ekki inn­rás­ina beint, heldur sagð­ist hann elska þá sem að baki henni stóðu.

Facebook og Instagram

Mark Zuckerberg, for­stjóri Facebook og Instagram, lýsti því svo yfir á fimmtu­dag­inn að Trump væri í tíma­bundnu banni á báðum miðl­unum þangað til að Joe Biden tekur við for­seta­emb­ætt­inu 20. jan­úar. Í yfir­lýs­ingu sinni sagði Zuckerberg áhætt­una af því að leyfa for­set­anum að tjá sig í gegnum miðl­ana vera ein­fald­lega allt of mikla. Rétt eins og Youtube ákvað Facebook líka að fjar­lægja umrætt mynd­band sem Trump birti á sama dag og ráð­ist var inn í þing­húsið.

Snapchat

Sam­fé­lags­mið­ill­inn Snapchat ákvað að læsa aðgangi Trump strax á mið­viku­dag­inn. Í við­tali við Axios sagði tals­maður Snapchat að mið­ill­inn teldi for­set­ann dreifa hatri og hvetja til ofbeldis. Mið­ill­inn læsti einnig aðgangi Trump tíma­bundið í fyrra­sumar í kjöl­far óeirða vegna lög­reglu­of­beldis og kyn­þátta­hat­urs í Banda­ríkj­unum.

Tiktok

Mið­ill­inn Tiktok, sem birtir stutt mynd­bönd frá not­endum sínum brást einnig við atburðum mið­viku­dags­ins með því að banna mynd­bönd sem inni­héldu ákveðin myllu­merki. Merkið #stormthecapitol, sem hvatti til inn­rásar í þing­húsið, var bannað, sem og merkið #pat­riot­party, en tals­maður mið­ils­ins sagði að öll mynd­bönd sem hvöttu til ofbeldis yrðu fjar­lægð í við­tali við Axios.

Discord

Til við­bótar við þetta greindi blaða­mað­ur­inn Casey Newton frá því að sam­skipta­mið­ill­inn Discord hafi bannað spjall­svæði innan þess undir nafn­inu The Donald, sem til­einkað var umræðum um for­set­ann. Talsmenn mið­ils­ins segja svæðið hafa skýra teng­ingu við annað spjall­svæði sem er notað til að hvetja til ofbeldis.

Parler

Apple og Google hafa einnig sent frá sér yfir­lýs­ingar varð­andi sam­skipta­mið­il­inn Parler sem var í vef­verslun fyr­ir­tækj­anna tveggja, en sam­kvæmt frétt Axios er mið­ill­inn mikið not­aður af íhalds­mönnum og öfga­hægri­mönnum. Google fjar­lægði mið­il­inn úr vef­verslun sinni stuttu eftir að óeirð­irnar hófust, en Apple hót­aði einnig að gera slíkt hið sama í gær ef mið­ill­inn hyggst ekki ætla að sporna gegn hat­urs­orð­ræðu sjálfur.

Shopify

Sölu­torgið Shopify hefur einnig fjar­lægttvær versl­anir sem seldu varn­ing tengdum Trump og fram­boði hans, þar sem fyr­ir­tækið telur að for­set­inn ali á ofbeldi. „Shopify líður ekki gjörðir sem hvetja til ofbeldis. Í ljósi nýlið­inna atburða teljum við að Donald J. Trump Banda­ríkja­for­seti brjóti okkar not­enda­skil­mála, sem leggur blátt bann við stofn­anir og fólk sem hvetja til ofbeldis til að ná fram mál­staðnum sínum,“ sagði fyr­ir­tækið í sam­tali við Axios.

Pinterest

Að lokum hefur sam­fé­lags­mið­ill­inn Pinter­est tak­markað notkun á ákveðnum myllu­merkjum sem stuðn­ings­menn Trump hafa notað, líkt og #Stopt­hesteal, sem vísar til meintra kosn­inga­svika í nýliðnum for­seta­kosn­ingum. Trump hefur ekki sjálfur aðgang að miðl­inum, en tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins segj­ast munu fylgj­ast með öllu efni sem birt­ist þar og fjar­lægja það sem teng­ist sam­sær­is­kenn­ingum sem gætu hvatt til ofbeldis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár