Hávær orðrómur um að Trump ætlaði að náða Assange fór á flug

Hávær orðrómur þess efnis að Trump Banda­ríkja­for­seti ætl­aði sér að náða blaða­mann­inn Julian Assange fór á flug síð­degis í dag, eftir að banda­maður for­set­ans hélt því fram. Sá bar tíð­indin síðan til baka.

Julian Assange, stofnandi Wikileaks.
Julian Assange, stofn­andi Wikileaks. Mynd: EPA

Óstað­festar sögu­sagnir fóru á flug á sam­fé­lags­miðlum síð­degis um að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti ætl­aði láta það verða eitt af sínum síð­ustu verkum í emb­ætti að náða Julian Assange.

„Við höfum enga stað­fest­ingu fengið, en við vonum það besta,“ sagði Kristinn Hrafns­son rit­stjóri Wikileaks í sam­tali við Kjarnann.

Rótin að þessum háværa orðrómi var tíst frá Mark Burns, sjón­varps­presti sem Time Magazine lýsti eitt sinn sem „upp­á­halds­presti Banda­ríkja­for­seta“.

Prest­ur­inn var í nánum tengslum við Trump í kosn­inga­bar­áttu for­set­ans árið 2016 og hélt gjarnan ávörp á fjölda­fundum Trumps. Auk þess mætti hann í fjöl­mörg sjón­varps­við­töl og tal­aði máli for­set­ans sem álits­gjafi í aðdrag­anda kosn­ing­anna árið 2016.

„Við tökum þessu ekki sem hverju öðru bulli,“ sagði Kristinn.

Skömmu eftir að frétt Kjarnans fór í loftið bar prest­ur­inn Mark Burns hins vegar fyrri orð sín um málið, sem vakið höfðu gríð­ar­lega mikla athygli, til baka.

Sagði hann færslu sína hafa verið gáleysi­lega og heim­ild­ar­mann­inn ótryggan.

[adspot]

Athuga­semd rit­stjórnar: Fyr­ir­sögn og efni grein­ar­innar hefur verið breytt, eftir að prest­ur­inn Burns bar fyrri full­yrð­ingu sína um að Trump ætl­aði að náða Assange, til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Assange

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár